2612. Hawaii með Pride of America - nóvember

Flogið með Icelandair til Seattle, gist þar í eina nótt og flogið til Honolulu. Þar gistum við í tvær nætur og siglinginn hefst 14. nóvember. Eftir sjö daga siglingu um eyjarnar gistum við tvær nætur í Honolulu, fljúgum til Seattle þar sem gist verður í eina nótt áður en flogið er heim með Icelandair og lent að morgni 26. nóvember.

Glæsiskipið Pride of America
Pride of America var smíðað árið 2005 og fékk síðustu yfirhalningu 2022. Það er 80.500 brúttótonn, 280 metra langt og 37 metra breitt. Farþegar eru 2.150 og í áhöfn eru 927. Um borð eru fjöldi veitingastaða, kaffihús, diskótek og barir, sundlaugar, heitir pottar, líkamsrækt, spa og leikhús sem tekur um 800 manns í sæti. Skipið er afar glæsilega innréttað og þar fer ákaflega vel um farþega.

Verð á mann í tvíbýli í innklefa 890.000 kr. 

Verð á mann í tvíbýli í svalaklefa 980.000 kr. 

Innifalið

  • Flug fram og til baka.
  • Allur akstur milli flugvallar, hótels og skips.
  • Gisting með morgunverði á hótelinu.
  • Sjö nátta sigling.
  • Íslensk fararstjórn.
  • Fullt fæði í skipinu.
  • Öll skemmtidagskrá um borð.
  • Þjórfé.
  • More At Sea drykkjarpakki: Innfelur mikið úrval af áfengum drykkjum með örfáum undantekningum. Allir gosdrykkir og óáfengir drykkir innifaldir nema vatn á flöskum, nýkreistur aldinsafi og kaffi á Starbuck. ATH: skattur getur lagst á drykkir og mat í sumum höfnum og fer sá kostnaður á reikning viðkomandi viðskiptavinar.Innifelur ekki Mini Bar í klefum, Connoisserur‘s Collection, léttvíns og vínkynningar eða sértilboð á bjórfötum. Allt vín og kokteilar eru bornir fram í glösum, bjór er borinn fram í glösum eða flöskum.
  • Matarpakkinn: Út að borða á sérreknu veitingastöðunum: Svalaklefi: 7 daga sigling 3 sinnum út að borða, 8-11 daga sigling 4 sinnum út að borða og 12 dagar og meira 5 sinnum út að borða. Gildir fyrir allt að 3 í svalaklefa. Innklefi og Stúdío: 7 daga sigling: 1 sinni út að borða, 8-11 daga sigling: 2 sinnum út að borða og 12 dagar og lengra, 3 sinnum út að borða.
  • WiFi: 150 mínútur á þráðlausa netinu um borð. Gildir fyrir allt að 3 saman í klefa.
  • Skoðunarferðapakki: 50 dollara inneign á klefa per höfn til að nota í skoðunarferðir. Safnast ekki upp ef ekki er notað.

Ekki innifalið

  • Skoðunarferðir í landi á vegum skipafélagsins ef fólk fer í þær.
  • Ferða- og forfallatryggingar.

Kort af ferðinni

FerðalýsingPrenta ferðalýsingu

11. nóvember| Keflavík – Seattle

Flogið síðdegis með Icelandair til Seattle þar sem lent er kl. 21:10 að staðartíma. Ekið sem leið liggur á hótel.

12. nóvember | Seattle – Honolulu

Flogið með Alaska Air til Honolulu og ekið til hótels í Honolulu.

13. nóvember | Honolulu

Frjáls dagur í Honolulu.

Opna allt

14. nóvember | Siglingin hefst

Brottför frá Honolulu kl. 17:00.

15. nóvember | Kona

Komið til Kona kl. 07:00 og farið kl.17:00. Hér er fari í land með léttabátum.

16. nóvember | Hilo

Komið til Hilo kl 07:00 og farið kl. 17:00. Eyjan er 83 ferkílómetrar og hér búa um 52.000 manns. Mikið um fallegar víkur og strendur og einstaklega gaman að snorkla og skoða kórala og litskrúðuga fiska.

17. nóvember | Kahului Maui

Komið til Hahului Maus kl.08:00 og farið kl.17:00 daginn eftir. Gistum sem sagt um borð í eina nótt.

18. nóvember | Kahului Maui

Deginum varið í Kahului Maui og siglt úr höfn kl.17:00.

19. nóvember | Nawilwli Kauai

Komið kl. 09:00 og farið kl.14:00 daginn eftir.

20. nóvember | Nawilwli Kauai

Siglt úr höfn kl.14:00 og siglum með Napali ströndinni síðdegis.

21. nóvember| Siglingu lýkur

Komið til Honalulu kl. 07:00 og ekið til hótels. Frjáls dagur í Honolulu.

22. nóvember | Honolulu

Frjáls dagur í Honolulu. Mælum með að fara í skoðunarferð til Pearl Harbour.

23. nóvember | Honolulu

Í dag er flogið með Air Alaska til Seattle þar sem gist verður í eina nótt.

24. nóvember | Heimferð / Seattle – Keflavik

Flogið til Keflavíkur með Icelandair og lent að morgni 25. nóvember.

Myndir úr ferðinni

Fararstjórn

Sigrún Jónsdóttir

Sigrún hefur mikla reynslu sem fararstjóri og leiðsögumaður, bæði hér heima og eins erlendis. Hún lauk námi vð Leiðsögumannaskólann 1987 og lærði mannfræði við Háskóla Íslands og hefur starfað við leiðsögn meira og minna frá árinu 1986. 

Senda fyrirspurn um ferð


bokun@baendaferdir.is
Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Sími: 570 2790




Póstlisti