Hótel Bergland

Hótel Bergland

Gist verður allar næturnar á 4* hóteli í miðbæ Seefeld, Hótel Bergland. Fullt fæði er innifalið, morgunverðarhlaðborð, hádegissnarl með súpu dagsins, síðdegishressing með gómsætu sætabrauði  og á kvöldin er vel útilátin fjögurra rétta máltíð með salathlaðborði. Allir drykkir frá 11:00 á morgnanna til 22:00 á kvöldin eru innifaldir. Notaleg heilsulind er á hótelinu með sundlaug, sauna, eimbaði með salt- og ilmstillingu, innrauðum hitaklefa og köldum kerum. Boðið er upp á ýmsar heilsumeðferðir gegn gjaldi. Heilsubarinn býður svo upp á te, ávaxtasafa og hollustusnarl. Herbergin eru öll með baði/sturtu, hárþurrku, síma, sjónvarpi og öryggishólfi. Gestir fá baðslopp til afnota á meðan á dvölinni stendur. Ókeypis þráðlaust net er á hótelinu. 

Vefsíða hótelsins.




Póstlisti