Verð á mann í tvíbýli 399.900 kr.
Aukagjald fyrir einbýli 42.100 kr.
Verð fyrir Studio herbergi á hótelinu í Seefeld 11.900 kr. á mann.
Innifalið
- 10 daga ferð.
- Flug með Icelandair og flugvallarskattar.
- Gisting í 2ja manna herbergi með baði.
- Morgun- og kvöldverður allan tímann á hótelum.
- Vínsmökkun og hádegissnarl hjá vínbónda.
- Allar skoðunarferðir með rútu samkvæmt ferðalýsingu.
- Íslensk fararstjórn.
Vert er að hafa í huga að þrátt fyrir að Bændaferðir séu alla jafna þægilegar rútuferðir er alltaf einhver ganga, t.d. í bæjarferðum. Margar evrópskar borgir eru bæði hæðóttar og ójafnar undir fæti og aðgengi að áfangastöðum þannig að leggja þarf rútunni mislangt frá. Ef þú hefur einhverjar vangaveltur varðandi þetta vinsamlegast ekki hika við að hafa samband við skrifstofu Bændaferða.