2611. Barcelona til Port Canaveral - október & nóvember

Flogið til Barcelona þar sem gist er í þrjár nætur. Siglingin til Port Canaveral er 14 nætur og á leiðinni er komið við í Cadiz Seville á Spáni, Casablanka í Marokkó, Santa Cruz De La Plama á Kanaríeyjum, St. Thomas í Puerto Rico, Great Stirrup Key á Bahamas og Port Canaveral í Flórida þar sem siglingin endar. Ekið til Orlando þar sem gist er í tvær nætur áður en lagt er af stað heim þann 17. nóvember og lent í Keflavík að morgni 18. nóvember.

Glæsiskipið Norwegian Epic
Norwegian Epic er 155,873 brúttótonn, 329 metrar á lengd og tekur 4.100 farþega. Áhöfnin er 1.753 og ganghraði er 20 hnútar. Epic er glæsilegur farkostur þar sem smekkleg hönnun og lúxus er einkenni þess. Það er hreint ævintýri að sigla með skipinu.

Verð á mann í tvíbýli í innklefa 640.000 kr. 

Verð á mann í tvíbýli í svalaklefa 750.000 kr. 

Innifalið

  • Flug fram og til baka.
  • Allur akstur milli flugvallar, hótels og skips.
  • Gisting með morgunverði á hótelinu.
  • Fjórtán nátta sigling.
  • Íslensk fararstjórn.
  • Fullt fæði í skipinu.
  • Öll skemmtidagskrá um borð.
  • Þjórfé.
  • More At Sea drykkjarpakki: Innfelur mikið úrval af áfengum drykkjum með örfáum undantekningum. Allir gosdrykkir og óáfengir drykkir innifaldir nema vatn á flöskum, nýkreistur aldinsafi og kaffi á Starbuck. ATH: skattur getur lagst á drykkir og mat í sumum höfnum og fer sá kostnaður á reikning viðkomandi viðskiptavinar.Innifelur ekki Mini Bar í klefum, Connoisserur‘s Collection, léttvíns og vínkynningar eða sértilboð á bjórfötum. Allt vín og kokteilar eru bornir fram í glösum, bjór er borinn fram í glösum eða flöskum.
  • Matarpakkinn: Út að borða á sérreknu veitingastöðunum: Svalaklefi: 7 daga sigling 3 sinnum út að borða, 8-11 daga sigling 4 sinnum út að borða og 12 dagar og meira 5 sinnum út að borða. Gildir fyrir allt að 3 í svalaklefa. Innklefi og Stúdío: 7 daga sigling: 1 sinni út að borða, 8-11 daga sigling: 2 sinnum út að borða og 12 dagar og lengra, 3 sinnum út að borða.
  • WiFi: 150 mínútur á þráðlausa netinu um borð. Gildir fyrir allt að 3 saman í klefa.
  • Skoðunarferðapakki: 50 dollara inneign á klefa per höfn til að nota í skoðunarferðir. Safnast ekki upp ef ekki er notað.

Ekki innifalið

  • Skoðunarferðir í landi á vegum skipafélagsins ef fólk fer í þær.
  • Ferða- og forfallatryggingar.

Kort af ferðinni

FerðalýsingPrenta ferðalýsingu

29. október | Ferðin hefst

Flogið til Barcelona með Icelandair og farið beint á Hotel Catalonia Plaza 4 stjörnu hótel vel staðsett þar sem við gistum í þrjár nætur.

30. – 31. október | Barcelona

Af nógu að taka í Barcelona. Stuttur göngutúr með fararstjóra fyrri daginn fyrir það sem það vilja.

1. nóvember | Sigling hefst

Förum frá hótelinu fyrir hádegi og um borð í Epic sem leysir landfestar kl. 16:00.

Opna allt

2. nóvember | Á siglingu

Rólegheit um borð og um að gera að njóta þess sem skipið býður uppá. Siglum um Gíbraltarsundið um kvöldið.

3. nóvember | Cadiz (Sevilla)

Komum kl 07:00 til Cadiz og förum þaðan kl 17:00. Falleg borg sem gaman er að rölta um, en einnig er hægt að skjótast til Sevilla, sem er höfuðborg Andalúsíuhérðas.

4. nóvember | Casablanka í Marokkó

Komum kl 07:00 og förum á ný kl 17:00. Lífleg og litskrúðug borg sem gaman er að rölta um og skoða til dæmis markaði.

5. nóvember | Santa Cruz De La Palma á Kanaríeyjum

Komum kl 07:00 og förum aftur kl 14:00. Bærinn er á La Palma eyjunni, sem er ein af Kanaríeyjunum.

6. – 11. nóvember | Á siglingu

Sex dásemdardagar um borð og alltaf nóg um að vera. Sólbað, heitu pottarnir, vínsmökkun, heilsulindin, ræktin, leiksýningar og svo mætti lengi telja. Um að gera að njóta þess að vera úti á miðju Atlantshafinu.

12. nóvember | St Thomas

Komum til bandarísku Jómfrúreyjunnar St Thomas kl 11:00 og förum á ný kl 17:00. Falleg eyja, gaman til dæmis að fara í kláfunum upp í fjall og skoða útsýnið þaðan, eða rölta í bænum og fá sér kaffi með heimamönnum.

13. nóvember | Sigling

14. nóvember| Great Stirrup Cay

Komið til Great Stirrup Cay, eyju sem NCL á, kl 11:30 og farið á ný kl 17:30. Nú er komin bryggja og við leggjum að henni og löggum í land. Hér er gott að snorkla og slappa síðan af á ströndinni, prófa að svífa yfir flóann í zipline og margt fleira.

15. nóvember | Port Canaveral - siglingu lýkur

Leggjum að bryggju í Port Canaveral kl 07:00 og förum beinustu leið til Orlando og ættum að vera komin þangað um kl 10:00. Gistum í tvær nætur á Florida Mall and Conference Center hótelinu sem er mjög vel staðsett hótel með Florida Mall verslunarmiðstöðinni í sömu byggingu.

16. nóvember | Orlando

Frjáls dagur í Orlando en þar er nóg hægt að gera. Í verslunarmiðstöðinni Florida Mall eru um 270 verslanir auk fjölda veitingastaða. Góður sundlaugargarður er við hótelið auk þess sem stutt er í Premium Outlet þar sem hægt er að gera mjög góð kaup. Ekki má heldur gleyma hinum fjölmörgu skemmtigörðum sem eru í næsta nágrenni við hótelið og einnig eru margir flottir golfvellir á svæðinu.

17. nóvember | Heimferð

Farið út á flugvöll um miðjanm dag og flogið heim með Icelandair. Lent í Keflavík um 06:00 að morgni 18. nóvember.

Myndir úr ferðinni

Fararstjórn

Skúli Unnar Sveinsson

Skúli er stjórnmálafræðingur að mennt, starfaði lengi við blaðamennsku og við leiðsögn hjá Samvinnuferðum og Terra Nova á árum áður.

Skúli hefur mikla reynslu af því að sigla með hópa í skemmtisiglingum enda er oft sama fólkið að sigla með honum ár eftir ár.

Senda fyrirspurn um ferð


bokun@baendaferdir.is
Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Sími: 570 2790




Póstlisti