Verð á mann í tvíbýli 1.199.000 kr.
Aukagjald fyrir einbýli 317.900 kr.
Innifalið
- Áætlunarflug með Finnair til Japan: Keflavík – Helsinki – Tokyo.
- Áætlunarflug með Finnair frá Japan: Osaka – Helsinki - Keflavík.
- Flugvallarskattar fyrir alla ferðina.
- Gisting í 11 nætur í tveggja manna herbergjum á 4* hótelum samkvæmt landsmælikvarða.
- Máltíðir samkvæmt ferðalýsingu.
- Morgunverður allan tímann á hótelum.
- Fjórir hádegisverðir.
- Fjórir kvöldverðir.
- Allar rútuferðir samkvæmt ferðalýsingu.
- Ferðir með hraðlestum samkvæmt ferðalýsingu.
- Allar skoðunarferðir og aðgangseyrir samkvæmt ferðalýsingu.
- Innlend staðarleiðsögn í Japan.
- Íslensk fararstjórn.
- Undirbúningsfundur með fararstjóra fyrir ferð.
Vert er að hafa í huga að sérferðir eru lengri ferðir á fjarlægari slóðir. Alltaf er eitthvað um göngur og mörg svæði eru bæði hæðótt og ójöfn undir fæti og aðgengi að áfangastöðum misjafnt og stundum krefjandi.
Þess ber einnig að geta að suma daga eru dagleiðir í lengra lagi til þess að unnt sé að koma hópnum á milli markverðustu staða. Ef þú hefur einhverjar vangaveltur varðandi þetta vinsamlegast ekki hika við að hafa samband við skrifstofu Bændaferða.