Vordagar í Lissabon - SBA

Í þessari stórglæsilegu ferð til Portúgal höldum við til litríku borgarinnar Lissabon. Lissabon er oft kölluð hvíta borgin á sjö hæðum og er sannkölluð paradís ferðalangsins. Við gefum okkur góðan tíma til þess að kanna borgina og það sem hún hefur upp á bjóða, skoðum kennileiti, njótum góðs útsýnis og þræðum litríkar götur Alfama hverfisins. Ævintýrabærinn Sintra verður heimsóttur og að sjálfsögðu vestasti punktur meginlands Evrópu, Cabo da Roca. Við kynnum okkur einnig Fadó tónlist Portúgala og förum í vínsmökkun. Það gefst gott tækifæri til að kanna borgina á eigin vegum, fara með sporvagni, næla sér í sætabrauð heimamanna, pastel de nata, eða sopa af góðu púrtvíni, skoða í verslanir eða njóta líðandi stundar og horfa á mannlífið. Í þessari ferð kynnumst við heimsborginni Lissabon og nágrenni þar sem fara saman menning og mannvirki miðalda, mikil náttúrufegurð og líflegt andrúmsloft.

Verð á mann 299.900 kr.

Aukagjald fyrir einbýli 78.600 kr.


Innifalið

  • 5 daga ferð.
  • Flug með Icelandair og flugvallaskattar.
  • Gisting í 2ja manna herbergi með baði á 4* hóteli.
  • Morgunverður á hóteli.
  • Einn kvöldverður á hóteli.
  • Portúgölsk Fadó tónlistarsýning ásamt kvöldverði.
  • Aðgangur inn í kastala, kirkjur og söfn skv. ferðalýsingu.
  • Vínsmökkun í nágrenni Sintra.
  • Allar skoðunarferðir með rútu samkvæmt ferðalýsingu.
  • Íslensk fararstjórn.

Ekki innifalið

  • Aðgangseyrir inn í söfn, hallir og kirkjur aðrar en þær sem eru innfaldar. 
  • Hádegisverðir.
  • Þjórfé.
  • Ferða- og forfallatryggingar.

Nánari upplýsingar

  • Vert er að hafa í huga að þrátt fyrir að Bændaferðir séu alla jafna þægilegar rútuferðir er alltaf einhver ganga, t.d. í bæjarferðum. Margar evrópskar borgir eru bæði hæðóttar og ójafnar undir fæti og aðgengi að áfangastöðum þannig að leggja þarf rútunni mislangt frá. Ef þú hefur einhverjar vangaveltur varðandi þetta vinsamlegast ekki hika við að hafa samband við skrifstofu Bændaferða.

Kort af ferðinni

FerðalýsingPrenta ferðalýsingu

29. mars | Flug til Lissabon

Brottför frá Keflavík kl. 16:00 og mæting í Leifsstöð u.þ.b. 2,5 klst. fyrir brottför. Lending í Lissabon kl. 21:20 að staðartíma. Gist í fjórar nætur á góðu hóteli í Lissabon.

30. mars | Skoðunarferð um Lissabon

Dagurinn í dag er tileinkaður höfuðborg Portúgals, Lissabon. Hún er stærsta borg landsins og er réttilega lýst sem einni af fallegustu stórborgum Evrópu. Við förum í skoðunarferð með rútu og sjáum helstu kennileiti og merka minnisvarða borgarinnar. Við förum um litríka Alfama hverfið sem tekur á móti okkur með sínum heillandi, hlykkjóttu götum og litlu torgum þar sem tíminn virðist hafa staðið í stað, enda er þetta eitt elsta hverfi Lissabon. Í Alfama hverfinu má einnig finna São Jorge kastalann en hann stendur á hæð þar sem er fallegt útsýni yfir borgina og Tagus ánna. Einnig verður haldið í Bairro Alto hverfið sem er eitt af litríkustu og líflegustu hverfum Lissabon. Eftir skoðunarferðina er frjáls tími til að skoða sig um á eigin vegum. Kvöldverður á eigin vegum.

31. mars | Sintra, Cabo da Roca & vínsmökkun

Í dag er ferðinni haldið til ævintýrabæjarins Sintra sem er einn fallegasti bær Portúgals, þekktur fyrir glæsilegar hallir og milt loftslag. Bærinn er á heimsminjaskrá UNESCO. Í gönguferð um miðbæinn heimsækjum við þjóðarhöllina, Palácio Nacional de Sintra, sem reist var í upphafi 16. aldar og þjónaði sem sumarbústaður portúgölsku konunganna fram á 21. öldina. Höllin er áhugaverð fyrir þær sakir að hún sýnir hvernig portúgalskur stíll hefur þróast í gegnum aldirnar og undirstrikar sérstaklega þróun flísalistarinnar. Á leiðinni til baka til Lissabon verður farið fram hjá Cabo da Roca, vestasta punkti meginlands Evrópu, en frá klettum þess er tilkomumikið útsýni yfir Atlantshafið. Portúgalska þjóðskáldið Luís de Camões lýsti einmitt staðnum með eftirfarandi orðum: „Hér… þar sem jörðin endar og hafið byrjar.“ Endum daginn á að fara í vínsmökkun. Sameiginlegur kvöldverður á hóteli.

Opna allt

1. apríl | Skoðunarferð um Lissabon & frjáls tími

Þau sem vilja kynnast Lissabon enn betur geta í dag farið í hálfsdagsskoðunarferð þar sem m.a. verður farið í hið stórfenglega Híerónýmusarklaustur. Þessi perla Lissabon var byggð við upphaf landafundanna á 15. öld. Klaustrið er eitt af merkustu helgu mannvirkjum í heiminum og hefur verið á heimsminjaskrá UNESCO frá árinu 1983. Byggingin er fagurskreytt, einstaklega falleg og ber skýr merki þeirrar gullaldar sem ríkti þegar hún var reist. Einnig er hægt að skoða 15. aldar turninn Torre de Belém sem er eitt frægasta kennileiti Lissabon. Að lokum keyrum við rauðu 25. apríl brúnna sem liggur yfir Tagus ánna og skoðum hina gríðarstóru Kristsstyttu sem þar stendur, þaðan er líka glæsilegt útsýni yfir borgina. Fyrir þau sem frekar vilja skoða sig um á eigin vegum er upplagt að taka sporvagninn gula, sem er eitt af helstu táknum Lissabon, og fara um hæðir borgarinnar og skoða gamla miðbæinn. Þau sem heimsækja Lissabon mega alls ekki fara þaðan án þess að smakka pastel de nata, litlu eggjakremstartaletturnar sem má segja að sé þjóðareftirréttur Portúgala. Í miðbænum má finna hið fræga bakarí, Pasteis de Belem frá árinu 1837, en það þykir eitt besta pastel de nata bakaríið í Lissabon. Um kvöldið fáum við svo að njóta klassískrar portúgalskrar fadó tónlistar ásamt kvöldverði.

2. apríl | Heimferð

Það er komið að kveðjustund eftir ljúfa og skemmtilega ferð en þar sem flugið er ekki fyrr en í kvöld er tilvalið að nýta daginn og skoða sig enn betur um í hinni fallegu Lissabon. Upplagt er að fá sér kvöldverð inni í borg áður en lagt verður af stað út á flugvöll. Brottför þaðan er kl. 22:20 og lending í Keflavík kl. 01:50 að staðartíma.

Fararstjóri getur fært dagskrárliði á milli daga eftir þörfum þegar komið er á staðinn

Hótel

  • Hotel Pessoa Lisboa

Myndir úr ferðinni

Fararstjórn

Þórhallur Vilhjálmsson

Þórhallur Vilhjálmsson er fæddur í Reykjavík 1963. Hann nam markaðsfræði við háskólann í San Francisco og útskrifaðist þaðan árið 1990. Þórhallur hefur starfað sem leiðsögumaður um 30 ára skeið, fyrst á hálendi austurlands en síðan víðsvegar um landið en einnig í Evrópu, Norður-Ameríku og á Grænlandi. Þórhallur hefur verið fararstjóri hjá Bændaferðum síðan 2009.

Steinunn Arinbjarnardóttir

Steinunn er fædd í Reykjavík árið 1994. Hún útskrifaðist sem leikari frá Listaháskóla Íslands árið 2019. Síðan hefur hún starfað sem leikkona við stóru leikhúsin jafnt sem sjálfstætt starfandi leikhópa. Í vetur leikur hún í uppfærslu í Borgarleikhúsinu. Hún hefur líka starfað sem kennari í sviðlistum í grunnskólum, framhaldsskólum og í leiklistarskóla Borgarleikhússins. Steinunn hefur starfað sem leiðsögumaður erlendra ferðamanna á Íslandi og Grænlandi undanfarin ár. Helstu áhugamál Steinunnar eru hestamennska sem leikur stóran þátt í hennar lífi. Hún starfaði nokkur sumur á ræktunarbúum í Borgarfirði.

Senda fyrirspurn um ferð


bokun@baendaferdir.is
Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Sími: 570 2790




Póstlisti