2604. Stóra Ameríkusiglingin um Panamaskurðinn í apríl

Miami til Seattle um Panamaskurðinn
Þetta er 25 daga ferð þar sem við skoðum marga áhugaverða staði auk þess að gista tvær nætur í Orlando. Í siglingunni er dvalið i tvo daga í San Francisko. Flogið með Icelandair til Orlando, brottför kl.16:45 og lent í Orlando kl.20;45 og gist þar í tvær nætur. Siglt er frá Miami 11. apríl vestur Karíbahaf. Komið við í Cartagena í Kólombíu, Colón, siglum upp Panama skipastigann, Gatun vatn, Panamaborg, Puerto Caldera Puntarenas í Costa Rica, Puerto Quetzal í Guatemala, Acapulco í Mexikó, Cabo San Lucas í Mexíkó, San Francisko, Astoria (Oregon), Victoria í Kanada og síðan Seattle þar sem siglingu lýkur.

Glæsiskipið Norwegian Encore
Norwegian Encore var smíðað 2019. Það er rúmlega 169.000 brúttótonn, 333 m á lengd og 41 metri á breidd. Það rúmar 3.958 farþega og í áhöfn eru 1.735 manns. Um borð er fjöldi veitingastaða, barir, diskótek, sundlaugar, heitir pottar, líkamsrækt, spa, leikhús sem tekur yfir 1000 manns í sæti og margt fleira. Skipið er afar glæsilega innréttað og þar fer ákaflega vel um farþega.

Ath: Hægt að bæta við viku siglingu til Alaska í framhaldi með sama skipi.

Verð á mann í tvíbýli í innklefa 900.000 kr. 

Verð á mann í tvíbýli í svalaklefa 1.290.000 kr. 

1.130.000 kr. fyrir einbýli í innklefa

1.780.000 kr. fyrir einbýli í svalaklefa

Innifalið

  • Flug fram og til baka.
  • Allur akstur milli flugvallar, hótels og skips.
  • Gisting með morgunverði á hótelinu.
  • Tuttugu og þriggja nátta sigling.
  • Íslensk fararstjórn.
  • Fullt fæði í skipinu.
  • Öll skemmtidagskrá um borð.
  • Þjórfé.
  • More At Sea drykkjarpakki: Innfelur mikið úrval af áfengum drykkjum með örfáum undantekningum. Allir gosdrykkir og óáfengir drykkir innifaldir nema vatn á flöskum, nýkreistur aldinsafi og kaffi á Starbuck. ATH: skattur getur lagst á drykkir og mat í sumum höfnum og fer sá kostnaður á reikning viðkomandi viðskiptavinar.Innifelur ekki Mini Bar í klefum, Connoisserur‘s Collection, léttvíns og vínkynningar eða sértilboð á bjórfötum. Allt vín og kokteilar eru bornir fram í glösum, bjór er borinn fram í glösum eða flöskum.
  • Matarpakkinn: Út að borða á sérreknu veitingastöðunum: Svalaklefi: 7 daga sigling 3 sinnum út að borða, 8-11 daga sigling 4 sinnum út að borða og 12 dagar og meira 5 sinnum út að borða. Gildir fyrir allt að 3 í svalaklefa. Innklefi og Stúdío: 7 daga sigling: 1 sinni út að borða, 8-11 daga sigling: 2 sinnum út að borða og 12 dagar og lengra, 3 sinnum út að borða.
  • WiFi: 150 mínútur á þráðlausa netinu um borð. Gildir fyrir allt að 3 saman í klefa.
  • Skoðunarferðapakki: 50 dollara inneign á klefa per höfn til að nota í skoðunarferðir. Safnast ekki upp ef ekki er notað.

Ekki innifalið

  • Skoðunarferðir í landi á vegum skipafélagsins ef fólk fer í þær.
  • Ferða- og forfallatryggingar.

Kort af ferðinni

FerðalýsingPrenta ferðalýsingu

9. apríl | Keflavík – Orlando

Flogið til Orlando með Icelandair, brottför kl. 16:45 og lent í Orlando kl. 20:45. Þar gistum við í tvær nætur á Florida Mall hótelinu með Florida Mall verslunarmiðstöðina sambyggða við hótelið.

10. apríl | Orlando

Frjáls dagur í Orlando, golf, sólbað, skemmtigarðar eða verslanir, bara það sem fólk vill.

11. apríl | Sigling hefst

Farið frá hótelinu eftir morgunverð og til Miami þar sem Encore bíður okkar. Lagt úr höfn kl. 16:30.

Opna allt

12. – 13. apríl | Á siglingu

Verðum á siglingu báða dagana og um að gera að njóta alls þess sem skipið hefur upp á að bjóða.

14. apríl | Kólombía, Cartagena

Komið til Cartagena í Kólombíu kl 07:00 og farið kl 16:00. Cartagena er aðal hafnarborg norður Kólombíu og gengdi lykil hlutveri í Vestur India leiðinni. Borgin hefur mikið sögulegt gildi og áhugaverður staður til að skoða.

15. apríl | Colón, Panama

Colón er borg og höfn í Panama, við Karíbahaf, nálægt inngangi Atlantshafsins í Panama-kanalinn. Hún er höfuðborg Colón-héraðs í Panama og er spennandi áfangastaður þar sem margt er að sjá. Komið til Cólon kl. 8:30 og farið kl. 19:00.

16. apríl | Panama City

Förum upp skipastigann snemma morguns, siglum á Gatun vatninu í björtu og förum síðan niður á ný, en nú Kyrrahafsmegin.

17. apríl | Á siglingu

Verðum á siglingu allan daginn. Þá er hægt að kíkja í laugina, fara á bókasafnið eða bara slappa af og gera ekki neitt.

18. apríl | Puerto Caldera Costa Rica

Komum kl. 7:00 og förum kl. 20:00. Puerto Caldera er ein vinsælasti áfangastaður skemmtiferðaskipa í Costa Rica.

19. apríl | Á siglingu

Alltaf nóg um að vera um borð, sólbað, kíkja í líkamsræktina eða heilsulindina, alls konar námskeið og margt fleira.

20. apríl | Puerto Quetzal Guatemala

Komum til Puerto Quetzal í Guatimala kl 07:00 og förum á ný kl 17:00. Puerto Quetzal er stærsta hafnarborg Kyrrahafs og mikið um að vera þar. Hægt að bóka náttúruskoðunarferðir, fiskitúra og margt fleira.

21. apríl | Á siglingu

Á sjó. Kíkja í laugina, fara á bókasafnið eða bara slappa af og gera ekki neitt.

22. apríl | Acapulco Mexico

Komið hingað kl 07:00 og farið á ný kl 18:00. Acapulco var einu sinni eftirsóttur staður af Holliwood kvikmyndastjörnum og efnuðu fólki. Acapulco er fræg fyrir strendur og strandhótel enda veðurfarið afar hagstætt sóldýrkendum. Acapulco er nefnd “Rivera Mexikó” með öll lúxushótelin og einnig er hægt að fara í fiskitúra sem Acapulco er þekkt fyrir.

23. apríl | Á siglingu

Síðasta tækfifærðið til að gera eitthvað skemmtilegt um borð á meðan við tökum stefnuna á Puerto Vallarta. Hvers vegna ekki að prófa kappaksturbrautina?

24. apríl | Puerto Vallarta

Puerto Vallarta er mjög eftirsóttur staður af Bandarískum og Kanadískum ferðamönnum. Bærinn er staðsettur á Kyrrahafsstönd Mexikó í Jalisco fylki. Bærinn er þekktur fyrir strandir, náttúrufegurð og fiskveiðiferðir.

25. apríl | Capo San Lucas Mexikó

Komum kl 07:00 og förum frá borði um kl 15:00. Capo San Lucas oft nefnd Cabo er borg við suðurenda Baja Caliornia skagans. Borgin er þekkt fyir fallegar strendur og fjölbreytta náttúru.

26. apríl | Á siglingu

Í dag hlöðum við batteríin og slökum á.

27. apríl | Á siglingu

Í dag hlöðum við batteríin og slökum á um borð í skipinu.

28. apríl | San Francisko þar sem stoppað er í tvo daga

Komið kl. 09:00. San Francisko er ein frægasta borg Bandaríkjana. Fræg fyrir hæðótt stræti þar sem til dæmis kvikmyndin Bullit með Steve McQueen í aðalhutverki á Mustang Fastback 1969 var tekin og hann eltur af vondu körlunum sem óku Dodge Charger 1968 með hinni öflugu 440 kúbika vél. Rétt úti í flóanum er hin fræga eyja Alcatrash með fangelsinu fræga. Við mælum með skoðunarferð þangað, hverrar mínútu virði. Gamli bærinn ofan við höfnina er frægur fyrir byggingar og sögu en látið ykkur ekki bregða, vörumerki San Fransancisko eru útgigangsmennirnir sem halda til í miðbænum. Golden Gate brúin fræga er ekki langt undan, sæljónin við höfnina er mjög gaman að sjá og margt fleira. Engum ætti að leiðast í þessari frábæru borg.

29. apríl | San Francisco

Höldum áfram að njóta í San Francisco, slaka á eða skoða áhugaverða staði eins og Alcatraz fangelsið. Eða bara smakka mat og drykk á frábærum veitingastöðum borgarinnar eða rölta meðfram ströndinni.


Encore siglir úr höfn kl.18:00.

30 apríl | á siglingu

Síðasta tækifærið til að gera eitthvað skemmtilegt um borð á meðan við tökum stefnuna á Astoria (Oregon). Hvers vegna ekki að skella sér á leiksýningu?

1. maí | Astoria (Oregon)

Skipið siglir í höfn í Astoria, Oregon kl. 08:00 og fer svo þaðan kl. 16:00. 

ASTORIA í Oregon er 10.000 manna bær sem stendur á bökkum Columbia árinnar alveg úti við Kyrrahafið. Bærinn er frá árinu 1811 og var í raun fyrsti ameríski bærinn vestan Rocky Mountain, eða Klettafjalla eins og við köllum fjallgerðinn á íslensku.

Fiskveiðar voru aðal atvinnuvegurinn á 20 öldinni, mikið var veitt af Kyrrahafs laxi og mikil umsvif í kring um það allt til ársins 1975 að stærstu fyrirtækin fluttu starfsemi sína úr bænum. Það eina sem í raun er eftir af þessu blómaskeiði er árleg hátíð í lok febrúar ár hvert þar sem fólk sem tengist fiskveiðum á svæðinu, kemur saman og er þetta kallað Fiski – ljóða hátíðin. Þar eru ljóð saman, sungið um fiskveðir og annað í þeim dúr. Þetta byrjaði árið 1998 með því að nokkrir kunningjar hittust á krá í bænum og fóru með ljóð um fiskveiðarnar á svæðinu og hefur nú heldur betur undið upp á sig.

Bíómyndin The Goonies var tekinn upp þarna og hægt er að kíkja á safnið um gerð bíómyndarinnar, einnig er gaman að rölta á árbakkanum, kíkja í miðbæinn og kíkja á Sjóminjasafnið.

2. maí | Victoria í Bresku Kolombíu

Komið kl. 16:00 og farið kl. 23:59. Vicotoria er höfuðborg Bresku Kolombíu í Kanada. Hér búa ríflega 90.000 manns og er borgin ein þéttbýlasta borg í Bresku Kolombíu þekkt fyrir sögufrægar bygginar og náttúru.

3. maí | Seattle - siglingu lýkur

Komið til Seattle kl.07:00 og eftir morgunverð er farið í skoðunarferð um borgina og endað á flugvellinum. Heimflug með Icelandair. Brottför kl.19:00 og lent að morgni 4 maí kl.09:25 í Keflavík.

Myndir úr ferðinni

Fararstjórn

Sigrún Jónsdóttir

Sigrún hefur mikla reynslu sem fararstjóri og leiðsögumaður, bæði hér heima og eins erlendis. Hún lauk námi vð Leiðsögumannaskólann 1987 og lærði mannfræði við Háskóla Íslands og hefur starfað við leiðsögn meira og minna frá árinu 1986. 

Senda fyrirspurn um ferð


bokun@baendaferdir.is
Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Sími: 570 2790




Póstlisti