2701. Ævintýrasigling frá Ástralíu til Nýja Sjálands - janúar & febrúar
22. janúar - 9. febrúar 2027 (18 dagar)
Spennandi lúxusferð á framandi slóðir. Siglt frá Ástralíu til Nýja Sjálands. Komið til níu áfangstaða á þessari 11 nátta siglingu, gist í Sidney í þrjár nætur fyrir siglingu og 3 nætur í Auckland eftir siglingu. Gist á glæsilegum hótelum, siglt með glæsilegu skipi og flogið með góðum flugfélögum, Icelandair og Singapore Airlines. Alla ferðina er fararastjórinn okkar með hópnum. Boðið er uppá skoðunarferðir í Sidney og Aukland auk skoðunarferða á vegum skipafélagsins í öllum þeim viðkomustöðum sem skipið kemur til. Einnig býður fararstjórinn okkar uppá bæjarrölt i hverri höfn þar sem því verður komið við.
Viðkomustaðir eru Sidney, Eden, Burnie Tasmania, Melbourne, Milford Sound, Dunedin í Ástralíu og Lyttleton, Tauranga og Auckland á Nýja Sjálandi
Glæsiskipið Norwegian Spirit
Norwegian Spirit var smíðað árið 1998 og er 75.000 brúttótonn, 268 metra langt og 35 metra breitt. Spirit var endurnýjað 2024 og er afar glæsilegt. Farþegar eru 2.000 og í áhöfn eru 980. Um borð eru fjöldi veitingastaða, kaffihús, diskótek og barir, sundlaugar, heitir pottar, líkamsrækt, spa og leikhús sem tekur yfir 1000 manns í sæti og margt fleira. Skipið er afar glæsilega innréttað og þar fer ákaflega vel um farþega.