Alpadýrð í Sviss

Í þessari dásamlegu ferð leggjum við leið okkar um sannkallað hjarta Sviss, allt frá alpatindum til friðsælla og litríkra vatnsbakka Maggiore vatns á landamærum Ítalíu. Við gistum í fallega heilsulindarbænum Davos sem hvílir milli fjallanna Jakobshorn, Parsenn og Schatzalp og ferðumst þaðan í bæði fjallalestum og rútum. Okkar bíður mikið ævintýri á einni fallegustu lestarleiðinni um svissnesku Alpana frá bænum Disentis og í Oberalp skarði njótum við víðáttumikils útsýnis yfir jökla, úfna tinda og fagra alpadali. Í fjallaþorpinu Andermatt er einnig fagurt um að litast. Við heimsækjum Altdorf, fæðingabæ William Tell, þjóðhetju Svisslendinga við hið fagra Lucerne vatn. Við ferðumst um hina þekktu lestarleið Bernina Express sem er á heimslista UNESCO, frá alpatindum niður í sólgyllta dali Ítalíu í Tirano, með viðkomu í heimsþekkta lúxusbænum St. Moritz. Við förum í lestarferð með Arosa Express frá elstu borg Sviss, Chur, og upp í fjöllin í fallega þorpið Arosa. Þar njótum við frábærs útsýnis frá tindi Weisshorn. Við komum í smáríkið Liechtenstein og skoðum höfuðborg þess, Vaduz. Í Rínardalnum sjáum við Viamala Gorge gljúfrið sem er þekkt fyrir hrikalega fegurð sína. Það er miðjarðarhafsblær við Maggiore vatn þar sem ítölsk áhrif eru mikil. Við heimsækjum litríka bæi við vatnið eins og Locarno og Ascona. Í þessari frábæru ferð förum við heimsþekktar lestarleiðir í gegnum fjöllin, komum við í heillandi fjallaþorpum og upplifum svissneska menningu og sögu. Við njótum fádæma náttúrufegurðar í svissnesku ölpunum og í vatnaparadís við landamæri Ítalíu. 

Verð á mann 429.900 kr.

Aukagjald fyrir einbýli 49.800 kr.


Innifalið

  • 8 daga ferð.
  • Flug með Icelandair og flugvallarskattar.
  • Gisting í 2ja manna herbergi með baði á 5* hóteli.
  • Morgun- og kvöldverður á hóteli.
  • Lestarferð með Matterhorn-Gotthard-Bahn.
  • Lestarferð Bernina-Express.
  • Lestarferð með Arosa-Express.
  • Lestarferð frá Reichenau.
  • Hádegisverður í Tirano.
  • Aðgangur í Viamala gilið.
  • Kláfur upp á Weißhorn.
  • Allar skoðunarferðir með rútu samkvæmt ferðalýsingu.
  • Íslensk fararstjórn.

Ekki innifalið

  • Aðgangseyrir inn í hallir, kirkjur og söfn.
  • Hádegisverðir, að undanskildum þeim sem eru undir innfalið.
  • Þjórfé.
  • Ferða- og forfallatryggingar.

Nánari upplýsingar

Vert er að hafa í huga að þrátt fyrir að Bændaferðir séu alla jafna þægilegar rútuferðir er alltaf einhver ganga, t.d. í bæjarferðum. Margar evrópskar borgir eru bæði hæðóttar og ójafnar undir fæti og aðgengi að áfangastöðum þannig að leggja þarf rútunni mislangt frá. Ef þú hefur einhverjar vangaveltur varðandi þetta vinsamlegast ekki hika við að hafa samband við skrifstofu Bændaferða.

Kort af ferðinni

FerðalýsingPrenta ferðalýsingu

2. ágúst | Flug til Zürich & Davos

Brottför frá Keflavík kl. 07:20 og mæting í Leifsstöð u.þ.b. 2,5 klst. fyrir brottför. Lending í Zürich kl. 13:05 að staðartíma. Við höldum í suðurátt til kantónunnar Graubünden, sem er sú stærsta í Sviss, en hún á landamæri að Liectenstein, Austurríki og Ítalíu. Gist verður í sjö nætur í fallegu alpaborginni Davos en hún stendur hæst evrópskra borga í 1560 m hæð. Davos er í Landwasser dalnum þar sem loftið er tært og útsýnið yndislegt. Borgin varð vinsæll heilsulindarbær seint á 19. öld og í byrjun þeirrar tuttugustu þegar berkla- og lungnasjúklingar leituðu í ferskt fjallaloftið og sólina. Í gegnum árin hefur borgin haldið þessum vinsældum og þróað áfram þjónustu við þá sem vilja slaka á í heilsulindum og jarðvarmaböðum. 

3. ágúst | Lestarferð um jökuldali & skörð, Disentis, Oberalp & Altdorf

Í dag bíður okkar dásamlegt ævintýri á einni fallegustu lestarleiðinni um Sviss, með Matterhorn-Gotthard-Bahn lestinni innan um jökla, alpatindi og djúpa dali. Við leggjum upp frá bænum Disentis sem stendur í um 1130 m hæð efst í Rínardalnum. Hann er byggður út frá fallegu munkaklaustri sem stendur í hlíðunum fyrir ofan bæinn. Leið okkar liggur upp að einu mikilfenglegasta fjallaskarði í Sviss, Oberalp, en það liggur í um 2033 m hæð. Það var fyrr á öldum mikilvæg samgönguleið í gegnum miðbik Alpafjalla. Á leiðinni sjáum við tilkomumikið landslag Rínardalsins, alpasléttur þaktar villiblómum og fallega fossa sem steypast niður með hlíðum. Skarðið tengir í raun tvo tungumálaheima, rómönskumælandi hlutann í austur Sviss og þann þýskumælandi í miðju Sviss. Við skarðið eru einnig vatnaskil, í austri renna árnar í Rín og vestan megin í ánna Reuss. Nálægt toppi skarðsins liggur vatnið Toma en þar eru upptök Rínarfljóts. Við förum yfir í vesturhlutann í litla fjallaþorpið Andermatt í kantónunni Uri. Héðan er stutt í önnur skörð yfir alpafjallgarðinn eins og Gotthard og Furka. Út frá Gotthard skarðinu liggur leiðin aftur niður úr fjöllunum, meðal annars í gegnum gljúfrið Schöllenen, sem er umlukið þykkum veggjum úr graníti. Heimildir allt frá 12. öld eru um að fólk hafi fundið sér leið um þetta hrikalega gljúfur en í seinni tíð hafa menn byggt brýr og göng til þess að komast um það. Merkilegust er Djöflabrúin, Teufelsbrücke, en sagan segir að fólkið í Uri hafi ráðið Kölska til brúarsmíðarinnar. Á vegi okkar verður einnig Altdorf, fæðingarbær William Tell, þjóðhetju Svisslendinga. Altdorf stendur við eitt fallegasta vatn Sviss, Luzern. Það er víðáttumikið og teygir anga sína yfir fjórar kantónur. Við vatnið liggja mörg há kalksteinsfjöll, einna glæsilegust eru Rigi og Pilatus.

4. ágúst | Pontresina, Bernina Express & Tirano á Ítalíu

Við hefjum lestarferð dagsins í Pontresina sem er sjálfstjórnarsvæði í Kantónunni Graubünden. Pontresina er umlukið snævi þökktum tindum og jöklum. Hér er friðsæld, fallegar byggingar sem kenndar eru við Belle Époque arkitektúrinn frá 19. öld og huggulegar götur sem endurspegla hlutverk bæjarins sem áfangastað þeirra sem sóttu í fegurð og heilsuvænt umhverfi Alpanna. Við komum einnig í St. Moritz sem er heimsþekktur alpabær kunnur fyrir fegurð sína og gæði. Hann stendur við samnefnt vatn þar sem er stórkostlegt útsýni yfir Engadin fjöllin. Þar hafa meðal annars verið haldnir tvennir vetrarólympíuleikar. Við förum yfir til Ítalíu í landamærabæinn Tirano en þar snæðum við hádegisverð. Í þessum litla bæ njótum við ítalskrar menningar í bland við fagurt landslag Alpanna.

Opna allt

5. ágúst | Frjáls dagur í Davos

Í dag njótum við þessa að dvelja í yndislega bænum okkar Davos. Fyrir áhugasama er úrval heilsulinda í bænum, veitingastaða sem bjóða upp á skemmtilega svissneska rétti eins og fondue, raclette og rösti eða kaffihús þar sem ljúft er að setjast niður og skoða mannlífið. Það er gaman að rölta um borgina, hér eru mörg falleg hús frá Belle Époque tímabilinu sem var áratugina fyrir fyrri heimsstyrjöld. Þá blómstruðu listir, arkitektúr og hönnun og þá sér í lagi Art Nouveau stíllinn sem þykir afar klassískur og fagur. Hér er gnægð vatna á blómlegum alpasléttum og yfir okkur gnæfa tindarnir Jakobshorn, Parsenn og Schatzalp. Það er mögulegt að taka kláfa upp á Jakobshorn og Parsenn, staldra við á veitingastað og njóta þaðan útsýnis yfir Alpana allt um kring. Það eru einnig margar miserfiðar gönguleiðir um nágrennið, í átt að Schatzalp og Jakobshorn eða í kring um Davos vatnið þar sem hægt er að setjast á kaffihús og slaka á í fallegu umhverfi.

6. ágúst | Chur, elsta borg Sviss & Arosa

Við byrjum daginn á skoðunarferð um Chur, elstu borg Sviss, en talið er að þar hafi verið samfelld búseta í yfir 5000 ár. Í gamla bænum Altstadt eru litlar steinilagðar götur, þröng húsasund, litrík hús, gosbrunnar og bæjarhlið frá miðöldum. Það er eins og að ferðast aftur í tímann að ganga um þennan merkilega bæ sem er fullur af menningu og listum. Héðan verður farið í glæsilega lestarferð upp í svissnesku Alpana. Við ferðumst um alpadali, skógi vaxið fjalllendi, í gegnum göng og yfir fallegar bogabrýr. Við komum í fjallaþorpið Arosa, sem er umlukið ósnortnum vötnum, furuskógum og tindum. Það er gaman að rölta í gegnum þorpið, setjast inn á kaffihús eða njóta sín við Obersee vatn. Rétt fyrir ofan þorpið er fallegur útsýnisstaður, Weisshorn, en þangað er hægt að komast með kláfi.

7. ágúst | Vaduz í Liechtenstein og Stóra gljúfur Rínardals

Í dag komum við í eitt minnsta ríki heims, Liechtenstein, en það liggur á milli Sviss og Austurríkis og er um 160 ferkílómetrar. Höfuðborgin er hin smáa Vaduz og yfir henni trónir Vaduz kastali. Þar býr prinsinn Hans-Adam II af Liechtenstein. Ríkið er mjög vel stætt og þekkt fyrir bankastarfsemi, viðskipti, hátækniiðnað og ekki síst fyrir fríverslun, sérstaklega í höfuðborginni Vaduz. Eftir skoðunarferð um Vaduz höldum við leið okkar áfram í Rínardalinn sem gjarnan hefur verið kallaður Stóra gljúfur Sviss. Hér eru hrikalegir klettar, gljúfur, gil, skörð, bugðóttar og beljandi ár, furuskógar og lítil þorp í hlíðum. Við komum í Viamala Gorge sem er allt að 300 metra hátt og hefur í gegnum aldirnar verið kallað Hinn illi vegur. Við enda 19. aldar sáu rómantísk skáld og heimsspekingar eins og Nietzsche og Fontane fegurðina í þessarari hrikalegu náttúru. Í þeirra augum voru töfrar í því að upplifa náttúruna út frá smæð mannsins og það er sannarlega hægt að upplifa þessa tilfinningu hins háleita á þessum stað.

8. ágúst | Frá fjallstoppum til Maggiore vatns

Í dag er fjölbreyttur dagur framundan. Við ökum úr einstakri alpadýrð á leið okkar gegnum fjallaskörðin og dalina í átt til ítölskumælandi svæðisins Ticino. Á leið okkar verður miðaldakastalinn Bellinzona sem eitt sinn stóð vörð um aðalleiðirnar til Alpanna og skyldi að norður og suður Sviss. Smátt og smátt breytist landslagið frá sígrænum skógum, sléttum og snævi þökktum fjallstoppum yfir í vínekrur, pálmatré og hlýnandi miðjarðarhafsblæ. Við komum í bæinn Locarno sem liggur við norðurenda Maggiore vatns sem er eitt það fallegasta í Sviss. Efst á hæð fyrir ofan bæinn stendur kirkjan Madonna del Sasso en hún var viðkomustaður pílagríma á leið þeirra um Sviss. Hér er dásamlegt útsýni yfir bæinn og vatnið. Það eru mikil ítölsk áhrif í þessum bæ, húsagerðarlist, menning, kaffihús og blómleg torg. Við skoðum einnig perlu Maggiore vatns, litríka þorpið Ascona sem var kosið svissneska þorp ársins 2025. Hér var áður mikil bátaútgerð en í dag er þorpið vinsæll staður til að slaka á, njóta menningar, lista og veitinga, rölta meðfram vatninu innan um pálmana eða fylgjast með sólsetrinu.

9. ágúst | Heimferð frá Zürich

Nú er komið að lokum í þessari dásamlegu ferð um Alpana í Sviss að landamærum norður Ítalíu. Eftir snemmbúinn morgunverð höldum við af stað til Zürich en þaðan verður flogið kl. 14:00 og lending í Keflavík kl. 16:00 að staðartíma.

Fararstjóri getur fært dagskrárliði á milli daga eftir þörfum þegar komið er á staðinn.

Hótel

Hotel Seehof Davos 5*

Myndir úr ferðinni

Fararstjórn

Marianne Eiríksson

Marianne fæddist 1964 í Schaffhausen í Sviss, við landamæri Þýskalands. Hún er menntaður ferðamálafræðingur en kom til Íslands í fyrsta skipti árið 1985 og dvaldist þá á sveitabæjum í nokkra mánuði. Síðan 1992 hefur Marianne búið á Íslandi með íslenskum eiginmanni sínum. Hún er útskrifuð frá leiðsöguskólanum og starfar m.a. sem leiðsögumaður.
Marianne segist sjálf vera orðin meiri Íslendingur en Svisslendingur en hún talar þýsku, ensku, frönsku, ítölsku og að sjálfsögðu reiprennandi íslensku.
Áhugamál Marianne eru ferðalög, tungumál og hestamennska.

Senda fyrirspurn um ferð


bokun@baendaferdir.is
Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Sími: 570 2790




Póstlisti