Aðventufegurð í París

Töfrandi aðventuferð til Parísar, höfuðborgar Frakklands, sem er með glæsilegri borgum í Evrópu. Ljósadýrð aðventunnar er hrífandi á þessum tíma og mikil jólastemning og iðandi mannlíf um alla borg. Í töfrandi skoðunarferð um borgina sjáum við m.a. Eiffelturninn sem var reistur fyrir heimssýninguna árið 1889, eitt fegursta torg í heimi, Place de la Concorde, Louvre safnið og Sigurbogann sem er sá stærsti sinnar tegundar. Hvíta sandsteinskirkjan, Sacré Coeur, sem er í Montmartre listamannahverfinu, tekur á móti okkur í allri sinni dýrð. Sacré Coeur gnæfir hátt og þaðan er mjög fallegt útsýni yfir borgina. Við njótum þess að upplifa andrúmsloft listamanna Parísar á torginu Place du Tertre þar sem Picasso og Juan Gris máluðu svo gjarnan. París, borg ástarinnar, er undursamleg á aðventunni hún kemur öllum í rétta jólaandann og hrífur fólk með sér.

Verð á mann 209.900 kr.

Aukagjald fyrir einbýli 72.600 kr.


Innifalið

  • 5 daga ferð.
  • Flug með Icelandair og flugvallarskattar.
  • Gisting í 2ja manna herbergi með baði á 4* hóteli.
  • Morgunverður allan tímann á hóteli.
  • Einn sameiginlegur kvöldverður.
  • Allar skoðunarferðir með rútu samkvæmt ferðalýsingu.
  • Íslensk fararstjórn.

Ekki innifalið

  • Aðgangseyrir inn í söfn, hallir og kirkjur.
  • Hádegis- og kvöldverðir.
  • Þjórfé.
  • Forfalla- og ferðatryggingar.

Nánari upplýsingar

Vert er að hafa í huga að þrátt fyrir að Bændaferðir séu alla jafna þægilegar rútuferðir er alltaf einhver ganga, t.d. í bæjarferðum. Margar evrópskar borgir eru bæði hæðóttar og ójafnar undir fæti og aðgengi að áfangastöðum þannig að leggja þarf rútunni mislangt frá. Ef þú hefur einhverjar vangaveltur varðandi þetta vinsamlegast ekki hika við að hafa samband við skrifstofu Bændaferða.

Kort af ferðinni

FerðalýsingPrenta ferðalýsingu

3. desember | Flug til Parísar

Brottför frá Keflavík kl. 7:30. Mæting í Leifsstöð u.þ.b. 2,5 klst. fyrir brottför. Lending í París kl. 12:00 að staðartíma. Þaðan verður ekið á hótelið okkar sem er í miðborg Parísar, staðsett við bakka Signu og í um 10 mínútna göngufjarlægð frá Eiffelturninum. Hér verður gist í fjórar nætur. Sameiginlegur kvöldverður á hótelinu.

4. desember | Glæsileg skoðunarferð um París

Í dag skoðum við okkur um í París, höfuðborg Frakklands, en hún er sannkölluð háborg lista og menningar. París er ein af glæsilegustu borgum Evrópu og hér er margt að skoða og sjá. Byrjað verður á að aka um borgina með nokkrum stoppum m.a. við Eiffelturninn, Louvre safnið, Sigurbogann, Champs-Elysées, Óperu húsið og Concorde torgið. Eftir það verður frjáls tími til að skoða sig betur um í borginni. Líklega verður ekki hægt að stoppa með rútuna við Notre Dame kirkjuna, svo upplagt er að líta þar inn eftir skoðunarferðina. Einnig er upplagt fyrir þá sem vilja fara inn á Louvre safnið, að panta sér miða fyrir ferð á frjálsa deginum og eins ef áhugi er fyrir öðrum söfnum borgarinnar.

5. desember | Frjáls dagur í París

Nú er upplagt að skoða sig betur um í borginni á eigin vegum, því margt er um að velja í þessari glæsilegu borg. Það er vel þess virði að heimsækja Galeries Lafayette verslunarmiðstöðina, einfaldlega til að upplifa jólaskreytingarnar og ljósadýrðina. Mannlíf borgarinnar er litríkt og skemmtilegt og gaman er að setjast á gott veitingahús í borginni. Þar væri upplagt að smakka á frönsku jólakökunni, la bûche de Noel, en Frökkum finnst hún ómissandi um jólin. Eins er sjálfsagt að líta inn til kaupmanna borgarinnar og á jólamarkaðina sem eru nokkrir í borginni.

Opna allt

6. desember | Sacré Coeur kirkjan & Montmartre

Nú verður ekið að hvítu sandsteinskirkjunni Sacré Coeur sem gnæfir hátt á Montmartre hæðinni og er eitt af kennileitum borgarinnar, byggð í rómönskum og bysantískum stíl en frá henni er víðáttumikið útsýni yfir Parísarborg. Kirkjan geymir eitt stærsta mósaík í heimi. Eftir það verður farið í gönguferð um Montmartre listamannahverfið sem er fyrir aftan kirkjuna í 101 m hæð yfir Signu. Við njótum þess að upplifa andrúmsloft listamanna Parísar á torginu Place du Tertre þar sem Picasso og Juan Gris máluðu svo gjarnan. Hér er upplagt að fá sér hressingu áður en ekið verður til baka á hótelið.

7. desember | Heimferð frá París

Eftir glæsilega og áhugaverða ferð verður ekið til flugvallar. Brottför þaðan kl. 13:00 og lending í Keflavík kl. 15:40 að staðartíma.

Fararstjóri getur fært dagskrárliði á milli daga eftir þörfum þegar komið er á staðinn.

Hótel

Novotel Tour Eiffel

Myndir úr ferðinni

Fararstjórn

Björk Håkansson

Björk Håkansson er fædd á Íslandi um hásumar árið 1967 og hefur alla sína ævi verið á faraldsfæti, fyrst með foreldrum sínum og síðar á eigin vegum, svo ekki sér fyrir endann á.

Fyrir rúmum þrjátíu árum fór Björk fyrst til Mið-Austurlanda og settist á skólabekk í Amman í Jórdaníu. Þar með voru línurnar lagðar hvað varðar reglulega búsetu, samskipti og samstarf við arabaheiminn.

Senda fyrirspurn um ferð


bokun@baendaferdir.is
Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Sími: 570 2790




Póstlisti