2614. Jól í Karíbahafi með Escape
21. desember 2026 - 3. janúar 2027 (13 dagar)
Flogið til Orlando með Icelandair 21. desember, gist í tvær nætur fyrir siglinguna á Florida Mall hótelinu og síðan þrjár nætur þar eftir siglinguna. Siglt frá Port Canaveral í Flórída og komið við í Puerto Plata í Dóminíkanska lýðveldinu, St Thomas, Tortola og á Great Stirrup Cay, sem er lítil eyja sem skipafélagið á og loks aftur til Port Canaveral. Gistum þrjár nætur á Florida Mall Hotel og fljúgum heim 2. janúar, lendum snemma morguns 3. janúar 2027.
Glæsiskipið Norwegian Es
Norwegian Escape er 164. 998 brúttótonn, 326 metrar á lengd og tekur 4.218 farþega. Áhöfnin er 2.022 og ganghraði er 20 hnútar. Escape er glæsilegur farkostur þar sem smekkleg hönnun og lúxus er einkenni þessa. Það er hreint ævintýri að sigla með skipinu.