Parma & Prosecco á Ítalíu

29. september - 6. október 2026 (8 dagar)

Í þessari glæsilegu ferð sameinum við það allra besta sem Ítalía hefur upp á að bjóða, stórbrotið landslag, heimsklassa vín, óviðjafnanlega matarmenningu og borgir sem segja sögur alda. Við heimsækjum eitt frægasta vínræktarsvæði heims, Langhe, áður en við keyrum hina frægu Prosecco vínleið og smökkum á afurðum þessara vínræktarsvæða. Ein þekktasta sviðsmynd ástarinnar, og heimaborg Rómeó og Júlíu, er að finna í Verona. „Svarta gullið“, hágæða ítalskt balsamik edik, ásamt parma skinku og ostum bíður okkar í heimaborg Pavarotti og Ferrari, Modena. Í Bologna, oft nefnd matarhöfuðborg Ítalíu, fara bragðlaukarnir á flug þegar við röltum um lifandi götu- og matarmarkaði borgarinnar. Í Bologna förum við einnig um hin glæsilegu bogagöng, Portici, sem teygja sig vítt og breytt um borgina og endurspegla mismunandi stíla allt aftur að miðöldum. Uppruni parma skinkunnar frægu er að finna í borginni Parma, sem státar einnig af glæsilegum arkitektúr eins og hertogahöllinni, Teatro Farnese. Einstök ferð þar sem við ferðumst saman í gegnum menningu, bragð og töfra Ítalíu.

Verð á mann í tvíbýli 359.900 kr.

Aukagjald fyrir einbýli 57.600 kr.


Innifalið

  • 8 daga ferð.
  • Flug með Icelandair og flugvallarskattar.
  • Gisting í 2ja manna herbergi með baði.
  • Morgun- og kvöldverður á öllum hótelum.
  • Prosecco vínsmökkun með léttu snarli.
  • Valpolicella vínsmökkun með léttu snarli.
  • Balsamik edik smökkun.
  • Smökkun á ítölskum smáréttum í Mercato di Mezzo.
  • Parma og og Prosciuttu smökkun.
  • Allar skoðunarferðir með rútu samkvæmt ferðalýsingu.
  • Íslensk fararstjórn.

Ekki innifalið

  • Aðgangseyrir inn í söfn, hallir og kirkjur.
  • Hádegisverðir.
  • Þjórfé.
  • Ferða- og forfallatryggingar.

Nánari upplýsingar

Vert er að hafa í huga að þrátt fyrir að Bændaferðir séu alla jafna þægilegar rútuferðir er alltaf einhver ganga, t.d. í bæjarferðum. Margar evrópskar borgir eru bæði hæðóttar og ójafnar undir fæti og aðgengi að áfangastöðum þannig að leggja þarf rútunni mislangt frá. Ef þú hefur einhverjar vangaveltur varðandi þetta vinsamlegast ekki hika við að hafa samband við skrifstofu Bændaferða.

Kort af ferðinni

FerðalýsingPrenta ferðalýsingu

29. september | Flug til Mílanó & Terruggia

Brottför frá Keflavík kl. 09:00 en mæting 2,5 klst. fyrir flug. Lending í Mílanó kl. 15:10 að staðartíma. Eftir lendingu keyrum við til Terruggia, heillandi smábæjar í Piemonte héraði, sem þekkt er fyrir víngerð og matarmenningu. Hér slökum við á fyrstu nóttina og undirbúum okkur fyrir komandi daga sem verða fullir af einstökum upplifunum, allt frá frábærum vínum og ljúffengum réttum til sögulegra staða. Kvöldið er frjálst til að kanna nærliggjandi umhverfi, fá sér léttan kvöldverð og hvíla sig eftir ferðalagið.

30. september | Langhe héraðið & Barolo

Langhe héraðið er eitt þekktasta vínræktarsvæði heims, þar sem kastalar og hallir gnæfa á gróskumiklum hæðum yfir vínekrum sem teygja sig svo langt sem augað eygir. Sannkallað draumavæði fyrir vínunnendur. Við heimsækjum vínekru þar sem hinum frægu Nebbiolo vínberjum er umbreytt í Barolo, konung vínanna. Þetta djúprauða og kraftmikla vín hefur unnið hjörtu vínáhugafólks um allan heim. Eftir fræðslu um framleiðsluferlið fáum við að sjálfsögðu að smakka á afurðunum og njóta um leið einstaks útsýnis yfir sveitina. Að lokum gefst tækifæri til að rölta um nærliggjandi smábæi, dást að fallegu landslaginu og taka myndir af víðáttumiklu útsýninu.

1. október | Prosecco vínleiðin & Treviso

Eftir morgunverð bíður okkur skemmtilegur dagur þar sem ekin verður hin fræga Prosecco vínleið, þar sem gróskumiklar hæðir og vínekrur skapa stórbrotið landslag. Hér upplifum við hjarta freyðivínsins, Prosecco, í sínu náttúrulega umhverfi þar sem fegurð og bragð mætast. Við heimsækjum vínekru og fáum að smakka þetta létta og hressandi freyðivín. Síðdegis höldum við til Treviso, borgar sem minnir á litlu Feneyjar með rómantískum götum og síkjum. Hér gefst tími til að rölta um miðbæinn, njóta kaffibolla eða íss á torginu og láta borgarstemninguna ná tökum á sér.

Opna allt

2. október | Töfrandi Verona & Valpolicella

Í dag höldum við til einnar elstu og fegurstu borgar Ítalíu, Verona. Þetta er borg mikillar menningar, lista, rómantíkur og sviðsmynd einnar frægustu ástarsögu allra tíma, Rómeó og Júlíu eftir Shakespeare. Á rölti okkar um borgina með heimamanni skoðum við helstu kennileiti, meðal annars hinar rómantísku svalir Rómeós og Júlíu og eitt best varðveitta rómverska hringleikhúsið í heiminum, Arena di Verona. Eftir heillandi dag í Verona höldum við til Valpolicella, gróðursæls vínhéraðs og heimkynna Amarone vínsins. Hér fáum við innsýn inn í vínframleiðsluferlið og ljúkum yndislegum degi með því að njóta rauðvíns í hæsta gæðaflokki ásamt ljúffengu hnossgæti úr nærumhverfinu.

3. október | Modena & „svarta gullið“

Þennan ljúfa dag keyrum við um gróskumiklar sveitir Emilia-Romagna héraðsins með viðkomu í Modena, heimaborg Pavarotti og Enzo Ferrari. Borgin sameinar klassískan arkitektúr, lifandi listalíf og óviðjafnanlega matarmenningu. Við heimsækjum svokallað Acetaia þar sem gæða balsamik edik er framleitt. Við fáum að sjálfsögðu að smakka á þessu „svarta gulli“ ásamt parma skinku og hágæða ostum, bragðupplifun sem fangar kjarna ítalskrar menningar. Í lokin gefst tími til að rölta um litríkar götur miðbæjarins, kíkja inn í verslanir eða einfaldlega setjast bara niður og slaka á og njóta.

4. október | Bologna – hjarta ítalskrar matarmenningar

Þessi dagur mun kæta bæði bragðlauka og öll skynfæri því nú verður haldið til Bologna. Borgin sem oft er kölluð matarhöfuðborg Ítalíu, er þekkt fyrir lifandi matar- og götumarkaði þar sem lögð er áhersla á ferskt hráefni. Við byrjum að rölta um hin glæsilegu Portici göng, bogagöng sem teygja sig um 38 kílómetra um borgina. Þessi lausn var upphaflega hönnuð á miðöldum til að skapa skjól fyrir gangandi vegfarendur og auka rými fyrir verslanir og íbúðir. Göngin þykja algjört listaverk og endurspegla mismunandi stíla, allt frá gotneskum til endurreisnar. Eftir gönguna bíður okkar svo sannkölluð matarhátíð á matarmarkaðinum Mercato di Mezzo. Hér má finna allt frá ferskum pastaréttum, sælkera samlokum til hefðbundinna ítalskra kræsinga. Þessi dagur sameinar svo sannarlega menningu, sögu og mat.

5. október | Parma & Prosciutto smökkun

Það er komið að annarri heimsfrægri matarborg, Parma. Með heimamanni fáum við að kynnast sjarma og ríkri sögu borgarinnar áður en við heimsækjum framleiðanda sem fræðir okkur stuttlega um aldagamlar hefðir ásamt því að bjóða upp á smökkun á hinni frægu Prosciutto di Parma skinku og öðrum kræsingum svæðisins. Parma er ekki bara paradís fyrir bragðlaukana, borgin státar einnig af glæsilegum arkitektúr, eins og hertogahöllinni, Teatro Farnese og hinni stórkostlegu skírnarkapellu við dómkirkjuna.

6. október | Kveðjustund & heimflug frá Mílanó

Eftir dásamlega daga á ferð okkar um þessar matarmiklu og sögufrægu borgir er nú komið að kveðjustund. Flogið verður frá Mílanó. Brottför þaðan kl. 16:20 og lent í Keflavík kl 18:35 að staðartíma.

Fararstjóri getur fært dagskrárliði á milli daga eftir þörfum þegar komið er á staðinn.

Hótel

  • Terruggia – Hotel Ariotto
  • Ponti Sul Mincio – Relais Corte Cavalli
  • Salsomaggiore Terme – Grand Hotel Salsomaggiore

Myndir úr ferðinni

Fararstjórn

Unnur Jensdóttir

Unnur Jensdóttir hefur undanfarin 30 ár starfað sem tónlistarkennari á veturna og leiðsögumaður á sumrin. Hún er fædd og uppalin á Íslandi en er færeysk í móðurætt, talar færeysku og lítur á Færeyjar sem sitt annað heimaland. Unnur er einnig frönskumælandi og hefur dvalið langdvölum bæði í Frakklandi og Sviss.

Senda fyrirspurn um ferð


bokun@baendaferdir.is
Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Sími: 570 2790




Póstlisti