Tatrafjöllin, Vínarborg & Prag

Paradís Tatrafjallanna í Slóvakíu, Vínarborg í Austurríki og gullborgin Prag í Tékklandi eru meðal hápunkta þessarar glæsilegu ferðar. Menning, saga og náttúrufegurð fara hér saman og láta engan ósnortinn. Ferðin hefst í gömlu keisaraborginni Brno í Tékklandi sem er einkar lífleg og skemmtileg. Þessi önnur stærsta borg Tékklands er sannkallaður falinn gimsteinn. Við komum í náttúruparadís á Tatra svæðinu sem er að mati margra með mikilfenglegustu svæðum Evrópu. Þar ríkja aldagamlar hefðir og sögur úr fjallaþorpum óma um fjallasali. Við skoðum sögufræga landsvæðið Spiš sem var mikilvægasta landnámssvæði Þjóðverja á 14. öld, kynnum okkur Lubovna kastala sem tilheyrði einni mestu kastalabyggð í Mið-Evrópu og förum í skemmtilega prammasiglingu á ánni Dunajec sem rennur á landamærum Slóvakíu og Póllands. Áð verður í gömlu konungsborginni Bratislava á leið okkar til Vínarborgar, höfuðborgar Austurríkis, en Vínarborg sem stendur á bökkum Dónár, er talin með glæsilegri borgum Evrópu. Fagrar byggingar skreyta borgina og munum við skoða helstu staði hennar svo sem Stephansdom kirkjuna, Belvedere höllina þaðan sem er glæsilegt útsýni yfir borgina og hið þekkta hús Hundertwasser. Endum ferðina í töfrandi gullborginni Prag, þar sem menning, listir og dulúð miðalda setja svip sinn á borgina sem iðar af mannlífi og einkennist af glæstum byggingum, Karlsbrúnni, Hradcanykastalanum, ráðhúsinu með stjörnuúrinu, kristal og litskrúðugum verslunum.

Verð á mann 429.900 kr.

Aukagjald fyrir einbýli 99.200 kr.


Innifalið

  • 11 daga ferð.
  • Flug með Icelandair og flugvallaskattar.
  • Gisting í 2ja manna herbergi með baði.
  • Morgunverður allan tímann á hótelum.
  • Sjö kvöldverðir.
  • Allar skoðunarferðir með rútu samkvæmt ferðalýsingu.
  • Íslensk fararstjórn.

Ekki innifalið

  • Aðgangseyrir inn á söfn, í hallir og kirkjur.
  • Kláfar eða stólalyftur upp á fjöll.
  • Siglingar og vínsmökkun.
  • Hádegisverðir.
  • Þrír kvöldverðir.
  • Þjórfé.
  • Ferða- og forfallatryggingar.

Valfrjálst

  • Miðaldakastalinn Špilberk u.þ.b. € 10.
  • Prammasigling á áni Dunajec u.þ.b. € 12.
  • Aðgangur að Lubovna kastala u.þ.b. € 6.

Nánari upplýsingar

Vert er að hafa í huga að þrátt fyrir að Bændaferðir séu alla jafna þægilegar rútuferðir er alltaf einhver ganga, t.d. í bæjarferðum. Margar evrópskar borgir eru bæði hæðóttar og ójafnar undir fæti og aðgengi að áfangastöðum þannig að leggja þarf rútunni mislangt frá. Ef þú hefur einhverjar vangaveltur varðandi þetta vinsamlegast ekki hika við að hafa samband við skrifstofu Bændaferða.

Kort af ferðinni

FerðalýsingPrenta ferðalýsingu

7. ágúst │ Flug til Prag & Brno

Brottför frá Keflavík kl. 07:20. Mæting í Leifsstöð u.þ.b. 2,5 klst. fyrir brottför. Lending í Prag kl. 13:05 að staðartíma. Þaðan verður ekið til borgarinnar Brno í Tékklandi. Brno er höfuðborg Jihomoravský héraðs og önnur stærsta borg Tékklands. Til gamans má geta að hún er heimaborg fararstjórans ykkar, Pavels. Gist verður í miðborg Brno í tvær nætur. Sameiginlegur kvöldverður.

8. ágúst │ Skoðunarferð um Brno

Í dag verður farið í skoðunarferð um Brno, þessa gömlu keisaraborg, sem er í dag með virtari háskólaborgum landsins. Brno er einkar lífleg og skemmtileg borg, stútfull af sögulegum byggingum í bland við eftirtektarverðan nútímaarkitektúr frá fyrri hluta 20. aldarinnar. Við höldum til Capuchin munkanna en þeir komu fyrst til Brno árið 1604 og hafa rekið þar klaustur síðan. Fræðumst þar meðal annars um greftrunaraðferðir munkanna sem eru afar áhugaverðar. Dómkirkjan í Brno á rætur sínar að rekja til 11. og 12. aldar en frá 84 m háum turnum hennar er fallegt útsýni yfir Brno og nágrenni. Við endum skoðunarferðina á aðaltorgi bæjarins og þá gefst frjáls tími þar sem hægt er að skoða sig um í borginni á eigin vegum. Áhugasamir geta einnig haldið áfram með fararstjóranum og skoðað undirheima Brno. Sameiginlegur kvöldverður.

9. ágúst │ Náttúruparadís í Tatrafjöllum

Við kveðjum Brno og ökum töfrandi leið upp í Tatrafjöllin, sem er minnsti fjallahryggur Evrópu en án efa eitt áhugaverðasta svæði Slóvakíu. Tatra svæðið er með fegurstu náttúruparadísum í Evrópu en þar eru yfir 30 fjöll, öll um og yfir 2.500 m hæð. Þeirra á meðal er hæsti tindur landsins, Gerlachovský štít, 2.655 m á hæð. Á svæðinu eru yfir 100 háfjallavötn, nánast í hverju dalverpi. Gist verður þrjár nætur í bænum Štrbské Pleso sem er einn vinsælasti áningarstaðurinn í Slóvakíu fyrir þá sem vilja upplifa Tatrafjöllin. Sameiginlegur kvöldverður.

Opna allt

10. ágúst │ Spiš, prammasigling & Lubovna kastali

Í dag verður ekið um eitt sögufrægasta landsvæði Slóvakíu, Spiš, en það var eitt mikilvægasta landnámssvæði Þjóðverja á 14. öld. Við byrjum á því að stoppa við Lubovna kastala og Skanzen þar sem við fáum innsýn í horfna tíma. Seinna förum við í mjög skemmtilega prammasiglingu á ánni Dunajec. Lagt er af stað frá borginni Červený kláštor og siglt 11 km eftir ánni sem rennur á landamærum Slóvakíu og Póllands. Sameiginlegur kvöldverður.

11. ágúst │ Rólegur dagur í Štrbské Pleso

Nú eigum við rólegan dag í Štrbské Pleso sem er hluti af Tatranský národný þjóðgarðinum sem er þekktur fyrir hreint loft og fjölbreytt dýralíf. Bærinn stendur við samnefnt stöðuvatn, sem er eitt fallegasta og mest myndaða vatn Slóvakíu, kristaltært og umlukt tindum og grænum skógi. Þeir sem vilja geta farið í gönguferð um þetta fallega svæði með fararstjóranum en aðrir geta skoðað sig um á eigin vegum í þorpinu. Sameiginlegur kvöldverður.

12. ágúst │ Bratislava & Vínarborg

Í dag tökum við stefnuna á Vínarborg, höfuðborg Austurríkis, en borgin sem stendur á bökkum Dónár, er talin með glæsilegri borgum Evrópu. Við komum við í gömlu konungsborginni Bratislava sem er höfuðborg Slóvakíu. Vínarborg og Bratislava eiga það sameiginlegt að hin fræga og fallega Dóná rennur í gegnum þær báðar og setur hún svo sannarlega svip á borgirnar. Borgina prýðir fjöldinn allur af glæsilegum byggingum, höllum og kirkjum. Eitt helsta tákn hennar er Bratislava kastalinn sem trónir tignarlegur yfir gamla bænum en saga hans nær allt aftur á 11. öld. Saga borgarinnar tvinnast yfir langt tímabil, frá Keltum yfir til Rómverja, Ungverja, Gyðinga og auðvitað Slóvaka. Komum síðdegis til Vínarborg en Þar verður gist í þrjár nætur í miðborginni. Sameiginlegur kvöldverður.

13. ágúst │ Skoðunarferð um Vínarborg & frjáls tími

Vín er mikil lista- og menningarborg með um 1,7 milljónir íbúa. Í dag verður farið í skoðunarferð með innlendum leiðsögumanni um þessa glæsilegu höfuðborg Austurríkis og skoðum við helstu byggingar, hallir og garða. Lítum m.a. inn í fallega garðinn við Belvedere höllina en þaðan er glæsilegt útsýni yfir borgina, Stephansdom kirkjuna og förum að hinu þekkta húsi Hundertwasser. Einnig gefst frjáls tími til að njóta borgarinnar það sem eftir lifir dags. Kvöldverður á eigin vegum.

14. ágúst │ Frjáls dagur í Vínarborg

Í dag verður frjáls dagur til að skoða sig um í borginni og er t.d. hægt að fara í ferð með hestakerru um borgina sem er upplifun út af fyrir sig, fara á söfn, skoðunarferð um óperuhúsið eða fara inn í spænska reiðskólann á morgunæfingu. Einnig er upplagt að fá sér kaffi og Sacher tertu. Kvöldverður á eigin vegum.

15. ágúst │ Gullborgin Prag

Við kveðjum Vínarborg og höldum leið okkar áfram til gullborgarinnar Prag þar sem minningar miðalda, menning og listir setja svip sinn á borgina. Hér gistum við í tvær nætur á hóteli í hjarta borgarinnar. Sameiginlegur kvöldverður.

16. ágúst │ Skoðunarferð um Prag & frjáls tími

Í dag verður farið í heillandi skoðunarferð um Prag. Íbúar borgarinnar eru 1,2 milljón en Prag hefur verið ein helsta menningarmiðstöð Evrópu um aldir. Farið verður að helstu ferðamannastöðum í borginni meðal annars verður gengið um svæðið hjá Hradcanykastalanum sem gnæfir yfir borginni, að Karlsbrúnni, í gyðingahverfið og að torginu Václavské náměstí svo eitthvað sé nefnt. Eftir það gefst tími til að kanna borgina á eigin vegum og setjast inn á kaffihús og fylgjast með mannlífinu. Kvöldverður á eigin vegum.

17. ágúst │ Heimferð frá Prag

Eftir töfrandi og skemmtilega ferð verður haldið út á flugvöll í Prag. Brottför þaðan kl. 14:00 og lending í Keflavík kl. 15:55 að staðartíma.

Fararstjóri getur fært dagskrárliði á milli daga eftir þörfum þegar komið er á staðinn.

Hótel

  • Brno – Hotel International
  • Štrbské Pleso –Hotel Patria
  • Vínarborg – Mercure Hotel Wien City
  • Prag – Old Town Century Hotel

Myndir úr ferðinni

Fararstjórn

Pavel Manásek

Pavel Manasek hóf píanónám sex ára gamall. Hann lagði stund á orgelleik í Konservatoríinu í Kromeris og síðan í Prag-akademíunni. Pavel starfaði sem organisti og söngstjóri við Háteigskirkju 1993-1999 og á árunum 1991-1993 sem organisti og skólastjóri Tónlistarskólans á Djúpavogi. Jafnframt var hann undirleikari og hjá leiklistardeild Listaháskóla Íslands. 

Senda fyrirspurn um ferð


bokun@baendaferdir.is
Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Sími: 570 2790




Póstlisti