Suðræn sveifla við St. Tropez

Franska rivíeran eða Côte d’Azur í Provence héraðinu tekur á móti okkur í allri sinni dýrð í þessari glæsilegu ferð. Við hefjum þó ferðina í yndislega bænum Tossa de Mar við Costa Brava ströndina á Spáni sem býr yfir merkum minjum og fornum borgarmúrum í hinum dulúðlega bæjarhluta Vila Vella. Héðan förum við í töfrandi skoðunarferðir m.a. til heimsborgarinnar Barcelona, höfuðborgar Katalóníu, sem er með fegurstu borgum álfunnar. Hún er þekkt fyrir byggingar arkitektsins Gaudí en glæstar byggingar skreyta borgina hvert sem litið er. Við bregðum okkur til Figueres, fæðingarbæjar Salvador Dalí og skoðum safnið með ævintýralegu verkunum hans. Því næst bíður bærinn Sainte-Maxime eftir okkur en hann stendur við hinn hrífandi St. Tropez flóa. Sækjum heim Aix-en-Provence sem er með glæsilegustu, en einnig dýrustu, borgum Frakklands. Suðrænn blær frönsku rivíerunnar leikur um okkur í furstadæminu Mónakó sem ógleymanlegt er að sækja heim. Við upplifum töfrandi fegurð flóans einnig á siglingu til listamannabæjarins St Tropez, sem er einn frægasti bærinn við frönsku rivíeruna. Svo er alltaf ljúft að koma til Cannes sem iðar af mannlífi en bærinn er frægastur fyrir alþjóðlegu kvikmyndahátíðina sem haldin er þar ár hvert. Endum þessa glæsilegu ferð í Nice við Côte d’Azur í Provence héraði.

Verð á mann 399.000 kr.

Aukagjald fyrir einbýli 80.300 kr.


Innifalið

  • 13 daga ferð.
  • Flug með Icelandair og flugvallarskattar.
  • Gisting í 2ja manna herbergi með baði.
  • Morgun- og kvöldverðir allan tímann á hótelum.
  • Salvador Dalí safnið í Figueres. 
  • Allar skoðunarferðir með rútu samkvæmt ferðalýsingu.
  • Íslensk fararstjórn.

Ekki innifalið

  • Aðgangseyrir inn í söfn, hallir og kirkjur.
  • Siglingar.
  • Vínsmökkun.
  • Hádegisverðir.
  • Þjórfé.

Valfrjálst

  • Sigling til St. Tropez og smálest í Sainte-Maxime u.þ.b. 25 €  
  • Höll furstafjölskyldunnar í Mónakó u.þ.b. € 15.
  • Spilavítið í Monte Carlo u.þ.b. € 18.

Kort af ferðinni

FerðalýsingPrenta ferðalýsingu

5. júní | Flug til Barcelona & Tossa de Mar

Brottför frá Keflavík kl. 8:35, mæting í Leifsstöð u.þ.b. 2,5 klst. fyrir brottför. Lending í Barcelona kl. 14:45 að staðartíma. Þaðan verður ekið á hótel í miðaldabænum Tossa de Mar á Costa Brava ströndinni. Hér munum við gista í fimm nætur á góðu hóteli. Á hótelinu er útisundlaug, líkamsrækt og heilsulind. Að degi til er einnig opinn veitingastaður við sundlaug hótelsins. Lítil lest gengur reglulega frá hótelinu inn í bæinn fyrir þá sem vilja spara sér skrefin.

6. júní | Gönguferð í Tossa de Mar & frjáls dagur

Við hefjum daginn á fróðlegri gönguferð um Tossa de Mar og göngum upp í elsta hluta bæjarins, klettabæinn Vila Vella, sem er umkringdur borgarmúrum og turnum frá 14. öld. Þaðan gefur að líta stórfallegt útsýni yfir gjörvalla klettaströnd Tossa. Að koma inn í Vila Vella er eins og að ferðast aftur í tímann en enn er búið í nokkrum gömlu húsanna innan virkisveggjanna. Að skoðunarferðinni lokinni gefst hverjum og einum frjáls tími til að kanna umhverfið á eigin vegum. Í nágrenni hótelsins eru fornar minjar frá rómverskum tímum og fyrir áhugasama er í dag frá kl. 8:00-13:00 litríkur útimarkaður í bænum.

7. júní | Heimsborgin Barcelona

Barcelona, höfuðborg Katalóníu, er með fegurstu borgum álfunnar. Hún er þekkt fyrir byggingar arkitektsins Gaudí og glæsilegar byggingar skreyta borgina hvert sem litið er. Borgin er mjög gömul og saga hennar merkileg en fegurð hennar og gestrisni íbúanna gera dvölina einstaka. Af merkum byggingum má nefna kirkjuna La Sagrada Familia eftir Gaudí og húsin Casa Battló, Casa Milá og garðinn Güell en þessi verk Gaudí eru öll komin á heimsminjaskrá UNESCO. Gotneska hverfinu má ekki gleyma og kirkjunni við hafið sem er dásamleg og margir þekkja úr bók Ildefonso Falcones. Einnig verður tími til að kanna líf bæjarbúa og líta inn á líflega kaupmenn borgarinnar.

Opna allt

8. júní | Salvador Dalí safnið í Figueres

Þennan skemmtilega dag byrjum við á því að heimsækja Figueres, fæðingarstað Salvador Dalí. Dalí safnið er eitt helsta aðdráttarafl ferðaþjónustunnar í Katalóníu og það er algjört ævintýri að koma þar inn en Dalí sjálfur hannaði safnið. Bærinn er mjög líflegur og skemmtilegur og er upplagt að fá sér hressingu áður en við höldum til baka til Tossa de Mar.

9. júní | Frjáls dagur í Tossa de Mar

Frjáls dagur til að hvíla sig, njóta lífsins, láta dekra við sig á heilsulind hótelsins eða kanna umhverfið í rólegheitum. Í bænum kennir margra grasa menningar- og mannlífs sem gaman er að kynna sér í rólegheitunum.

10. júní | Sainte-Maxime við Côte d'Azur

Eftir góðan morgunverð verður ekið að frönsku rivíerunni eða Côte d'Azur ströndinni til yndislega bæjarins Sainte-Maxime við St. Tropez flóa sem er rómaður fyrir fegurð. Þar verður gist í sjö nætur.

11. júní | Stutt gönguferð í Sainte-Maxime & frjáls tími

Eftir góðan morgunverð verður farið í stutta gönguferð um Sainte-Maxime, sem færir okkur nær lífinu við ströndina. Þetta er einn af vinsælustu ferðamannabæjum Côte d'Azur strandarinnar og búa þar um 12.000 manns. Það má segja að bærinn hafi notið góðs af frægð St. Tropez bæjarins sem er hinum megin við flóann og er Sainte-Maxime nú með fínni bæjum strandarinnar. Í Sainte-Maxime er jafnframt ein best útbúna lystisnekkjuhöfn strandarinnar. Eftir hádegi verður frjáls tími til að kanna bæinn betur á eigin vegum og fá sér hádegishressingu. Einnig er upplagt að nýta sér aðstöðuna við hótelið okkar.

12. júní | Bátsferð til St.Tropez & smálest

Við höldum í siglingu yfir til listamannabæjarins St. Tropez. Smálest ferjar okkur niður að höfn þar sem báturinn bíður okkar. Bærinn er einn aðaláfangastaður hinna ríku og frægu við frönsku rivíeruna. Brigitte Bardot býr þar og einnig halda ýmsar Hollywood stjörnur þar til í sínu orlofi. Við förum í skoðunarferð um þennan fallega, gamla virkisbæ og síðar gefst góður tími til að kanna líflegan bæinn á eigin vegum. Það er til að mynda mikil upplifun að skoða lystisnekkjur fræga fólksins í höfninni. Að lokinni siglingu aftur til Sainte-Maxime mun smálestin ferja okkur til baka á hótelið

13. júní | Furstadæmið Mónakó & spilavítin í Monte Carlo

Þennan skemmtilega dag heimsækjum við furstadæmið Mónakó, stundum kallað dvergríkið Mónakó.Við höldum í glæsilega skoðunarferð um klettaborgina en þar er að finna höll furstafjölskyldunnar og dómkirkjuna þar sem Grace Kelly var borin til grafar og haffræðisafnið. Glæsileg bygging Grand Casino spilavítisins í Monte Carlo hverfinu verður einnig skoðuð og komum við inn í Grand Casino spilavítið.

14. júní | Aix-en-Provence

Í dag höldum við til Aix-en-Provence sem er með stærri háskólaborgum landsins og nema þar um 30.000 háskólanemar. Segja má að borgin sé með dýrustu en einnig glæsilegustu borgum landsins, umkringd fjöllum og sléttum. Á listasöfnum og í kirkjum borgarinnar má líta glæsta fortíð en einnig bera fjölmargar einkahallir sem byggðar voru í barokkstíl á 17. og 18. öld merki um glæsileikann. Í dag eru þessar einkahallir reknar sem lúxushótel. Aix, eins og hún er jafnan kölluð, er einnig þekkt fyrir gómsæta möndlukonfektið sitt, Calissons. Við röltum saman um elsta hluta borgarinnar og eftir það verður frjáls tími til að njóta og fá sér hressingu.

15. júní | Frjáls dagur í Sainte-Maxime

Í dag njótum við þess að eiga frjálsan dag í Sainte-Maxime. Hægt verður að nýta sér aðstöðuna við hótelið, kanna betur fallega miðbæjarkjarnann, líta inn í skemmtilegar verslanir og fá sér hressingu á einhverju hinna fjölmörgu veitingahúsa bæjarins. Einnig er upplagt að fara í göngu með fram ströndinni.

16. júní | Cannes við Côte d'Azur

Nú verður ekin falleg leið til Cannes við Napoule flóann, heillandi borgar á fallegum stað. Í Cannes skoðum við okkur um í gamla bænum og göngum að kvikmyndahöllinni og rauða dreglinum en Cannes er einmitt frægust fyrir alþjóðlegu kvikmyndahátíðina sem haldin er þar ár hvert. Síðdegis gefst frjáls tími til þess að skoða borgina, sýna sig og sjá aðra.

17. júní | Heimferð frá Nice

Þá er þessi góða ferð á enda og nú verður ekið til Nice þar sem við fáum okkur hádegishressingu, förum í stutta skoðunarferð um borgina og eigum að lokum frjálsan tíma til að skoða okkur um, njóta mannlífsins eða kíkja á kaupmenn borgarinnar. Upplagt að fá sér kvöldverð áður en ekið er á flugvöll en brottför er kl. 23:30 og lending í Keflavík kl. 01:50 að staðartíma aðfaranótt 18. júní.

Fararstjóri getur fært dagskrárliði á milli daga eftir þörfum þegar komið er á staðinn.

Myndir úr ferðinni

Fararstjórn

Hólmfríður Bjarnadóttir

Hólmfríður Bjarnadóttir (Hófý) heiti ég og er fædd árið 1960 á Patreksfirði. Ég er móðir þriggja drengja og er búsett í Bæjaraskógi í Þýskalandi um þessar mundir með yngsta drenginn, Gabríel Daða. Eiginmaður minn er Norbert Birnböck sem er einn af bílstjórum Bændaferða.

Senda fyrirspurn um ferð

bokun@baendaferdir.is
Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Sími: 570 2790




Póstlisti