Á gönguskíðum í Lillehammer

Segja má að upphaf nútímaskíðaíþrótta megi rekja til Skandinavíu og í Noregi er mikil skíðamenning. Lillehammer er einn helsti áfangastaður í Noregi fyrir vetraríþróttir og þar eru allar aðstæður í heimsklassa. Svæðið varð heimsþekkt þegar Vetrarólympíuleikarnir voru haldnir þar 1994, enda eru aðstæður kjörnar fyrir alpagreinar jafnt sem skíðagöngu. Eitt af svæðunum sem notað var á Ólympíuleikunum er Hafjell og þar munum við dvelja á góðu skíðahóteli þar sem hægt er að renna sér beint í brautirnar. Í nánasta umhverfi Hafjell,  Øyerfjellet, eru um 300 kílómetrar af skíðagöngubrautum og þær tengjast inn á nágrannasvæðin, Sjusjøen, Nordseter og Lillehammer sem bjóða upp á annað eins í vegalengdum fyrir gönguskíðagarpa. Það er því af nógu af taka í þessu frábæra umhverfi Lillhammer sem breytist í fallegt undraland á veturna, víðáttumiklar snjóbreiður, þéttir barrskógar og tilkomumikil fjöll. Á meðan á dvöl okkar stendur fer fram hin vinsæla skíðakeppni Birkebeinerrennet og því tilvalið fyrir þá sem áhuga hafa að taka þátt í þessari skemmtilegu skíðagöngukeppni. Frá Hafjell er um 30 mínútna akstur til Lillehammer, en bærinn stendur í Guðbrandsdalnum sem er einn, fallegasti og merkasti dalur Noregs og teygir sig í um 200 kílmetra suður frá Lillehammer. Miðbær Lillehammer er huggulegur, falleg gömul timburhús, ýmis konar verslanir, veitinga- og kaffihús, gallerí og söfn. Í þessari frábæru ferð njótum við alls hins besta á einu af bestu skíðagöngusvæðum Skandinavíu. Í þessari ferð er ekki skipulögð skíðagöngukennsla og því hentar hún ekki fyrir byrjendur.

Verð á mann 349.900 kr.

Aukagjald fyrir einbýli 117.700 kr.


Innifalið

  • 8 daga ferð.
  • Flug með Icelandair og flugvallarskattar.
  • Ferðir á milli flugvallarins í Oslo og hótelsins í Hafjell.
  • Gisting í tveggja manna herbergi með sturtu/baði á fjögurra stjörnu hóteli.
  • Morgunverðarhlaðborð.
  • Einn þriggja rétta kvöldverður á hóteli.
  • Einn fimm rétta kvöldverður á hóteli.
  • Íslensk fararstjórn.

Ekki innifalið

  • Aukagjald fyrir skíði í flug.
  • Hádegisverðir og kvöldverðir sem eru ekki skráðir undir innifalið.
  • Kvöldverður í Lillehammer.
  • Þátttaka í Birkebeiner göngunni.
  • Þjórfé.
  • Forfalla- og ferðatrygging.

Kort af ferðinni

FerðalýsingPrenta ferðalýsingu

Nánar um ferðina

Í ferðinni verða tveir fararstjórar sem munu vera með skipulega dagskrá, boðið verður upp á styttri og lengri ferðir og gjarnan staldrað við í hádegi á notalegum veitingastað. Þeir sem vilja frekar njóta þess að skíða á sínum eigin forsendum í dásamlegu umhverfi gera það. Markmiðið er að allir njóti sín á gönguskíðum við góðar aðstæður.

Birkebeiner gangan 14. mars

Á meðan á dvöl okkar stendur fer fram hin vinsæla skíðakeppni Birkebeinerrennet, nánar tiltekið 14. mars, en þann dag er engin skipulögð dagskrá í ferðinni. Keppnin var fyrst haldin til heiðurs Birkibeinum árið 1932. Vegalengdin er 54 km, skíðað er yfir tvö fjöll í ákaflega fallegu landslagi. Lagt er af stað frá Tingstadjordet, sem er 3 km vestur af Rena og komið er í mark við Birkebeineren ski stadium í Lillehammer. Annar fararstjórinn mun taka þátt með þeim aðilum úr hópnum sem hafa sjálfir skráð sig til keppni. Fyrir þá sem hafa ekki áhuga á að skrá sig til keppni mun hinn fararstjórinn fylgja hópnum til Lillehammer þar sem hægt er að spóka sig um, setjast á kaffihús, kíkja á söfn eða í verslanir. Undir lok göngunnar mun fararstjóri fylgja áhugasömum að enda göngunnar og taka á móti þeim görpum sem hafa lokið keppni. Ráðgert að ljúka deginum með sameiginlegum kvöldverði í Lillehammer fyrir þá sem vilja.  Við hvetjum áhugasama til að kynna sér keppnina og skrá sig í tíma en skráning fer fram á eigin vegum.

Vefsíða keppninar

Skíðasvæðið

Skíðasvæðið Hafjell er eitt vinsælasta, stærsta og aðgengilegasta skíðasvæði Noregs og er aðeins í um 30 mínútna keyrslu norður af Lillehammer. Flestir þekkja Lillehammer sem gestgjafa vetrarólympíuleikanna 1994 og mikið af keppnisgreinum leikanna fóru fram í Hafjel. Það eru um 300 kílómetrar af skíðagöngustígum á Øyerfjellet svæðinu, skjólgott skóglendi og víðáttumiklar sléttur, sem henta bæði gönguskíðum og skautaskíðum fyrir öll getustig. Þetta svæði tengist síðan öðrum svæðum eins og Sjusjøen, Nordseter og Lillehammer og þá eru um 600 kílómetrar af gönguskíðaleiðum sem hægt er að nýta sér.

Vefsíða svæðisins

Upplýsingar um gönguskíðasvæði

Opna allt

Flugið

Flogið verður með Icelandair til Osló þann 10. mars. Brottför frá Keflavík kl. 07:50 en mæting í Leifsstöð u.þ.b. 2,5 klst. fyrir brottför. Lending í Oslo kl. 11:35 að staðartíma. Frá flugvellinum eru um 165 km til Hafjell svo gera má ráð fyrir að rútuferðin taki rúmar 2 klst. Á brottfarardegi er flogið heim kl. 13:10 frá Osló. Lending á Íslandi kl. 15:20.

Myndir úr ferðinni

Fararstjórn

Sveinbjörn Sigurðsson

Sveinbjörn Sigurðsson starfar sem sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfari við Sjúkraþjálfarann í Hafnarfirði. Hann hefur mikla reynslu af þjálfun enda þjálfaði hann í 30 ár bæði handbolta- og fótboltalið og síðustu 5 árin hefur hann komið að þjálfun skíðagöngufólks á höfuðborgarsvæðinu. Sveinbjörn hefur margþætta reynslu af hinum ýmsu keppnum bæði hér heima og erlendis og á síðustu árum hefur hann lagt meiri áherslu á skíðagöngu og skíðakennslu og sótt nær öll mót á Íslandi og helstu mót erlendis í þeirri grein.

Ragnhildur Aðalsteinsdóttir

Ragnhildur Aðalsteinsdóttir er fædd árið 1975 og ólst upp á sveitabæ norðan Vatnajökuls innan um kindur og hreindýr. Hún er menntuð í fjölmiðlafræði og ljósmyndun og starfaði lengi fyrir útgáfufélagið Birtíng sem blaðamaður og ljósmyndari. Hún útskrifaðist úr Leiðsöguskólanum vorið 2022 úr göngu- og almennri leiðsögn og tekur bæði að sér almenna rútuleiðsögn og fjallgöngur. Ragnhildur hefur mikinn áhuga á útivist, stundar fjallgöngur, utanvegahlaup og gönguskíði. Þá hefur áhugi hennar á jarðfræði aukist mikið á undanförnum árum og hún hefur gengið fjölda ferða að gosstöðvunum í Fagradalsfjalli með erlenda ferðamenn. Að auki hefur Ragnhildur verið fararstjóri í gönguferðum bæði á Ítalíu og Tenerife. Ragnhildur býr nú í Hafnarfirði, er gift og á tvo syni, og starfar við leiðsögn, fararstjórn og ljósmyndun. 

Hótel

Pellestova Hotel í Hafjell

Í þessari ferð verður gist á 4*hóteli, Pellestova Hotel í Hafjell. Hótelið er staðsett á toppi Hafjell, um 25 kílómetra frá Lillehammer og rekur sögu sína allt aftur til ársins 1946. Frá hótelinu er gott aðgengi, meðal annars að gönguskíðasvæðinu Øyerfjellet, en brautirnar liggja alveg upp að hótelinu (ski in - ski out). Á hótelinu er a la carte veitingastaður þar sem áhersla er lögð á hráefni úr héraði, vandaður vínkjallari, hefðbundinn veitingastaður, pizzastaður og skíðakaffihús. Einnig er skíðageymsla með aðstöðu til að bera á skíðin og aðstaða til líkamsræktar. Herbergin á hótelinu eru með sturtu, sjónvarpi, míníbar og hárblásara.

Senda fyrirspurn um ferð


bokun@baendaferdir.is
Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Sími: 570 2790




Póstlisti