24. maí - 5. júní 2026 (13 dagar)
Flogið til Rómar með Icelandair. Gistum í þrjár nætur fyrir siglinguna og förum síðan í 9 nátta siglingu með NCL Viva einu nýjasta skipi NCL sem er afar glæsilegt, þar sem komið er við í Salerno, Catania á Ítalíu, Valetta á Möltu, Aþenu í Grikklandi, Santorini eyjunni frægu, Izmir í Tyrklandi og Istanbul í Tyrklandi þar sem er gist er eina nótt um borð í Viva. Þar förum við frá borði og við fljúgum heim með Turkis Airline og Icelandair.
Glæsiskipið Norwegian Viva
Norwegian Viva er 155,873 brúttótonn, 294 metrar á lengd og tekur 3.195 farþega. Áhöfnin er 1.506 og ganghraði er 20 hnútar. Viva er glæsilegur farkostur þar sem smekkleg hönnun og lúxus er einkenni þess. Það er hreint ævintýri að sigla með skipinu.