2605. Eyjahafið frá Aþenu til Feneyja - maí

Flogið til Aþenu með Icelandair og SAS. Brottför frá Keflavík kl.07:40 og lent í Kaupmannahöfn kl. 12:55. Brottför með SAS kl.14:30 og lendum í Aþenu kl.18:50. Gistum í þrjár nætur og förum síðan í 7 nátta siglingu með NCL Pearl frá Aþenu (Pireus) þar sem komið er við í Mykonos í Grikklandi, Olympia Katakolon í Grikklandi, Corfu í Grikklandi, Kotor í Svartfjallalandi, Split í Króatíu, Koper í Slóveníu og svo endað í Ravena (Feneyjum). Ekið til Feneyja og þar gistum við í tvær nætur áður en við fljúgum með AIT Airways og Icelandair heim. Brottför frá Feneyjum kl. 11:20 og lent í Róm kl.12.30. Brottför með Icelandair frá Róm kl.16:20 og lent í Keflavík kl.19:10

Norwegian Pearl er glæsilegt skemmtiferðaskip.
Þyngd: 93,530 brúttótonn
Lengd: 294 metrar
Breidd: Næstum 38 metrar
Farþegar: Getur borið 2,344 farþega
Áhöfn: 1,072 manns
Byggt: 2006
Endurbætur: Fór í mikla yfirhalningu árið 2021

Verð á mann í tvíbýli í innklefa 600.000 kr. 

Verð á mann í tvíbýli í svalaklefa 740.000 kr. 

840.000 kr. fyrir einbýli í innklefa

980.000 kr. fyrir einbýli í svalaklefa

Innifalið

  • Flug fram og til baka.
  • Allur akstur milli flugvallar, hótels og skips.
  • Gisting með morgunverði á hótelinu.
  • Sjö nátta sigling.
  • Íslensk fararstjórn.
  • Fullt fæði í skipinu.
  • Öll skemmtidagskrá um borð.
  • Þjórfé.
  • More At Sea drykkjarpakki: Innfelur mikið úrval af áfengum drykkjum með örfáum undantekningum. Allir gosdrykkir og óáfengir drykkir innifaldir nema vatn á flöskum, nýkreistur aldinsafi og kaffi á Starbuck. ATH: skattur getur lagst á drykkir og mat í sumum höfnum og fer sá kostnaður á reikning viðkomandi viðskiptavinar.Innifelur ekki Mini Bar í klefum, Connoisserur‘s Collection, léttvíns og vínkynningar eða sértilboð á bjórfötum. Allt vín og kokteilar eru bornir fram í glösum, bjór er borinn fram í glösum eða flöskum.
  • Matarpakkinn: Út að borða á sérreknu veitingastöðunum: Svalaklefi: 2 sinnum út að borða, Innklefi : 1 sinni út að borða.
  • WiFi: 150 mínútur á þráðlausa netinu um borð. Gildir fyrir allt að 3 saman í klefa.
  • Skoðunarferðapakki: 50 dollara inneign á klefa per höfn til að nota í skoðunarferðir. Safnast ekki upp ef ekki er notað.

Ekki innifalið

  • Skoðunarferðir í landi á vegum skipafélagsins ef fólk fer í þær.
  • Ferða- og forfallatryggingar.

Kort af ferðinni

FerðalýsingPrenta ferðalýsingu

7. maí | Keflavík – Aþena

Flogið til Aþenu með Icelandair og SAS. Brottför frá Keflavík kl.07:40 og lent í Kaupmannahöfn kl. 12:55. Brottför með SAS kl.14:30 og lendum í Aþenu kl.18:50. Gist þar í þrjár nætur á Hótel Stanley 4 stjörnu hóteli í miðborg Aþenu skammt frá Akrapolis. Hér er hægt að skoða hótelið: www.thestanley.gr

8. – 9. maí | Aþena

Notum dagana til að skoða Aþenu enda margt og mikið að sjá í þeirri merku borg, kíkja á Acropolis, Ólympíuleikvanginn og rölta um í Plaka, gamla bænum við rætur Acrapolis. Höfuðborg Grikklands er full af sögu og fallegum minnisvörðum um þá sögu.

10. maí | Siglingin hefst

Brottför frá hóteli um kl.11:00. Pearl leggur úr höfn klukkan 17:00.

Opna allt

11. maí | Mykonos

Leggjum að bryggju eða vörpum ankerum úti fyrir eynni kl 07:00 og dveljum þar til kl 17:00. Skemmtileg eyja og Mykonos bærinn er sérlega skemmtilegur og gaman að labba þar um og villast í þröngum og óskipulögðum götum bæjarins. Mykonos er grísk eyja í Eyjahafi og hluti af Kýklöðum. Hún er fræg fyrir hvítkalkaðar byggingar, þröngar steinlagðar götur og bláan sjó. Eyjan er vinsæl fyrir fallegar strendur og líflegt næturlíf, sérstaklega yfir sumartímann. Þekkt kennileiti eru vindmyllurnar í Mykonos-bæ og svæðið Litla Feneyjar við höfnina. Mykonos er þekkt fyrir sólríkt veður, fallegt umhverfi og líflega stemningu.

12. maí | Katakolon & Olympia

Komið til Katakolon 09:00 og farið kl. 19:00. Lítill bær, aðeins um 500 íbúar, og tilvalið að fara upp í Olympíu hina fornu og skoða meðal annars staðinn þar sem ólympíueldurinn er kveiktur í aðdraganda Ólympíuleikanna. Í Katakolon er líka pínulítið safn sem vert er að skoða.

13. maí | Corfu í Grikklandi

Þá erum við komin til eyjunnar Corfu. Lagt að bryggju kl 07:00 og farið á ný kl 17:00. Fallegur bær og gaman að fara upp í gamla kastalann sem er þar.

14. maí | Kotor

Vörpum ankerum kl 07:30 og farið aftur kl 18:00. Falleg sigling inn að þessum bæ. Farið í land með léttabátum. Skemmtilegur lítill bær sem gaman er að rölta um.

15. maí | Split

Vörpum ankerum kl 07:00 og farið aftur kl 17:00. Falleg sigling inn að þessum bæ. Split er sögufræg borg með marga áhugaverða staði, skemmtileg veitingahús og krár. Borgin er þekkt fyrir frábæra sjávarrétti og skemmtilegar krár. Einnig er ströndin afar falleg.

16. maí | Koper

Komið til Koper kl.08:00 og farið kl.19:00. Koper er fimmta stærsta borg Slóveníu. Staðsett í Istran héraðinu i suðvestur hluta landsins. Mjög skemmtileg borg og margt að skoða þar.

17. maí | Feneyar (Ravena)

Komið til Ravena kl.06:00. Ekið til Mestre kl. 09:00 og á hótelið okkar, Ambasciatori Mestre sem er glæsilegt fjögurra stjörnu hótel. Við gistum í Mestre (Feneyjum) í tvær nætur. Fararstjóri fer með þá sem vilja í labbitúr um Feneyjar.

18. maí | Feneyjar (Mestre)

Notum daginn til að skoða Feneyjar enda margt og mikið að sjá í þeirri merku borg. Einnig er gaman að kíkja á Mestre, bæinn sem við gistum í.

19. maí | Heimferð Feneyjar – Keflavík

Flogið með AIT Airways og Icelandair heim. Brottför frá Feneyjum kl. 11:20 og lent í Róm kl.12.30. Brottför með Icelandair frá Róm kl.16:20 og lennt í Keflavík kl.19:10

Myndir úr ferðinni

Fararstjórn

Skúli Unnar Sveinsson

Skúli er stjórnmálafræðingur að mennt, starfaði lengi við blaðamennsku og við leiðsögn hjá Samvinnuferðum og Terra Nova á árum áður.

Skúli hefur mikla reynslu af því að sigla með hópa í skemmtisiglingum enda er oft sama fólkið að sigla með honum ár eftir ár.

Senda fyrirspurn um ferð


bokun@baendaferdir.is
Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Sími: 570 2790




Póstlisti