2607. Feneyjar til Barcelona - júní

Flogið til Feneyja með Icelandair, brottför kl.08:20 og lent í Feneyjum kl.15:00. Gistum í Mestre (Feneyjum) í þrjár nætur og förum síðan í 9 nátta siglingu með NCL Viva frá Feneyjum  þar sem komið er við í Kotor í Svartfjallalandi, Dubrovnik í Króatíu, Salerno, Róm (Civitavecchia) og Livorno á Ítalíu, Nice ( í Frakklandi), Monaco, Palma á Mallorka á Spáni og endað í Barcelona. Þar gistum við í tvær nætur áður en við fljúgum heim með Icelandair.

Glæsiskipið Norwegian Viva

Norwegian Viva er 155,873 brúttótonn, 294 metrar á lengd og tekur 3.195 farþega. Áhöfnin er 1.506 og ganghraði er 20 hnútar. Viva er glæsilegur farkostur þar sem smekkleg hönnun og lúxus er einkenni þess. Það er hreint ævintýri að sigla með skipinu. Viva er næst nýjasta skip Norwegian Cruise Line, byggt 2023 og er afar smekklega innréttað.

Verð á mann í tvíbýli í innklefa 680.000 kr. 

Verð á mann í tvíbýli í svalaklefa 795.000 kr. 

Innifalið

  • Flug fram og til baka.
  • Allur akstur milli flugvallar, hótels og skips.
  • Gisting með morgunverði á hótelinu.
  • Níu nátta sigling.
  • Íslensk fararstjórn.
  • Fullt fæði í skipinu.
  • Öll skemmtidagskrá um borð.
  • Þjórfé.
  • More At Sea drykkjarpakki: Innfelur mikið úrval af áfengum drykkjum með örfáum undantekningum. Allir gosdrykkir og óáfengir drykkir innifaldir nema vatn á flöskum, nýkreistur aldinsafi og kaffi á Starbuck. ATH: skattur getur lagst á drykkir og mat í sumum höfnum og fer sá kostnaður á reikning viðkomandi viðskiptavinar.Innifelur ekki Mini Bar í klefum, Connoisserur‘s Collection, léttvíns og vínkynningar eða sértilboð á bjórfötum. Allt vín og kokteilar eru bornir fram í glösum, bjór er borinn fram í glösum eða flöskum.
  • Matarpakkinn: Út að borða á sérreknu veitingastöðunum: Svalaklefi: 7 daga sigling 3 sinnum út að borða, 8-11 daga sigling 4 sinnum út að borða og 12 dagar og meira 5 sinnum út að borða. Gildir fyrir allt að 3 í svalaklefa. Innklefi og Stúdío: 7 daga sigling: 1 sinni út að borða, 8-11 daga sigling: 2 sinnum út að borða og 12 dagar og lengra, 3 sinnum út að borða.
  • WiFi: 150 mínútur á þráðlausa netinu um borð. Gildir fyrir allt að 3 saman í klefa.
  • Skoðunarferðapakki: 50 dollara inneign á klefa per höfn til að nota í skoðunarferðir. Safnast ekki upp ef ekki er notað.

Ekki innifalið

  • Skoðunarferðir í landi á vegum skipafélagsins ef fólk fer í þær.
  • Ferða- og forfallatryggingar.

Kort af ferðinni

FerðalýsingPrenta ferðalýsingu

12. júní | Keflavík – Feneyjar

Flogið með Icelandair og til Feneyja. Brottför kl.08:20 og lent í Feneyjum kl. 15:00 Ekið til hótels í Mestre (Feneyjar). Gistum þar í þrjár nætur.

13. -14. júní | Feneyjar

Notum dagana til að skoða Feneyjar enda margt og mikið að sjá í þeirri merku borg. Fararstjóri fer annan daginn með það sem vilja í göngutúr um Feneyjar.

15. júní | Siglingin hefst

Brottför frá hóteli um kl.10:00. Um tvo tíma tekur að aka til Ravena. Viva leggur úr höfn klukkan 16:00.

Opna allt

16. júní | Kotor

Komið til Kotor 13:00 og farið kl. 23:59. Kotor í Svartfjallalandi hét einu sinni “Cattaro” og tilheyrði Ítalíu. hér búa um 13.000 manns, bærinn er afar fallegur og hefur mikla sögu. Bærinn stendur við Kotor flóa og umhverfið er afar mikilfenglegt. Kotor er afar vinsæll komustaður skemmtiferðaskipa í Króatíu er oft kölluð “Perla Eyjaálfunnar” og er einhver skemmtilegasta borg sem skemmtiferðaskip koma til. Borgin er girt 13. aldar virkisveggjum, fræg fyrir gamlar sögufrægar bygginar, götur iðandi af mannlífi, veitingastöðum og fallegri strandlengju.

17. júní | Dubrovnik

Komið til Dubrobnik 07:00 og farið kl. 16:39. Tökum rútu upp að gamla bænum og röltum þar um.

18. júní | Á siglingu

Nú er bara að njóta alls þess sem í boði er um borð.

19. júní | Salerno

Komið kl.07:00 og farið kl.18:00. Salerno er forn borg við Salerno flóa. Landslagið umhverfis borgina er afar fallegt og stutt frá er hin fræga Amalfi strönd. Í Salerno var fyrsti læknaskóli Evrópu og borgin býr yfir mikilli sögu. Borgin státar af fjölda veitingahúsa, mannlífi og mörgu fleiru.

20. júní | Róm (Civitavecchia)

Komum til Civitavecchia kl 06:45 og farið aftur kl 17:00.
Hin sögufræga Róm er ein frægasta borg í heimi. Hægt er að bóka skemmtilegar skoðunarferðir til borgarinnar á vegum skipsins. Öryggið við að bóka í skipsferð er að ef seinkun verður þá bíður skipið en ekki eftir þeim sem eru á eigin vegum.

21. júní | Livorno

Komið til Livorno kl.07:00 og farið kl.22:00.
Nú erum við komin í Toskana héraðið norðarlega á Ítalíu. Héðan er stutt til Pisa og Flórens auk þess sem mjög gaman er að skoða Cinque Terre, litlu þorpin fimm sem eru byggði við jafnmargar víkur.

22. júní | Nice (Monaco)

Komið til Nice kl.07:00 og farið kl. 18:00. Nice hefur viðurnefnið “Nice la Bella” sem þýðir Nice fallega. Ein af fegurstu borgum Frakklands og þaðan er stutt að fara til Monaco eða um háftíma akstur. Hægt að bóka sig í margar skoðunarferðir frá skipinu til Monaco og víðar.

23. júní | Palma Mallorka

Komið til Palma kl. 13:00 og farið kl. 21:00. Palma er höfuðborg Mallorka, afar falleg og skemmtileg borg sem gaman er að skoða.

24. júní | Barcelona – Siglingu lýkur

Komið til Barcelona kl. 06:30 og við förum til hótels um kl.09:00 eftir að hafa snætt morgunmat um borð. Barcelona er höfuðborg Katalóníu þekkt fyrir sögufrægar byggingar, iðandi mannlíf og fallega strönd.

25. júní | Barcelona

Notum daginn til að skoða Barcelona, röltum niður Römbluna eða förum á ströndina.

26. júní | Barcelona – Keflavík

Notum daginn til að skoða Barcelona, röltum niður Römbluna eða förum á ströndina.

Myndir úr ferðinni

Fararstjórn

Kjartan Már Hallkelsson

Kjartan er stúdent frá Versló, íþróttafræðingur frá Laugarvatni og hefur rekið eigin fyritæki lengi. Kjartan hefur mikla reynslu af ferðlögum og mannlegum samskiptum. 

Senda fyrirspurn um ferð


bokun@baendaferdir.is
Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Sími: 570 2790




Póstlisti