Aðventugleði í Gdańsk 2

Upplifðu heillandi aðventustemningu í Gdańsk þar sem saga, menning og notalegar samverustundir fléttast saman. Borgin, sem á rætur sínar að rekja allt aftur til miðalda, er þekkt fyrir litrík hús, falleg stræti og einstaka blöndu af gotneskum og endurreisnarstíl sem gefur henni sérstakan karakter. Heimsókn á jólamarkaðinn í Gdańsk er sannkölluð ævintýraupplifun þar sem glitrandi ljósin, ilmurinn af heitu, krydduðu víni og nýbakaðar jólakökur taka á móti þér. Litlir sölubásar bjóða upp á handverk, jólagjafir og pólskar kræsingar og lífleg stemningin skapar ógleymanlega aðventuupplifun. Á göngu um sjarmerandi miðbæinn skoðum við helstu kennileiti og missum ekki af St. Mary's götu, einni fegurstu götu Evrópu en þessi fallega gata leiðir okkur að St. Mary's Basilica, stærstu kirkju heims sem byggð er úr múrsteini. Einnig verður farið út fyrir borgina þar sem þjóðlegar hefðir og handverk fá að njóta sín. Í Chmielno kynnist hópurinn hefðbundinni leirkeragerð og í þorpinu Szymbark bíður okkar ýmislegt áhugavert, meðal annars hið fræga hús á hvolfi Dom do Góry Nogami, lengstu borð í heimi og fleiri áhugaverðar sýningar. Í ferðinni gefst einnig góður frjáls tími sem hver og einn getur notið á eigin forsendum – hvort sem það er að kafa dýpra í menninguna, versla, eða einfaldlega njóta lífsins á jólamarkaði.

Verð á mann 189.900 kr.

Aukagjald fyrir einbýli 44.900 kr.


Innifalið

  • 5 daga ferð.
  • Flug með Icelandair og flugvallarskattar.
  • Ferðir milli flugvallar og hótels.
  • Gisting í 2ja manna herbergi með baði á hóteli.
  • Morgunverður.
  • Kvöldverður á hóteli fyrsta kvöldið.
  • Skoðunarferð um miðbæ Gdansk. 
  • Dagsferð með rútu út fyrir borgina.
  • Íslensk fararstjórn.

Ekki innifalið

  • Aðgangseyrir inn í söfn, hallir og kirkjur. 
  • Hádegisverðir. 
  • Kvöldverðir aðrir en taldir eru upp undir innifalið.
  • Þjórfé.
  • Forfalla- og ferðatryggingar.

Nánari upplýsingar

Vert er að hafa í huga að þrátt fyrir að Bændaferðir séu alla jafna þægilegar rútuferðir er alltaf einhver ganga, t.d. í bæjarferðum. Margar evrópskar borgir eru bæði hæðóttar og ójafnar undir fæti og aðgengi að áfangastöðum þannig að leggja þarf rútunni mislangt frá. Ef þú hefur einhverjar vangaveltur varðandi þetta vinsamlegast ekki hika við að hafa samband við skrifstofu Bændaferða.

Kort af ferðinni

FerðalýsingPrenta ferðalýsingu

3. desember | Flug til Gdańsk

Brottför frá Keflavík kl. 07:20 og mæting í Leifsstöð u.þ.b. 2,5 klst. fyrir brottför. Lending í Gdańsk kl. 11:55 að staðartíma. Rúta ekur hópnum á hótel þar sem fólk getur komið sér fyrir og notið því næst eftirmiðdagsins á eigin vegum. Það er til dæmis gaman að rölta á jólamarkaðinn í gamla bænum og njóta þar í töfrandi aðventuumhverfi. Sameiginlegur kvöldverður á hóteli.

4. desember | Skoðunarferð um miðbæ Gdańsk

Í dag förum við í skoðunarferð um miðbæ Gdańsk með fararstjóra ásamt heimamanni. Í ferðinni kynnumst við helstu kennileitum og andrúmslofti þessa sögulega gamla miðbæjar. Þessi hluti Póllands iðar af stemningu og hér má finna minjar allt frá miðöldum til gotneska og endurreisnartímans, sem gerir Gdańsk afar áhugaverða. Svæðið er að mestu lokað fyrir bíla og gangan því sérstaklega þægileg. Ekki má missa af St. Mary's götu, einni fegurstu götu Evrópu. Þessi fallega gata leiðir okkur að St. Mary's Basilica, stærstu kirkju heims sem byggð er úr múrsteini og er ein af helstu kennileitum gamla bæjarins. Inni í kirkjunni má sjá gotnesk altaristöflur, eina stærstu miðaldaklukku heims og málverkið Dómsdagur eftir Hans Memling. Á Long Market er alltaf líf og fjör og þar gefst tækifæri til að skoða verslanir og fá sér snarl. Að skoðunarferð lokinni er frjáls tími það sem eftir lifir dags. 

5. desember | Þjóðlegur dagur út úr borginni

Nú verður haldið í skoðunarferð út úr borginni. Fyrsta stopp er í bænum Żukowo þar sem við heimsækjum litla fallega kirkju Norbertínuklaustursins sem á rætur að rekja til 13. Aldar. Hér gefst einstakt tækifæri til að fá innsýn í miðaldir Póllands og trúarsögu svæðisins. Þaðan liggur leiðin áfram til Chmielno þar sem hópurinn kynnist hefðbundinni leirkeragerð hjá Necla fjölskyldunni sem hefur stundað leirkerasmíð í tíu kynslóðir. Þar fá gestir innsýn í sögu handverksins, sjá hvernig keramikið er búið til og brennt og geta einnig verslað muni. Eftir það er haldið til þorpsins Szymbark þar sem ýmislegt áhugavert bíður okkar, meðal annars hið fræga hús á hvolfi Dom do Góry Nogami, lengstu borð í heimi og fleiri áhugaverðar sýningar.

Opna allt

6. desember | Frjáls dagur í Gdańsk

Í dag er frjáls dagur til að skoða sig um á eigin vegum í Gdańsk. Borgin býður upp á endalausa möguleika, hvort sem þú vilt rölta um fallega gamla bæinn, heimsækja söfn eða njóta lífsins á notalegum kaffihúsum og veitingastöðum. Gamli bærinn heillar með litríkum húsum, sögufrægum byggingum og líflegu andrúmslofti, þar sem tilvalið er að staldra við og njóta stemningarinnar. Heimsókn á jólamarkaðinn í Gdańsk er sannkölluð ævintýraupplifun. Í hjarta hins sjarmerandi gamla bæjar fyllast göturnar af glitrandi ljósum, ilmi af heitu krydduðu víni og nýbökuðum jólakökum. Litlir sölubásar bjóða upp á handverk, jólagjafir og pólskar kræsingar á meðan tónlist og lífleg stemning skapa ógleymanlega jólaupplifun.

7. desember | Heimferð

Þá er komið að heimferð en farið verður með rútu á flugvöllinn í Gdańsk og flogið heim kl. 12:50. Lent í Keflavík kl. 15:50 að íslenskum tíma.

Fararstjóri getur fært dagskrárliði á milli daga eftir þörfum.

Hótel

Puro Hotel Old Town Gdańsk 

Myndir úr ferðinni

Fararstjórn

Agnieszka Szczodrowska

Agnieszka Szczodrowska er fædd í Gdańsk í Póllandi og hefur verið búsett á Íslandi í 29 ár. Hún starfar sjálfstætt sem túlkur, heilsunuddari og fararstjóri og býr yfir um 15 ára reynslu í skipulagningu og leiðsögn ferða erlendis. Agnieszka býr yfir víðtækri þekkingu, ekki aðeins á stærstu borgum Póllands heldur einnig víða um Evrópu, og hefur sérstakan áhuga á sögu og félagsvísindum.

Senda fyrirspurn um ferð


bokun@baendaferdir.is
Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Sími: 570 2790




Póstlisti