2703. Asíuævintýri Singapore til Hong Kong - febrúar

Flogið til Singapore með Icelandair og Singapore Airlines. Komið til Singapore 7. feb og siglt með Norwegian Jade frá Singapore 9. til Ko Samui á Taílandi, Laem Chabang á Taílandi, Phu Myu Ho Shi Minh City í Víetnam, Muara í Brúnei, Kota Kinabalu í Malasíu, Pureto Princesa á Filippseyjum, Coron á Filippseyjum og endað í Hong Kong.

Glæsiskipið Norwegian Jade
Smíðað árið 2006, gert upp 2022.
Rúmar um 2,400 farþega og meira en 1,000 áhafnarmeðlimi.
Það er um 294 metrar langt
Hvað finnur þú um borð?
Skipið er eins og fljótandi hótel
Veitingastaðir & barir: 10+ mismunandi veitingastaði og bari
Skemmtun: leikhús og lifandi tónlist á mörgum börum.
Afþreying: Sundlaugar, heilsulind (spa), casino, spilakassar, líkamsrækt
Freestyle Cruising: Þú þarft ekki að hafa fasta matmálstíma eða borð — þú velur sjálfur hvar, hvenær og með hverjum þú borðar og skemmtir þér.

Verð á mann í tvíbýli í innklefa 1.091.900 kr. 

Verð á mann í tvíbýli í svalaklefa 1.299.900 kr. 

Aukagjald fyrir einbýli í innklefa 375.900 kr.
Aukagjald fyrir einbýli í svalaklefa 547.900 kr.

Innifalið

  • Flug fram og til baka.
  • Allur akstur milli flugvallar, hótels og skips.
  • Gisting með morgunverði á hóteli fyrir og eftir siglingu.
  • 13 nátta sigling.
  • Íslensk fararstjórn.
  • Fullt fæði í skipinu.
  • Öll skemmtidagskrá um borð.
  • Þjórfé.
  • More At Sea pakkinn:
  • Drykkjarpakki: Innfelur mikið úrval af áfengum og óáfengum drykkjum, gosdrykki en ekki vatn á flöskum, nýkreistan aldinsafa og kaffi á Starbuck. ATH: skattur getur lagst á drykkir og mat í sumum höfnum og fer sá kostnaður á reikning viðkomandi viðskiptavinar. Innifelur ekki Mini Bar í klefum, léttvíns og vínkynningar eða sértilboð á bjórfötum. Allt vín og kokteilar eru bornir fram í glösum, bjór er borinn fram í glösum eða flöskum.
  • Matarpakkinn: Fimm sinnum út að borða á sér veitingastöðunum í svalaklefa en þrisvar sinnum fyrir innklefa.
  • WiFi: 150 mínútur á þráðlausa netinu um borð.
  • Skoðunarferðapakki: 50 dollara inneign á klefa per höfn til að nota í skoðunarferðir. Safnast ekki upp ef ekki er notað.

Ekki innifalið

  • Skoðunarferðir í landi á vegum skipafélagsins ef fólk fer í þær.
  • Vsk á mat og drykk í sumum löndum.
  • Ath hádegis og kvöldverðir eru ekki innifaldir þegar dvalið er á hótelum fyrir og eftir siglingu.
  • Ferða- og forfallatryggingar.

Kort af ferðinni

FerðalýsingPrenta ferðalýsingu

6. febrúar | Keflavík – Singapore

Flogið til Singapore með Icelandair og Air Singapore og lent daginn eftir eða þann 7 . feb.

7. febrúar | Singapore

Lent kl. 19:00 í Singapore og farið beint á hótelið. Gist í tvær nætur á glæsihótelinu Parkroyal miðsvæðis í Singapore

8. febrúar | Singapore

Frjáls dagur í Singapore. Hér er tillaga um hvað hægt er að gera á góðum degi í Singapore.

Morgun
Marina Bay Sands & Merlion
Labbaðu í kringum Marina Bay
Taktu klassísku myndina með Merlion
Kaffi eða stutt stopp uppi á SkyPark útsýnispallinum
Gardens by the Bay
Skoðaðu Supertree Grove (ókeypis að labba um)
Ef þú vilt fara inn: Cloud Forest er algjört highlight

Hádegi
Hawker centre (skyldustopp!)
Veldu eitt:
Lau Pa Sat (miðsvæðis, frábært satay)
Maxwell Food Centre (frægur hrísgrjóna kjúklingur)
Prófaðu: Hainanese chicken rice, laksa eða char kway teow

Síðdegi
Chinatown eða Little India
Chinatown: hof, götur, minnjagripir
Little India: litir, kryddlykt, Sri Veeramakaliamman hofið
(Ef þú vilt eitthvað „hippara“: Tiong Bahru)
Orchard Road (ef þú hefur gaman af því að versla)
Stutt stopp, jafnvel bara til að sjá hversu frábrugðið þetta er

Kvöld
Clarke Quay eða Boat Quay
Drykkur við ána
Fín stemning þegar sól sest
Kvöldútsýni
Ce La Vi / Atlas / eða einhvarn annan bar uppi á þaki
eða Supertree ljósasýningin (ókeypis, mjög gaman)

Pro tips
MRT (neðanjarðarlestin) er hraðvirk og auðvelt að nota
Létt föt – heitt og rakt allan daginn

Singapore er mjög öruggt, líka á kvöldin

Opna allt

9. febrúar | Siglingin hefst

Brottför frá hótelinu kl.12:00 og ekið til skips. Brottför frá Singapore kl.16:00

10. febrúar | Á siglingu

Á siglingu allan daginn og um að gera að skoða skipið og læra aðeins á það og auðvitað njóta þess sem boðið er uppá um borð, bæði í mat, drykk og ekki síður skemmtilegri dagskrá.

11. febrúar | Ko Samui

Leggjum að bryggju í Ko Samui kl. 07:00. Brottför kl.17:00. Koh Samui er eyja í Taílandi og er þekkt fyrir hvítar sandstrendur, pálmatré, hlýjan sjó og afslappað andrúmsloft. Eyjan er vinsæl m.a. vegna náttúru og fjölbreyttrar afþreyingar fyrir ferðamenn. Á Koh Samui er matur fjölbreyttur og mjög bragðmikill. Má þar nefna ferska sjávarrétti, grillaðan fisk, rækjur og krabba, kryddaða núðlurétti eins og pad thai og pad see ew, sterkar súpur á borð við tom yum og mildari karrírétti með kókosmjólk. Á eyjunni er einnig mikið úrval af götumat einföldum strandveitingastöðum og alþjóðlegum veitingahúsum.

12. febrúar | Laem Chabang

Komum til Laem kl. 06:45 og lagt úr höfn á ný kl. 18:00. Laem Chabang er stór hafnarbær í Taílandi austur af Bangkok við Taílandsflóa. Bærinn er þekktur fyrir iðnaðarhöfn sína og aðgengi að ströndum og eyjum í nágrenninu. Maturinn í Laem Chabang sameinar staðbundna taílenska rétti með ferskum sjávarréttum og götumat.

13. febrúar | Á siglingu

Á siglingu í dag og um að gera að njóta, en allta nóg um að vera um borð.

14. febrúar | Phu My Ho Chi Minh City

Komið kl.08:00 og farið kl.19:00.

Phu My er hafnarhverfi í Ho Chi Minh-borg í Víetnam, staðsett suðaustan við miðborgina og mikilvæg sem iðnaðar- og flutningamiðstöð. Til gömlu Saigon (District 1 í Ho Chi Minh-borg), þá er hún um 25–30 kílómetrar fjarlægð, fer eftir hvaða leið er valin.
Með bíl eða skutlu tekur ferðin venjulega 30–50 mínútur án mikils umferðar.
Á miklum umferðar tíma getur ferðin tekið allt að 1–1,5 klukkustund. Á leiðinni er ekið um iðnaðarhverfi, hafnarsvæði og úthverfi borgarinnar áður en þú kemur inn í miðbæinn með gömlu byggingunum, verslunum og kaffihúsum.

Með almenningssamgöngum
Strætó og rútuþjónusta eru tiltölulega ódýr en töluvert hægari, allt að 1,5–2 klukkustundir.
Þetta er góður kostur ef þú vilt kynnast daglegu lífi heimamanna og sjá götulíf og markaði á leiðinni.

Áhugaverðir staðir á leiðinni
Phu My port, fyrir áhugafólk um skip og iðnað
Litlir staðbundnir markaðir með ferskum ávöxtum og götumat
Fyrir framan borgarmörk, svæði með kaffihúsum og sölustöðum fyrir götumat þar sem hægt er að smakka pho, banh mi og ferska vorrúllu.
Fyrir þá sem ekki kaupa skoðunarferð á vegum NCL eru á eigin ábyrgð ef þeir tefjast, skipið bíður ekki eftir þeim sem eru á eigin vegum í landi og mæta ekki á réttum tíma um borð.

15. febrúar | Á siglingu

Sigling í allan dag.

16. febrúar | Muara

Komið kl.08:00 og farið kl.17:00

17. febrúar | Kota Kinabalu

Komið kl.07:00 og farið kl.15:00

18. febrúar | Puerto Princesa

Komið kl.10:00 og farið kl.18:00

19. febrúar | Coron

Komið kl.07:00 og farið kl.16:00

20. febrúar | Á siglingu

Síðasti dagurinn á siglingu og um að gera að njóta

21. febrúar | Hong Kong

Komið kl.11:00 og farið kl.23:59.

22. – 23. febrúar | Hong Kong

Förum frá borði um kl.09:00 og upp á hótel

24. febrúar | Heimferð

Myndir úr ferðinni

Fararstjórn

Hólmfríður Bjarnadóttir

Hólmfríður heiti ég, alltaf kölluð Hófý, og er fædd á Patreksfirði en ólst upp í Reykjavík. Ég er móðir þriggja drengja og er búsett í Bæjaraskógi í Þýskalandi. Ég er búin að starfa hjá Bændaferðum síðan 2004 í skipulagningu á utanlandsferðum og sem fararstjóri. Þetta hefur verið dásamlegur tími með frábæru fólki, yndislegu samstarfsfólki og vinum. 

Senda fyrirspurn um ferð


bokun@baendaferdir.is
Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Sími: 570 2790




Póstlisti