Aðventublær í Bamberg & Würzburg

24. nóvember – 1. desember 2026 (8 dagar)

Aðventan í Þýskalandi er heillandi og mikil jólastemning er í borgum og bæjum. Ferðin hefst í borginni Bamberg sem byggð er á sjö hæðum en elsti hluti borginnar fór á heimsminjaskrá UNESCO árið 1993. Þetta er yndisleg borg sem við njótum og hrífumst af. Komið verður til gömlu ríkis- og virkisborgarinnar, Nürnberg, þar sem finna má elsta jólamarkað landsins og merkar byggingar vitna um sögu liðins tíma. Seinni hluta ferðarinnar dveljum við í borginni Würzburg í vínhéraðinu Franken. Ljósadýrð Würzburg er töfrandi á aðventunni, en þar má finna einn skemmtilegasta jólamarkað landsins. Á leið til Würzburg verður áð í Bayreuth, tónlistarborg Richards Wagners, sem hefur að geyma eitt af merkustu óperuhúsum sinnar tegundar í heiminum. Við borðum kvöldverð hjá vínbónda í Frankenvínhéraði, skoðum miðaldavirkisbæinn Rothenburg ob der Tauber og hrífumst af fallegu bindingsverkshúsum bæjarins og líflegum jólamarkaði. 

Verð á mann 299.900 kr. 

Aukagjald fyrir einbýli 56.100 kr.


Innifalið

  • 8 daga ferð.
  • Flug með Icelandair og flugvallarskattar.
  • Gisting í 2ja manna herbergi með baði.
  • Morgunverður á hótelum.
  • Tveir kvöldverðir á hótelinu í Bamberg.
  • Einn kvöldverður hjá vínbónda í Würzburg ásamt vínsmökkun.
  • Allar skoðunarferðir með rútu samkvæmt ferðalýsingu.
  • Íslensk fararstjórn.

Ekki innifalið

  • Aðgangseyrir inn í söfn, hallir og kirkjur.
  • Kláfar eða stólalyftur upp á fjöll.
  • Hádegisverðir og kvöldverðir sem eru ekki undir innifalið.
  • Þjórfé.
  • Ferða- og forfallatryggingar.

Nánari upplýsingar

Vert er að hafa í huga að þrátt fyrir að Bændaferðir séu alla jafna þægilegar rútuferðir er alltaf einhver ganga, t.d. í bæjarferðum. Margar evrópskar borgir eru bæði hæðóttar og ójafnar undir fæti og aðgengi að áfangastöðum þannig að leggja þarf rútunni mislangt frá. Ef þú hefur einhverjar vangaveltur varðandi þetta vinsamlegast ekki hika við að hafa samband við skrifstofu Bændaferða.

Kort af ferðinni

FerðalýsingPrenta ferðalýsingu

24. nóvember | Flug til Frankfurt & Bamberg

Brottför frá Keflavík kl. 7:25. Mæting í Leifsstöð u.þ.b. 2,5 klst. fyrir brottför. Lending í Frankfurt kl. 12:05 að staðartíma. Frá flugvelli verður ekið beint til Bamberg þar sem gist verður í þrjár nætur. Elsti hluti þessarar sögufrægu borgar býr yfir merkum byggingum frá miðöldum. Fáar borgir hafa náð að varðveita sögu sína svo vel. Þessar þröngu götur og fornu byggingar gefa Bamberg rómantískan blæ sem nýtur sín sérstaklega vel á aðventunni.

25. nóvember | Skemmtilegur dagur í Bamberg

Eftir notalegan morgunverð verður farið í göngu um Bamberg. Borgin er lítil en íbúar hennar eru um 71.000. Þrátt fyrir smæðina prýða hana margar merkar byggingar, m.a. glæst höll furstabiskupa, dómkirkjan, Karmelitaklaustrið og gamla ráðhúsið. Ekki má gleyma reykta bjórnum sem Schlenkerla kráin er fræg fyrir. Aðventumarkaðir borgarinnar eru töfrandi og jólastemming hrífandi.

26. nóvember | Ljúfur dagur í Nürnberg

Hrífandi og skemmtilegur dagur í Nürnberg, þessari gömlu ríkis- og virkisborg, sem er önnur stærsta borg Bæjaralands. Það er ótrúlegt en satt að nærri 90% allra bygginga í borginni skemmdust í seinni heimsstyrjöldinni, en stór hluti þeirra hefur verið endurbyggður í upprunalegri mynd. Farið verður í skoðunarferð um borgina en svo verður frjáls tími til að kanna hana á eigin vegum, fá sér hressingu og upplifa aðventustemninguna á einum elsta og frægasta jólamarkaði Þýskalands. Þá er upplagt að við fáum okkur heitan jóladrykk saman.

Opna allt

27. nóvember | Bayreuth & Würzburg

Nú er komið að því að kveðja Bamberg eftir yndislega daga og er stefnan tekin á Würzburg sem á sér langa sögu. Á leiðinni verður ekið um Oberfranken hérað, sem er þekkt fyrir sérstakt og fallegt landslag. Stoppað verður í Bayreuth, tónlistarborg Richards Wagners, sem hefur að geyma eitt af merkustu óperuhúsum sinnar tegundar í heiminum. Þar verður gefin frjáls tími til að kanna umhverfið, skoða í verslanir og fara á jólamarkaðinn. Síðan verður ekið til Würzburg þar sem gist verður í fjórar nætur.

28. nóvember | Líflegur dagur í Würzburg & kvöld hjá vínbónda

Würzburg er mjög falleg og lífleg borg og mikið um dýrðir á aðventunni. Borgin varð fyrir miklum skemmdum í seinni heimsstyrjöldinni en hefur verið byggð upp í sinni upprunalegu mynd. Það eru 85 kirkjur í borginni en íbúar eru um 130.000. Hér er einn áhugaverðasti jólamarkaður Þýskalands og gott verslunarhverfi, fyrir utan allt annað sem hægt er að skoða og upplifa. Farið verður í skemmtilega göngu um borgina og eigum frjálsan tíma en um kvöldið snæðum við kvöldverð hjá vínbónda í Franken héraði og njótum kvöldsins í góðum félagsskap.

29. nóvember | Rothenburg ob der Tauber

Frægð Rothenburg ob der Tauber er ekki að ástæðulausu, hann er einn best varðveittasti miðalda- og virkisbær Evrópu og er ævintýri líkast að koma þangað. Við röltum saman inn í bæinn og upp að jólamarkaði bæjarins og njótum þess að skoða fallegu miðaldabindingsverkshús bæjarins en þegar gengið er um er auðvelt að ímynda sér glæsta riddara miðalda þeysa um göturnar. Það er margt hægt að skoða í bænum til að mynda jólabúð og jólamarkaðinn sem er á torgi miðbæjarins eða ganga á borgarmúrnum, fara í ferð um bæinn á hestvagni og fá sér drykk á gamaldags knæpu. Hér er jólastemningin engri lík.

30. nóvember | Frjáls dagur í Würzburg

Frjáls dagur í Würzburg til að kanna borgina betur á eigin vegum. Margt er að skoða í borginni, mörg söfn og mjög áhugavert er að skoða furstabiskupa höllina og þar er einnig hægt að fara í skemmtilega vínsmökkun. Hér eru líka töfrandi aðventumarkaðir og glæsilegt verslunarhverfi. Einnig eru mjög hugguleg, gamaldags kaffi- og veitingahús í borginni.

1. desember | Heimferð frá Frankfurt

Nú er komið að heimferð eftir dýrðardaga. Eftir morgunverð verður ekið til Frankfurt. Brottför þaðan er kl. 13:05 og lending í Keflavík kl. 15:55 að staðartíma.

Fararstjóri getur fært dagskrárliði á milli daga eftir þörfum þegar komið er á staðinn.

Hótel

  • Residenzschloss Bamberg
  • Motel One Würzburg

Myndir úr ferðinni

Fararstjórn

Gísli Einarsson

Gísli Einarsson hefur unnið ýmiskonar störf, lengst af þó við fjölmiðla. Hann er í dag dagskrárgerðarmaður hjá Ríkisútvarpinu en kemur einnig reglulega fram sem skemmtikraftur á árshátíðum, þorrablótum og hvers kyns skemmtunum. Þá hefur Gísli tekið að sér að staðarleiðsöng fyrir hópa um Vesturland.
 
Gísli er eins og fleiri sveitamenn alinn upp við að menn fari ekki á fjöll nema eiga þangað erindi, annað hvort til að leita sauða eða skjóta rjúpur. Í seinni tíð hefur hann þurft að kúvenda i þeirri afstöðu því hans aðaláhugamál í dag eru fjallgöngur, innanlands sem utan.

Senda fyrirspurn um ferð


bokun@baendaferdir.is
Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Sími: 570 2790




Póstlisti