Á gönguskíðum í Seefeld 1

Kennslu- og æfingaferð á gönguskíðum í skemmtilegum félagsskap og fallegu umhverfi er sannkallaður draumur útivistarfólks. Seefeld býður upp á allt það besta til að gera ferðina að ógleymanlegu vetrarævintýri. Svæðið við Seefeld er einstaklega fallegt og fjölbreytt. Skíðabrautir svæðisins eru rúmlega 245 km langar en þær eru í um 1.200 m hæð yfir sjávarmáli. Gist verður á glæsilegu 4* hóteli í bænum þar sem fullt fæði er innifalið. Á hótelinu er notaleg heilsulind með sundlaug, sauna og eimbaði. Flogið er með Icelandair til München og ekið sem leið liggur til Seefeld en þangað eru um 160 km.

Í þessari ferð er skipulögð skíðagöngukennsla og því hentar hún bæði byrjendum sem lengra komnum.

Fararstjórn: Anna Sigríður Vernharðsdóttir
Skíðakennsla: Sveinbjörn Sigurðsson & Ólafur Thorlacius Árnason

Verð á mann í tvíbýli 389.900 kr.

Aukagjald fyrir einbýli 23.100 kr.


Innifalið

  • Flug með Icelandair og flugvallarskattar.
  • Ferðir á milli flugvallarins í München og hótelsins í Seefeld.
  • Gisting í tveggja manna herbergi með baði á fjögurra stjörnu hóteli.
  • Fullt fæði:
  • Morgunverðarhlaðborð.
  • Léttur hádegisverður með súpu dagsins.
  • Síðdegishressing með gómsætu sætabrauði.
  • Vel útilátinn 4ra rétta kvöldverður með salathlaðborði.
  • Allir drykkir frá 11:00 – 22:00. 
  • Þemakvöldverður eitt kvöldið.
  • Aðgangur að heilsulind hótelsins.
  • Kort í skíðagöngubrautir svæðisins.
  • Íslensk fararstjórn.

Ekki innifalið

  • Aukagjald fyrir skíði í flug.
  • Forfalla- og ferðatrygging.
  • Þjórfé.

Myndband - Seefeld - paradís skíðagöngufólks

Kort af ferðinni

FerðalýsingPrenta ferðalýsingu

Nánar um ferðina

Í ferðinni verða bæði fararstjóri og skíðakennarar. Fyrir þá sem það vilja verða skíðakennarar með æfingar og kennslu flesta daga og oft er einhver dagskrá bæði fyrir og eftir hádegi. Því er upplagt að nýta sér kennsluna hálfan daginn og æfa sig sjálfur hálfan daginn. Kennslan verður fjölbreytt og skipt er í hópa eftir getu. Þeir sem vilja frekar njóta þess að skíða á sínum eigin forsendum í dásamlegu umhverfi gera það. Markmiðið er að allir njóti sín við bestu mögulegu aðstöðu sem Alparnir hafa upp á að bjóða. 

Skíðasvæðið

Seefeld er 3.400 manna bær í um 1.200 metra hæð yfir sjávarmáli. Þessi huggulegi bær er einn vinsælasti ferðamannabærinn í Tíról. Seefeld hásléttan er umvafinn Wetterstein-, Mieminger- og Karwendelfjöllunum en hér áður var þetta mikið vatnasvæði eins og nafn bæjarins ber með sér. Ólympíuleikarnir í norrænum greinum voru haldnir þarna 1964 og 1976 og heimsmeistarakeppnin árið 1985 og aftur árið 2019. Seefeld hefur nokkrum sinnum verið valið besta skíðagöngusvæðið í Evrópu. Á Seefeld svæðinu má finna fjöldann allan af skíðagöngubrautum enda eru skíðabrautir svæðisins rúmlega 245 km langar og henta jafnt byrjendum sem og lengra komnum. Svæðið er fimm stjörnu skíðagöngusvæði og er sökum staðsetningar sinnar á hásléttunni snjóöruggt. Skíðagöngubrautirnar eru samtengdar fimm þorpum á svæðinu þ.e. Seefeld, Leutasch, Möseren, Reith og Scharnitz og því hægt að fara nýjar og spennandi leiðir á hverjum degi. Einnig er upplagt að taka kláfinn upp á Roshütte fjallið í 1784 m hæð og njóta stórfenglegs útsýnis til allra átta en þar er vinsæll veitingaskáli.

Vefsíða Seefeld.

Vefsíða skíðasvæðisins í Seefeld.

Flugið

Flogið verður með Icelandair til München þann 17. janúar. Brottför frá Keflavík kl. 7:20 en mæting í Leifsstöð u.þ.b. 2,5 klst fyrir brottför. Lending í München kl. 12:05 að staðartíma. Frá flugvellinum í München eru um 160 km til Seefeld svo gera má ráð fyrir að rútuferðin taki um 2,5 klst. Á brottfarardegi leggjum við snemma af stað út á flugvöll og síðan er flogið heim kl. 13:00 frá München. Lending á Íslandi kl. 16:00. 

Myndir úr ferðinni

Fararstjórn

Anna Sigríður Vernharðsdóttir

Anna Sigríður Vernharðsdóttir er hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir og starfar sem ljósmóðir hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Hún var á árum áður félagi í Hjálparsveit skáta Kópavogi og var um tíma yfirleiðbeinandi Björgunarskólans í fyrstu hjálp.

Anna Sigga, eins og hún er alltaf kölluð, hefur áhuga á alls konar útivist og nýtir hvert tækifæri til ævintýra og útivistar. Fjallgöngur, hjólreiðar og skíðaganga eru í uppáhaldi.

Sveinbjörn Sigurðsson

Sveinbjörn Sigurðsson starfar sem sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfari við Sjúkraþjálfarann í Hafnarfirði. Hann hefur mikla reynslu af þjálfun enda þjálfaði hann í 30 ár bæði handbolta- og fótboltalið og síðustu 5 árin hefur hann komið að þjálfun skíðagöngufólks á höfuðborgarsvæðinu. Sveinbjörn hefur margþætta reynslu af hinum ýmsu keppnum bæði hér heima og erlendis og á síðustu árum hefur hann lagt meiri áherslu á skíðagöngu og skíðakennslu og sótt nær öll mót á Íslandi og helstu mót erlendis í þeirri grein.

Ólafur Thorlacius Árnason

Ólafur Thorlacius Árnason er fæddur og uppalinn á Ísafirði. Frá 9 ára aldri hefur skíðaganga verið partur af lífi Ólafs á einn eða annan hátt. Skíðagönguáhugi Ólafs jókst með árunum og árangurinn í keppnum líka. Á framhaldskólaaldri sannfærði Ólafur foreldra sína um að það væri komið nóg af skóla í bili og flutti til Noregs. Í Noregi naut Ólafur aðstoðar sumra af færustu þjálfurum Noregs og keppti í fjölda keppna þar í landi, víða í Evrópu og auðvitað heima á Íslandi. Í dag er Ólafur virkur meðlimur í Skíðagöngufélaginu Ulli þar sem áhuginn liggur aðallega í uppbyggingu skíðagöngustarfs fyrir börn og unglinga á höfuðborgarsvæðinu. Ólafur hefur lengi starfað sem leiðbeinandi bæði fyrir fullorðna og börn.

Hótel

Hótel Bergland

Gist verður allar næturnar á 4* hóteli í miðbæ Seefeld, Hótel Bergland. Fullt fæði er innifalið, morgunverðarhlaðborð, hádegissnarl með súpu dagsins, síðdegishressing með gómsætu sætabrauði  og á kvöldin er vel útilátin fjögurra rétta máltíð með salathlaðborði. Flestir drykkir frá 11:00 á morgnanna til 22:00 á kvöldin eru innifaldir. Notaleg heilsulind er á hótelinu með sundlaug, sauna, eimbaði með salt- og ilmstillingu, innrauðum hitaklefa og köldum kerum. Boðið er upp á nuddmeðferðir gegn gjaldi. Heilsubarinn býður svo upp á te, ávaxtasafa og hollustusnarl. Herbergin eru öll með baði/sturtu, hárþurrku, síma, sjónvarpi og öryggishólfi. Gestir fá baðslopp til afnota á meðan á dvölinni stendur. Ókeypis þráðlaust net er á hótelinu. 

Vefsíða hótelsins.

Senda fyrirspurn um ferð


bokun@baendaferdir.is
Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Sími: 570 2790

 

Tengdar ferðir




Póstlisti