Hjarta Ítalíu - Umbria & Toskana

Ferðalag um Umbria og Toskana héruð á Ítalíu er svo sannarlega hrífandi upplifun enda er þetta svæði rómað fyrir töfra sína. Ferðin hefst í litla bænum Passignano Sul Trasimeno sem er á bökkum Trasimeno vatns en þaðan verður farið í hrífandi dagsferðir. Farin verður skoðunarferð til sögufrægu borgarinnar Arezzo og virkisbæjarins Cortona en frá honum er einstakt útsýni yfir Toskana héraðið. Einnig verður haldið til Assisi, fæðingarstað heilags Frans. Þetta er í margra augum helgur staður því hér voru reglur heilags Frans og heilagrar Klöru stofnaðar. Við kynnumst Perugia, sem sögð er vera fallegasta borg Umbria héraðs, skoðum stórkostlega dómkirkju í bænum Orvieto og upplifum miðaldastemningu í Montepulciano. Við Adríahafið kynnumst við Gradara, einum vinsælasta ferðamannastað Ítalíu, og Pesaro þar sem við sjáum gullnar náttúrustrendur og fjölmargar sögulegar byggingar. Farið verður í dagsferð til San Marínó. Þetta smáríki er vel þess virði að skoða en hér er m.a. stjórnarhöllin Basilica di San Marino og kastalinn La Rocca. Það er notalegt að hvílast í bænum Gabicce Mare við hafið, rölta um og njóta áður en haldið verður til fornu borgarinnar Cervia sem er þekkt fyrir saltvinnslu sína. Eftir ljúfa og viðburðaríka daga verður flogið heim frá Róm.

Verð á mann 369.900 kr.

Aukagjald fyrir einbýli 52.200 kr.

Aukagjald fyrir svalir og sjávarsýn á seinna hóteli 13.500 kr á mann í tveggja manna herbergi (ekki í boði fyrir einbýli). Takmarkað magn í boði.


Innifalið

  • 10 daga ferð.
  • Flug með Icelandair og flugvallarskattar.
  • Gisting í 2ja manna herbergi með baði.
  • Morgun- og kvöldverður á hótelum.
  • Heimsókn og vínsmökkun ásamt léttu snarli hjá vínbónda í Montepulciano.
  • Aðgangur í saltvinnsluna í Cervia.
  • Aðgangur í Basilica di San Francesco í Assisi.
  • Allar skoðunarferðir með rútu samkvæmt ferðalýsingu.
  • Íslensk fararstjórn.

Ekki innifalið

  • Aðgangseyrir inn í söfn, hallir, kláfa og kirkjur.
  • Siglingar.
  • Hádegisverðir.
  • Forfalla- og ferðatryggingar.
  • Þjórfé.

Valfrjálst

  • Kastalinn í Gradara u.þ.b. € 8.
  • Kláfur í bænum Orvieto u.þ.b. € 3

Nánari upplýsingar

Vert er að hafa í huga að þrátt fyrir að Bændaferðir séu alla jafna þægilegar rútuferðir er alltaf einhver ganga, t.d. í bæjarferðum. Margar evrópskar borgir eru bæði hæðóttar og ójafnar undir fæti og aðgengi að áfangastöðum þannig að leggja þarf rútunni mislangt frá. Ef þú hefur einhverjar vangaveltur varðandi þetta vinsamlegast ekki hika við að hafa samband við skrifstofu Bændaferða.

Kort af ferðinni

FerðalýsingPrenta ferðalýsingu

9. maí | Flug til Róm & Passignano Sul Trasimeno

Brottför frá Keflavík kl. 07:50 og mæting í Leifsstöð u.þ.b. 2,5 klst. fyrir brottför. Lending í Róm kl. 14:35 að staðartíma. Þaðan verður ekið til bæjarins Passignano Sul Trasimeno í Umbria héraði þar sem gist verður í fimm nætur á hóteli með útisundlaug og fallegum garði. Passignano Sul Trasimeno stendur við strendur Trasimeno vatns sem er fjórða stærsta vatn Ítalíu.

10. maí | Cortona & Arezzo

Í dag verður haldið til virkisbæjarins Cortona. Staðsetning hans er hrífandi uppi á fjallinu Sant’Egidio en þaðan er stórkostlegt útsýni yfir Toskana héraðið. Við sjáum margar glæstar byggingar á leið okkur um kræklóttar, þröngar götur þessa skemmtilega bæjar. Því næst verður haldið til sögufrægu borgarinnar Arezzo í Toskana héraði þar sem miðaldablær leikur um okkur og sannarlega má segja að þetta sé ein af listamannaborgum Ítalíu. Skoðuð verða miðaldamannvirki borgarinnar, þar á meðal glæsilega Piazza Grande og dómkirkja heilags Donato. Einnig verður stiklað á stóru í sögu Ítalíu í gegnum verk meistarans Piero della Francesca. Á rölti okkar um verslunarstræti Arezzo eru áberandi verslanir gullsmiða og skartgripasala en þeim ber að þakka fyrir velmegun borgarinnar.

11. maí | Ljúfur dagur í Assisi & Perugia

Helgi staðurinn Assisi er yndislegur virkisbær frá miðöldum í miðju Umbria héraði og er bærinn á heimsminjaskrá UNESCO. Hér fæddist heilagur Frans sem var predikari og boðaði meinlætalíf og höfnun veraldlegra gæða. Hann stofnaði hér reglu heilags Frans og reglu heilagrar Klöru frá Assisi. Við heimsækjum kirkjuna San Francesco en eftir það verður tími til að skoða sig um í þessum fallega, gamla miðaldabæ. Eftir hádegi verður stefnan tekin til höfuðborgar og stærstu borgar Umbria héraðsins, Perugia. Borgin er staðsett í 450 m hæð en þaðan er frábært útsýni yfir á Apenninefjöllin og þorpin í kring um Lago Trasimeno vatnið. Perugia er ein af fornu virkisborgunum og ber þess enn merki. Við förum í skoðunarferð um borgina og að Palazzo dei Priori sem er einn áhrifamesti staðurinn í miðbæ Perugia.

Opna allt

12. maí | Frjáls dagur

Nú eigum við rólegan dag í Passignano Sul Trasimeno. Tilvalið er að fara í gönguferð við vatnið eða í gamla bæinn en þar er hægt að fara upp í turninn á Rocca di Passignano miðaldavirkinu og njóta þar stórkostlegs útsýnis yfir vatnið, eyjarnar og sveitir Umbria héraðs. Þessi litli bær er einstaklega heillandi og gaman er að rölta um götur bæjarins, setjast inn á lítil kaffihús og kíkja í áhugaverðar handverksverslanir.

13. maí | Orvieto & Montepulciano

Þessi ljúfi dagur hefst í fallega bænum Orvieto í Umbria héraði sem byggðist upp á flötum móbergsstapa, umkringdur vínekrum og ólífutrjám. Bærinn er frægur fyrir stórkostlega dómkirkju frá 13. öld, Pozzano di San Patrizio brunninn frá 16. öld og hvítvínið sem er af mörgum talið eitt besta hvítvín landsins. Farið verður í stutta skoðunarferð um gersemar bæjarins og síðan er upplagt að fá sér hressingu. Háborg miðaldana í Toskana héraði, Montepulciano, er næst á dagskrá. Hún hvílir á kríthvítri hæð þar sem dalirnir Val d‘Orcia og Val die China mætast. Allt um kring, hvert sem litið er, blasa við vínakrar, þetta er fullkomið landslag fyrir póstkort. Við ljúkum deginum með vínsmökkun og snarli.

14. maí | Gradara & Pesaro

Kveðjum Passignano Sul Trasimeno eftir yndislega daga og tökum stefnuna á Marche héraðið en á leiðinni þangað verður áð í Pesaro við Adríahafsströndina. Pesaro er þekktastur fyrir að vera fæðingarstaður Gioachino Rossini og er vinsæll ferðamannastaður. Gullnar náttúrustrendur og fjölmargar sögulegar byggingar prýða borgina og gaman er að rölta um litrík torgin. Þá verður haldið til Gradara en miðalda borgarmúrinn sem umlykur borgina og kastalinn eru þeir best varðveittu á Ítalíu. Virkisveggirnir voru oft leiksvið bardaga sem voru háðir á milli kirkjuríkisins og íbúa Marche héraðs. Gradara er einnig þekkt fyrir sorgarsögu elskenda, sem þjóðskáldið Dante skrifaði um í Hinum guðdómlega gleðileik. Hér verður farið í skemmtilega skoðunarferð um þennan yndislega bæ. Eftir það verður ekið til Gabicce Mare þar sem gist verður í fjórar nætur á hóteli við ströndina. Á hótelinu er sundlaug og heilsulind. Gabicce Mare er heillandi strandbær við Adríahafið sem þekktur er fyrir hreinar, gylltar sandstrendur.

15. maí | Smáríkið San Marínó

Í dag er spennandi ferð á dagskrá. Við ætlum að heimsækja elsta lýðveldi í heimi, San Marínó, smáríkið sem er í 643 m hæð yfir sjó við jaðar Apenninafjalla. Náttúrufegurðin umvefur borgina sem hringar sig upp fjallið Monte Titano en hæsti tindur þess er 749 m. Þar tróna þrír kastalar á toppi fjallsins og útsýnið yfir héraðið er ægifagurt. Hér er margt að upplifa, tilkomumiklar og virðulegar byggingar setja mikinn svip á borgina og á göngu um smáríkið verða m.a. á vegi okkar stjórnarhöllin, Basilica di San Marino og kastalinn La Rocca, að ógleymdum virkisveggjunum. Síðdegis verður haldið til kastalabæjarins San Leo sem stendur á háum kletti. Útsýnið eitt og sér er þess virði að leggja leið þangað. Í miðbæ San Leo gefst frjáls tími til að skoða sig um og eins er hægt að skoða virki bæjarins en þar er í dag safn.

16. maí | Frjáls dagur

Eftir ys og þys undanfarinna daga er kærkomið að slaka á við hótelið, kanna umhverfið og rölta niður í líflegan miðbæ Gabicce Mare.

17. maí | Cervia

Eftir góðan morgunverð verður stefnan tekin á hina fornu borg Cervia sem er þekkt fyrir saltvinnslu sína. Saltið frá Cervia hefur verið kallað „il sale dolce“ eða hið ljúfa salt og þykir það sérstaklega hreint og gott. Á miðöldum var borgin frá náttúrunnar hendi umlukin síki sem bæði þrengdi að henni og var uppsprettan að mörgum sjúkdómsfaröldrum. Vegna þessa gaf páfinn út skipun árið 1697 að borgin skyldi færð austar og þar stendur hún í dag. Í bænum er turn sem kenndur er við heilagan Michael en turninn var reistur til að verja bæinn og verðmæta saltvinnslu hans fyrir árásum sjóræningja.

18. maí | Heimflug frá Róm

Nú er komið að heimferð eftir góða daga á Ítalíu. Lagt verður snemma af stað út á flugvöll í Róm. Brottför er þaðan kl. 16:20 og áætluð lending í Keflavík kl. 19:10 að staðartíma.

Fararstjóri getur fært dagskrárliði á milli daga eftir þörfum þegar komið er á staðinn.

Hótel

  • Lake Trasimeno – Hotel Villa Paradiso
  • Cabicce Mare – Hotel Sans Souci

Myndir úr ferðinni

Fararstjórn

Guðný Margrét Emilsdóttir

Guðný Margrét Emilsdóttir heiti ég, búsett í dag á Íslandi en bjó um 20 ár á Ítalíu. Á Ítalíu fór ég ítölskunám í háskólabænum Perugia (Umbria) og það var ekki aftur snúið! Lengst af bjó ég í Mílanó en vann sem leiðsögumaður með Íslendinga meira og minna um alla Ítalía. Ég lít á Ítalíu sem mitt annað heimili, elska landið, fólkið, söguna, menninguna, tungumálið, matinn og vínið. Reyndar var uppáhalds tungumálið mitt í menntó latína sem hjálpaði mér heilmikið að ná fljótt tökum á ítölskunni.

Senda fyrirspurn um ferð


bokun@baendaferdir.is
Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Sími: 570 2790




Póstlisti