Dalmatíuströndin í Króatíu

Glæsileg ferð um töfrandi svæði við Dalmatíuströndina í Króatíu þar sem menning forfeðra svífur yfir. Sögulegir staðir frá tímum Rómverja, litríkar borgir og fagrar strendur taka á móti okkur. Flogið verður til Feneyja og gist fyrstu nóttina í hafnarborginni Trieste á Ítalíu. Nú bíður okkar aðaláfangastaður ferðarinnar, Biograd na Moru við Dalmatíuströndina í Króatíu. Frá Biograd höldum við í fjölmargar skemmtilegar skoðunarferðir, m.a. upplifum við ótrúlegt sjónarspil þegar við virðum fyrir okkur hina frægu fossa í Krk þjóðgarðinum og förum í sögufrægu borgina Split þar sem við heimsækjum Diokletian höllina. Því næst höldum við til Trogir, lítils bæjar á smáeyju sem tengd er meginlandinu en þar eru fjölmargar merkar byggingar varðveittar á heimsminjaskrá UNESCO. Einnig verður borgin Zadar heimsótt en þaðan er einstakt útsýni yfir hinar fjölmörgu króatísku eyjar. Endum þessa glæsilegu ferð með trompi í hinni fögru Ljubljana, höfuðborg Slóveníu, sem telst ein grænasta og líflegasta höfuðborg Evrópu. Á leiðinni þangað ætlum við að skoða hina víðfrægu Postojna dropasteinshella.

Verð á mann 369.900 kr.

Aukagjald fyrir einbýli 86.400 kr.


Innifalið

  • 11 daga ferð.
  • Flug með Icelandair og flugvallaskattar.
  • Gisting í 2ja manna herbergi með baði.
  • Morgunverður allan tímann á hótelum.
  • Sjö kvöldverðir á hótelum.
  • Allar skoðunarferðir með rútu samkvæmt ferðalýsingu.
  • Íslensk fararstjórn.

Ekki innifalið

  • Aðgangseyrir inn í söfn, hallir og kirkjur.
  • Kláfar eða stólalyftur upp á fjöll.
  • Siglingar.
  • Hádegisverðir.
  • Þrír kvöldverðir.
  • Vínsmökkun.
  • Þjórfé.

Valfrjálst

  • Krka þjóðgarðurinn og fossar u.þ.b. € 32.
  • Postojna dropasteinshellar u.þ.b. € 35.

Nánari upplýsingar

Vert er að hafa í huga að þrátt fyrir að Bændaferðir séu alla jafna þægilegar rútuferðir er alltaf einhver ganga, t.d. í bæjarferðum. Margar evrópskar borgir eru bæði hæðóttar og ójafnar undir fæti og aðgengi að áfangastöðum þannig að leggja þarf rútunni mislangt frá. Ef þú hefur einhverjar vangaveltur varðandi þetta vinsamlegast ekki hika við að hafa samband við skrifstofu Bændaferða.

Kort af ferðinni

FerðalýsingPrenta ferðalýsingu

8. september | Flug til Feneyja & akstur á hótel í Trieste

Brottför frá Keflavík kl. 08:20. Mæting í Leifsstöð u.þ.b. 2,5 klst. fyrir brottför. Lending í Feneyjum kl. 15:00 að staðartíma. Við höldum til hafnarborgarinnar Trieste á Ítalíu en skipulag þessarar fallegu borgar ber keim af austurrískum, ungverskum og slóvenskum áhrifum. Gist verður eina nótt í borginni. Sameiginlegur kvöldverður á hóteli.

9. september | Dalmatíuströndinni & Biograd na Moru í Króatíu

Nú verður haldið áfram suður til Dalmatíustrandarinnar í Króatíu þar sem bærinn Biograd na Moru tekur á móti okkur í allri sinni dýrð. Þessi töfrandi strandbær býr yfir mörgum sögulegum fjársjóðum og er umlukinn náttúrufegurð. Biograd na Moru er fullkominn staður til að slaka á, njóta menningar og kanna náttúruna. Í gamla bæjarhlutanum eru sjarmerandi steinlagðar götur og lítil torg. Hér gistum við í sex nætur á góðu hóteli við ströndina. Sameiginlegur kvöldverður á hótelinu.

10. september | Dagur í Zadar

Í dag er áætluð ferð til aldagömlu lista- og menningarborgarinnar Zadar en þaðan er einstakt útsýni yfir hinar fjölmörgu króatísku eyjar. Við hefjum heimsóknina á stuttri skoðunarferð um borgina og að henni lokinni gefst hverjum og einum tími til að skoða borgina á eigin vegum. Upplagt er að fá sér hressingu, fylgjast með lífi bæjarbúa og líta inn til kaupmanna. Komið verður snemma heim á hótel og getur fólk tekið það rólega það sem eftir er dagsins. Sameiginlegur kvöldverður á hótelinu.

Opna allt

11. september | Frjáls dagur í Biograd

Frjáls dagur og hverjum og einum gefst tækifæri til að skoða Biograd betur á eigin vegum, kanna umhverfið eða njóta þess að slaka á á hótelinu. Upplagt er að fara í göngutúr eftir ströndinni og njóta fegurðar þessa dásamlega staðar. Kvöldverður á eigin vegum.

12. september | Split & Trogir

Nú verður haldið í dagsferð til sögufrægu borgarinnar Split, sem er hrífandi borg. Virðulegar byggingar og minjar frá tímum Rómverja prýða Split og hefur elsti hluti hennar verið á heimsminjaskrá UNESCO síðan árið 1979. Borgin er eins og lifandi safn. Við heimsækjum Diokletianhöllina, sem er einn af merkilegustu minnisvörðum byggingarlistar frá tímum Rómverja en hún var byggð á mettíma á árunum frá 295 – 305 e. Kr. Höllin er líflegur staður og er oft talað um hana sem hjarta borgarinnar. Eftir góðan tíma í borginni verður ekið til Trogir, snoturs bæjar úti á smáeyju, sem tengd er meginlandinu. Elsti hluti Trogir er einnig varðveittur á heimsminjaskrá UNESCO. Sameiginlegur kvöldverður á hótelinu.

13. september | Krk þjóðgarðurinn & Krka fossarnir

Í dag verður farið um gimstein Dalmatíu, sjálfan Krka þjóðgarðinn sem heitir eftir 73 km langri á með sama nafni. Hér skoðum við hina frægu Krka fossa. Þarna blasir við ólýsanleg fegurð, fossar, stallar og hyljir mynda saman stórkostlegt náttúrusjónarspil sem hrífur alla sem staðinn heimsækja. Hér er um að gera að klæðast góðum skóm, því eina leiðin til að virða fyrir sér dýrðina er fótgangandi. Sameiginlegur kvöldverður á hótelinu.

14. september | Dýrðardagur í Biograd

Þessi dagur er til að njóta á þessum fagra stað, upplagt er að nota aðstöðuna á hótelinu, panta sér tíma í heilsulindinni eða skella sér í sundsprett í Adríahafi. Kvöldverður á eigin vegum.

15. september | Postojna dropasteinshellarnir & Ljubljana í Slóveníu

Eftir góðan morgunverð verður stefnan tekin á höfuðborg Slóveníu, Ljubljana. Á þessari fallegu leið verður komið til Postojna en þar er að finna hina víðfrægu dropasteinshella. Umhverfi hellanna er mjög fallegt og hægt að skoða sig um í minjagripaverslun eða kíkja á veitingastaði og kaffihús. Við tökum okkur tíma til að kanna hellana og njóta náttúrufegurðar svæðisins áður en ferðinni verður haldið áfram til Ljubljana. Gist verður í þrjár nætur á hóteli í Ljubljana. Sameiginlegur kvöldverður á hóteli.

16. september | Skoðunarferð í Ljubljana & frjáls tími

Byrjum daginn á að fara í skemmtilega skoðunarferð um Ljubljana, höfuðborg og stærstu borg Slóveníu, sem telst ein grænasta og líflegasta höfuðborg Evrópu. Borgin er hrífandi og Ljubljanica áin rennur um hjarta hennar. Eftir það verður frjáls tími til að kynnast þessari fallegu borg á eigin vegum og er tilvalið að kíkja inn til kaupmanna eða setjast á kaffihús og fylgjast með mannlífinu. Sameiginlegur kvöldverður á hóteli.

17. september | Frjáls dagur í Ljubljana

Nú er upplagt að njóta þess að vera í þessari fallegu borg og skoða sig betur um á eigin vegum. Einnig væri hægt að fara í töfrandi bátsferð á ánni Ljubljanica sem rennur um borgina og fræðast um staði við ánna. Ljubljana er yndisleg með sínum sögulega miðbæ og fallegu grænu görðum eins og Tivoli garðinum þar sem gaman er að rölta um. Einnig er hægt að fara upp að Ljubljana kastalanum sem stendur á hæð og gefur þannig stórkostlegt útsýni yfir borgina. Kvöldverður á eigin vegum.

18. september | Feneyjar & heimferð

Nú er komið að kveðjustund eftir ljúfa daga. Ekið verður út á flugvöll í Feneyjum. Brottför þaðan kl. 16:10 og lent í Keflavík kl. 18:50 að staðartíma.


Fararstjóri getur fært dagskrárliði á milli daga eftir þörfum þegar komið er á staðinn.

Hótel

  • Trieste – NH Hotel Trieste
  • Biograd na Moru – Hotel Ilirija
  • Ljubljana – Hotel Ljubljana – Austria Trend

Myndir úr ferðinni

Fararstjórn

Íris Sveinsdóttir

Ég heiti Íris Sveinsdóttir og er hárgreiðslumeistari að mennt. Ég rek hárgreiðslustofur bæði á Íslandi og í Þýskalandi, en þar bjó ég í rúm 20 ár þangað til að ég ákvað að flytja aftur heim til Íslands 2007. Eftir heimkomuna hóf ég leiðsögunám í Endurmenntun Háskóla Íslands og útskrifaðist þaðan árið 2009. Síðan þá hef ég starfað sem leiðsögumaður bæði hér heima og erlendis.

Senda fyrirspurn um ferð


bokun@baendaferdir.is
Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Sími: 570 2790




Póstlisti