2609. Eyjahafið frá Aþenu til Feneyja - ágúst

Flogið til London og áfram þaðan með British Airways til Aþenu. Gistum í þrjár nætur á Hotel Stanley, 4 stjörnu hóteli vel staðsettu nálægt Akrapolis og förum síðan í 7 nátta siglingu með NCL Pearl frá Aþenu (Pireus) þar sem komið er við í Santorini, Katakolon/Olympíu og Corfu í Grikklandi, Kotor í Svartfjallalandi, Split í Króatíu, Koper í Slóveníu og svo endað í Ravena (Feneyjum) þar sem siglingin endar. Ekið til Feneyja og þar gistum við í tvær nætur áður en við fljúgum heim með Icelandair beint frá Feneyjum.

 

Glæsiskipið Norwegian Pearl
Norwegian Pearl er glæsilegt skemmtiferðaskip.
Þyngd: 93,530 brúttótonn
Lengd: 294 metrar
Breidd: Næstum 38 metrar
Farþegar: Getur borið 2,344 farþega
Áhöfn: 1,072 manns
Byggt: 2006
Endurbætur: Fór í mikla yfirhalningu árið 2021

Verð á mann í tvíbýli í innklefa 630.000 kr. 

Verð á mann í tvíbýli í svalaklefa 795.000 kr. 

Innifalið

  • Flug fram og til baka.
  • Allur akstur milli flugvallar, hótels og skips.
  • Gisting með morgunverði á hótelinu.
  • Sjö nátta sigling.
  • Íslensk fararstjórn.
  • Fullt fæði í skipinu.
  • Öll skemmtidagskrá um borð.
  • Þjórfé.
  • More At Sea drykkjarpakki: Innfelur mikið úrval af áfengum drykkjum með örfáum undantekningum. Allir gosdrykkir og óáfengir drykkir innifaldir nema vatn á flöskum, nýkreistur aldinsafi og kaffi á Starbuck. ATH: skattur getur lagst á drykkir og mat í sumum höfnum og fer sá kostnaður á reikning viðkomandi viðskiptavinar.Innifelur ekki Mini Bar í klefum, Connoisserur‘s Collection, léttvíns og vínkynningar eða sértilboð á bjórfötum. Allt vín og kokteilar eru bornir fram í glösum, bjór er borinn fram í glösum eða flöskum.
  • Matarpakkinn: Út að borða á sérreknu veitingastöðunum: Svalaklefi: 7 daga sigling 3 sinnum út að borða, 8-11 daga sigling 4 sinnum út að borða og 12 dagar og meira 5 sinnum út að borða. Gildir fyrir allt að 3 í svalaklefa. Innklefi og Stúdío: 7 daga sigling: 1 sinni út að borða, 8-11 daga sigling: 2 sinnum út að borða og 12 dagar og lengra, 3 sinnum út að borða.
  • WiFi: 150 mínútur á þráðlausa netinu um borð. Gildir fyrir allt að 3 saman í klefa.
  • Skoðunarferðapakki: 50 dollara inneign á klefa per höfn til að nota í skoðunarferðir. Safnast ekki upp ef ekki er notað.

Ekki innifalið

  • Skoðunarferðir í landi á vegum skipafélagsins ef fólk fer í þær.
  • Ferða- og forfallatryggingar.

Kort af ferðinni

FerðalýsingPrenta ferðalýsingu

27. ágúst | Aþena

Flogið til London, brottför frá Keflavík kl.10:30 og lent í London kl.14:40. Brottför með British Airways frá Londona kl.19:10 og lent í Aþenu kl.00:50. Ekið til hótels Stanley sem er gott 4 stjörnu hótel vel staðsett eða skamt frá Akrapolis. Gistum þar í þrjár nætur.

28. – 29. ágúst | Aþena

Notum dagana til að skoða Aþenu enda margt og mikið að sjá í þeirri merku borg. Einnig er gaman að kíkja á Acrapolis og fleiri staði í Aþenu. Höfuðborg Grikklands er full af sögu og fallegum minnisvörðum um þá sögu. Mikið og margt að skoða hér, Akrapolis, Plaka, Ólympíuleikvangurinn og margt fleira.

30. ágúst | Siglingin hefst

Brottför frá hóteli um kl.11:00. Pearl leggur úr höfn klukkan 17:00.

Opna allt

31. ágúst | Santorini

Vörpum ankerum úti fyrir eynni kl 09:00 og dveljum þar til kl 19:00. Gaman að vera uppi á dekki þegar við nálgumst eyna. Mjög gaman að skoða sig um á Santorini en má búast við að það taki tíma að koma sér upp frá höfninni. Förum með kláfnum upp í Fira og röltum aðeins þar um.

1.september | Katakolon/Olympia

Komið til Katakolon kl 09:00 og farið kl. 19:00. Lítill bær, aðeins um 500 íbúar, og tilvalið að fara upp í Olympíu hina fornu og skoða meðal annars staðinn þar sem ólympíueldurinn er kveiktur í aðdraganda Ólympíuleikanna. Í Katakolon er líka pínulítið safn sem vert er að skoða.

2. september | Corfu í Grikklandi

Þá erum við komin til eyjunnar Corfu. Lagt að bryggju kl 07:00 og farið á ný kl 17:00. Fallegur bær og gaman að fara upp í gamla kastalann sem er þar.

3. september | Kotor

Vörpum ankerum kl 07:30 og farið aftur kl 18:00. Falleg sigling inn að þessum bæ. Farið í land með léttabátum. Skemmtilegur lítill bær sem gaman er að rölta um.

4. september | Split

Vörpum ankerum kl 07:00 og farið aftur kl 17:00. Split er sögufræg borg með marga áhugaverða staði, skemmtileg veitingahús og krár. Borgin er þekkt fyrir frábæra sjávarrétti og skemmtilegar krár. Einnig er ströndin afar falleg.

5. september | Koper

Komið til Koper kl.08:00 og farið kl.19:00. Koper er fimmta stærsta borg Slóveníu. Staðsett í Istran héraðinu i suðvestur hluta landsins. Mjög skemmtileg borg og margt að skoða þar.

6. september | Siglingu lýkur

Komið til Ravena kl.06:00. Ekið til Mestre kl. 09:00 og á Hotel Ambasciatori, gott 4 stjörnu hótel vel staðsett í Mestre þar sem við gistum í tvær nætur. Farið verður í göngutúr um Feneyjar.

7. september | Feneyjar (Mestre)

Notum dagana til að skoða Feneyjar enda margt og mikið að sjá í þeirri merku borg. Einnig er gaman að kíkja á Mestre, bæinn sem við gistum í.

8. september | Feneyjar – Keflavík

Flogið heim með Icelandair. Brottför kl.16:10 og lent í Keflavík kl.18:50.

Myndir úr ferðinni

Fararstjórn

Skúli Unnar Sveinsson

Skúli er stjórnmálafræðingur að mennt, starfaði lengi við blaðamennsku og við leiðsögn hjá Samvinnuferðum og Terra Nova á árum áður.

Skúli hefur mikla reynslu af því að sigla með hópa í skemmtisiglingum enda er oft sama fólkið að sigla með honum ár eftir ár.

Senda fyrirspurn um ferð


bokun@baendaferdir.is
Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Sími: 570 2790




Póstlisti