Róm & Amalfíströndin

Róm, Sorrento, Amalfíströndin og eyjan Caprí eru sannkallaðar draumaperlur Ítalíu en kyngimögnuð fegurð þessara staða umvefur okkur í þessari glæsilegu ferð. Hún hefst í hinni einstöku Róm sem var fyrsta borg heimsins til að ná einni milljón íbúa. Engin borg í heiminum er eins rík af fornminjum og Róm og hér verður staldrað við marga áhugaverða staði þ.á m. Kapítólhæðina, Forum Romanum, Pantheon og Colosseum. Við upplifum iðandi mannlíf Rómarbúa hjá Trevi gosbrunninum, við Spænsku tröppurnar og Piazza Navona torgið og sækjum Vatíkanið og Péturskirkjuna heim. Því næst bíður hinn dásamlegi Napólíflói sem er einn fallegasti flói landsins og þar er einnig Sorrento, eftirsóttasti ferðamannabær hans, þar sem við njótum ljúfra daga. Á leið þangað verður áð í Pompei þar sem finna má eina af frægustu fornminjum veraldar. Boðið verður upp siglingu til sæbrattrar klettaeyjunnar Caprí þar sem einnig verður siglt um eyjuna og hjá Bláa hellinum ásamt því að fara með stólalyftu upp á hæsta fjall eyjunnar, Monte Solaro. Við siglum bæði og ökum með Amalfíströndinni, sem er ein fallegasta strönd Ítalíu, með viðkomu í bæjunum Amalfí og Positano. Endum þessa ferð með trompi þar sem eldfjallið Vesúvíus tekur á móti okkur í allri sinni dýrð og við njótum hádegishressingar hjá vínbónda við rætur fjallsins.

Verð á mann 699.900 kr.

Aukagjald fyrir einbýli 185.200 kr.


Innifalið

  • 12 daga ferð.
  • Flug með Icelandair og flugvallaskattar.
  • Gisting í 2ja manna herbergi með baði.
  • Morgun - og kvöldverður allan tímann á hótelum.
  • Ferja til og frá Caprí.
  • Sigling og ferð með smárútum meðfram Amalfíströndinni.
  • Aðgangur að fornminjum í Pompei.
  • Aðgangur að þjóðgarði Vesúvíus eldfjallsins.
  • Hádegishressing hjá vínbónda. 
  • Allar skoðunarferðir með rútu samkvæmt ferðalýsingu.
  • Íslensk fararstjórn.

Ekki innifalið

  • Aðgangseyrir inn í söfn, hallir og kirkjur.
  • Kláfar eða stólalyftur upp á fjöll. 
  • Hádegisverðir.
  • Þjórfé.
  • Ferða- og forfallatryggingar.

Valfrjálst

  • Sigling um eyjuna Caprí u.þ.b. € 25. 
  • Stólalyfta upp á Monte Solaro fjallið á Caprí u.þ.b. € 15. 

Nánari upplýsingar

Vert er að hafa í huga að þrátt fyrir að Bændaferðir séu alla jafna þægilegar rútuferðir er alltaf einhver ganga, t.d. í bæjarferðum. Margar evrópskar borgir eru bæði hæðóttar og ójafnar undir fæti og aðgengi að áfangastöðum þannig að leggja þarf rútunni mislangt frá. Ef þú hefur einhverjar vangaveltur varðandi þetta vinsamlegast ekki hika við að hafa samband við skrifstofu Bændaferða.

Kort af ferðinni

FerðalýsingPrenta ferðalýsingu

2. ágúst | Flug til Rómar

Brottför frá Keflavík kl. 08:15, mæting í Leifsstöð u.þ.b. 2,5 klst. fyrir brottför. Lending í Róm kl. 15:00 að staðartíma. Róm er einstök, hún var byggð á sjö hæðum og var á blómaskeiði sínu fyrsta borg heims til að ná einni milljón íbúa. Gist verður í fjórar nætur, á vel staðsettu hóteli í þessari sögufrægu borg.

3. ágúst | Skoðunarferð um Rómaborg

Á dagskránni í dag er fróðleg skoðunarferð um borgina eilífu, Róm, og munum við staldra við helstu staði borgarinnar. Þar má nefna Piazza Venezia, Kapítólhæð, Forum Romanum, Palatínhæð, Pantheon sem er best varðveitta fornbygging Rómar og stendur við Piazza della Rotonda torgið, Colosseum hringleikahúsið og Spænsku tröppurnar þar sem eitt helsta Maríulíkneski Rómar trónir hátt upp á kórintískri súlu. Við komum að fegursta torgi Rómar, Piazza Navona, en það er byggt á gömlum íþróttaleikvangi Rómverja. Við höfum nú frjálsan tíma til að kynnast borginni og mannlífinu eins og hvern og einn lystir.  

4. ágúst | Péturskirkjan & frjáls tími

Eftir morgunverð verður haldið að Vatíkaninu og Péturskirkjunni, meistaraverkum síns tíma. Þeir sem vilja geta farið upp í kúpul kirkjunnar. Frjáls tími verður eftir hádegi og verður þá hægt að skoða safn Vatíkansins og Sixtínsku kapelluna á eigin vegum. Best er að panta aðgang í safn Vatíkansins og Sixtínsku kapelluna fyrirfram á netinu. Þau sem vilja það frekar geta litið í verslanir, fengið sér ítalskan hádegisverð á einhverjum veitingastaðnum og notið enn frekar þess sem Róm hefur upp á að bjóða.

Opna allt

5. ágúst | Frjáls dagur í Róm

Sagan býr við hvert fótmál og ariktektúr borgarinnar spannar yfir 2500 ár. Við nýtum þennan frjálsa dag til þess að kanna Róm á eigin spýtur. Fyrir utan fornar byggingar má sjá kirkjur og kapellur, hallir, leikhús, torg og skúlptúra byggð með einkennandi stíl endurreisnartímans og barrokktímabilsins. Hægt er að skoða nánar þær perlur sem við höfum kynnst nú þegar eða rölta um og njóta líðandi stundar. Kaupmenn finnast víða í borginni, fínar verslanir eru við Spænsku tröppurnar en aðalverslunargöturnar eru Via del Corso og Via dei Condotti. Einnig er hægt að fara inn í Colosseum hringleikahúsið, Pantheon, ganga um Forum Romana eða upp á minnisvarðann sem var byggður til heiðurs Viktorio Emanuele ll konungi. Eins er heillandi að koma inn í Castel Sant´Angelo grafhýsi Hadrianusar keisara svo eitthvað sé nefnt. Athugið að best er að panta aðgang fyrirfram á netinu til að komast í Collosseum og Pantheon.

6. ágúst | Pompei & Sorrento við Napólíflóa

Nú kveðjum við Róm eftir dásamlega daga og ökum til Sorrento við Napólíflóa, eins fallegasta flóa landsins. Á leiðinni stoppum við í Pompei þar sem skoðaðar verða einhverjar frægustu fornminjar veraldar. Rústir gömlu Pompei eru eitt stórkostlegasta dæmið um fornleifauppgröft heillar byggðar og við fræðumst um sögu svæðisins. Sorrento er hrífandi bær í bröttum hlíðum en þar vaxa ólífu-, appelsínu- og sítrónutré og þess má geta að Limoncello líkjörinn frægi kemur frá þessu svæði. Á þessum yndislega stað verður gist í sjö nætur á góðu hóteli.

7. ágúst | Skoðunarferð í Sorrento & frjáls tími

Við ætlum að eiga skemmtilegan dag í Sorrento en eftir góðan morgunverð býður fararstjórinn upp á skoðunarferð um bæinn og eftir það er upplagt að kanna á eigin vegum dásamlegt umhverfið í Sorrento, eins eftirsóttasta ferðamannabæjarins á Sorrento skaganum. Í bænum er fjöldinn allur af einstaklega heillandi, þröngum, gömlum götum, fögrum kirkjum og glæstum byggingum.

8. ágúst | Sigling til Caprí

Nú höldum við í siglingu til Caprí, perlu Napólíflóans. Við skoðum fallegu eyjuna, siglum hjá Bláa hellinum, Grotta Azzurra, og förum upp til Caprí og Anacapri þar sem við njótum stórfenglegs útsýnis. Áhugasömum gefst tækifæri til að fara með stólalyftu upp á fjallið Monte Solaro. Jafnframt verður hægt að fá sér hressingu og skoða alls kyns handunnar vefnaðarvörur eins og kniplinga, dúka, klæði og fatnað.

9. ágúst | Rólegheit og slökun í Sorrento

Dagurinn er tilvalinn til afslöppunar. Skemmtilegt er að upplifa bæinn og hinar gróðursælu ólífu-, appelsínu-, og sítrónuhæðir fyrir ofan hann með því að taka litla lest sem gengur þangað. Einnig er tilvalið að kíkja í verslanir og á kaffi- og veitingahús. Eftir hádegi er upplagt er að nota aðstöðuna við hótelið eða fara niður að
bátahöfninni en þar er úrval góðra veitingastaða. Svo er líka hægt að fara á fallegu baðströndinna og fá sér sundsprett.

10. ágúst | Sigling & rúta með Amalfíströndinni

Haldið verður í töfrandi dagsferð um Amalfíströndina þar sem fegurðin er svo sannarlega einstök. Við hefjum daginn á ferð með smárútum með fram ströndinni og hvarvetna gefur að líta dásamlegt landslag á þessari fallegu leið til bæjarins Amalfí, þar sem við stoppum og skoðum okkur um. Á rölti um bæinn sjáum við fallega dómkirkju frá 10. öld, lífleg veitinga- og kaffihús og litlar verslanir sem gaman er að kíkja inn í. Því næst verður farið í hrífandi siglingu með Amalfíströndinni til Sorrento en þaðan gefur að líta ægifagurt útsýni yfir fallegustu strandlengju Ítalíu og sjáum við þar litskrúðug hús, hótel og smábæi sem hanga utan í klettabrúninni. Á þessari ljúfu siglingu verður áð í Positano, einum þekktasta og vinsælasta ferðamannabæ Amalfístrandarinnar áður en siglt verður til Sorrento. Við mælum eindregið með því að gestir gæði sér á grilluðum sjávarréttum í hádeginu en þeir eru einn helsti sérréttur svæðisins.

11. ágúst | Frjáls dagur í Sorrento

Þennan dag gefst heill dagur til þess að slaka á og njóta þess að vera á þessum yndislega stað. Sorrento er líflegur og skemmtilegur bær, þar er margt að skoða og tilvalið að kíkja í verslanir eða á kaffi- eða veitingahús. Einnig er hægt að slaka á við sundlaug hótelsins eða ganga niður að strandlengjunni.

12. ágúst | Eldfjallið Vesúvíus í allri sinni dýrð

Stórbrotin og glæsileg ferð upp á eldfjallið Vesúvíus en það gnæfir í allri sinni dýrð yfir Napólíflóa í 1.280 m hæð og er mjög trúlega 200.000 ára gamalt. Eitt af þekktustu gosum fjallsins var árið 79 e. Krist en þá eyðilögðust borgirnar Pompei, Stabiae og Herculanum. Eftir það verður vínbóndi sóttur heim þar sem boðið verður upp á hádegishressingu áður en ekið verður á hótelið okkar.

13. ágúst | Heimflug frá Róm

Nú er komið að heimferð eftir glæsilega og viðburðaríka ferð. Við tökum daginn snemma og ökum aftur til Rómar. Brottför er þaðan kl. 16:20. Áætluð lending í Keflavík kl. 19:10 að staðartíma.

Fararstjóri getur fært dagskrárliði á milli daga eftir þörfum þegar komið er á staðinn.

Hótel

  • Róm - NH Collection Roma Giustiniano
  • Sorrento - Grand Hotel Vesuvio

Myndir úr ferðinni

Fararstjórn

Hólmfríður Bjarnadóttir

Hólmfríður heiti ég, alltaf kölluð Hófý, og er fædd á Patreksfirði en ólst upp í Reykjavík. Ég er móðir þriggja drengja og er búsett í Bæjaraskógi í Þýskalandi. Ég er búin að starfa hjá Bændaferðum síðan 2004 í skipulagningu á utanlandsferðum og sem fararstjóri. Þetta hefur verið dásamlegur tími með frábæru fólki, yndislegu samstarfsfólki og vinum. 

Senda fyrirspurn um ferð


bokun@baendaferdir.is
Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Sími: 570 2790




Póstlisti