Gjafabréf Bændaferða

Gjafabréf Bændaferða

Gleddu þína nánustu með ævintýraferð og ævilangri minningu - gefðu gjafabréf  

Gjafabréf frá Bændaferðum & Hey Iceland er tilvalin gjöf til þeirra sem hafa gaman af því að ferðast, jafnt innanlands sem utan. Það er einfalt að kaupa rafræna gjafabréfið okkar, þú velur upphæðina sem á að gefa, skrifar kveðju, greiðir og færð gjafabréfið sent í pósthólfið þitt til útprentunar.

Kaupa gjafabréf Hey Iceland & Bændaferða

Gjafabréfið gildir í 3 ár frá útgáfudegi og gildir sem greiðsla upp í ævintýralega ferð hjá Bændafeðrum, ásamt fjölbreytta gistingu og afþreyingu hjá gististöðum Hey Iceland um land allt. Hægt er að nýta bréfið sem greiðslu á vefsíðu baendaferdir.is, á skrifstofu Bændaferða - Hey Iceland, Síðumúla 2, eða í síma 570 2790.

Athugið að ekki er hægt að innleysa bréfið hjá gististöðum eða afþreyingaraðilum innanlands.

Gjafabréf Bændaferða og Hey Iceland

Bændaferðir og Hey Iceland eru vörumerki í eigu Ferðaþjónustu bænda hf. sem sérhæfir sig í ferðaþjónustu á landsbyggðinni. Ferðaskrifstofan var stofnuð árið 1991 en forsaga fyrirtækisins nær þó allt aftur til ársins 1965. Í dag eru sölusviðin tvö; Bændaferðir sem býður upp á innihaldsríkar ferðir með íslenskri fararstjórn um allan heim og Hey Iceland sem sérhæfir sig í ferðalögum á landsbyggðinni og býður upp á fjölbreytt úrval af gistingu um land allt og afþreyingu við allra hæfi.




Póstlisti