Ferðalýsing & verð

Ferðalýsing & verð

 
SvæðiðNauders

Nauders liggur í dal hátt í Alpafjöllum Austurríkis, aðeins steinsnar frá landamærum Sviss og Ítalíu. Á göngum okkar munum við fara yfir landamærin víðast hvar, sem þykir sjálfsagt á þessum slóðum. Í lok Seinni heimsstyrjaldarinnar notfærðu stríðsglæpamenn frá Þýskalandi sér það grimmt og flúðu margir hér í gegn. Saga bæjarins nær aftur til ársins 50 en þá lögðu Rómverjar fyrst veg hér yfir Reschen skarðið. Í bænum búa nú um 1500 íbúar og er hann enn umlukinn gömlum virkisveggjum sem skapa einstaka stemningu. Hér er að finna Neuderberg kastalann frá árinu 1200, sem hýsir í dag safn og veitingastað. Einnig er fjöldi verslana og öldurhúsa í bænum. Í nágrenninu var þorpi sökkt í Reschen vatnið, það eina sem stendur upp úr vatninu er kirkjuturninn, sem þykir merkileg sjón. Á veturna er þetta einn besti skíðastaður sem um getur, en allt árið er svæðið kjörið til útivistar. Í nánasta umhverfi eru 300 km af merktum gönguleiðum fyrir öll erfiðleikastig í fögru umhverfi með stórkostlegt útsýni.

 
 
ÚtivistGönguleiðir svæðisins

Gönguleiðir svæðisins hafa löngum verið vinsælar af ferðamönnum því umhverfið er einstaklega fallegt. Stórkostleg fjallasýn, barrskógar, blómaengi og fjallasel verða á vegi okkar á göngunum sem verða skipulagðar eftir veðri, aðstæðum og áhuga fólks hvern dag. Við hefjum hvern dag á að koma okkur á göngusvæðið, oft með kláf eða í leigubíl og munum því ganga víða í þremur löndum og upplifa margt. Fjóra daga göngum við um fjallasali, en einn dag þeysum við um á fjallahjólum og upplifum svæðið á nýjan máta. Við höfum einn frjálsan dag, þar sem færi gefst á að fá kennslu í fjallaklifri, fara í ferð með Segway, nú eða jafnvel leita að gulli. Alltaf er í boði að taka sér frídag og njóta þess sem heilsulind hótelsins hefur upp á að bjóða eða kanna umhverfið í rólegheitum.

 
 
Undirbúningur

Mikilvægt er að þátttakendur séu í ágætis gönguformi, en besti undirbúningurinn er að njóta náttúrunnar og ganga upp á Esjuna eða sambærilegt fjall. Gott er að ganga upp að Steini einu sinni í viku, a.m.k. tvisvar til þrisvar sinnum fyrir ferðina. Svo er alveg ljóst að ferðin verður ánægjulegri ef hjólað er hér heima nokkrum sinnum fyrir ferð

 
 
Tillaga að dagleiðum 28. ágúst – 2. september

Eftirfarandi eru mögulegar leiðir á svæðinu fyrir fimm göngudaga og einn hjóladag, en í raun verður ekki ákveðið fyrr en með skömmum fyrirvara nákvæmlega hvaða leiðir verða valdar og fer það eftir veðri og aðstæðum. Einn frídagur er í ferðinni, en auðvitað geta þáttakendur hvenær sem er valið að taka daginn rólega á hótelinu og njóta aðstöðunnar.

 Sellesköfpen 
 
1. Sellesköfpen

Við göngum yfir tún og engi í skógarjaðri Nauders og stígum svo upp í gegnum lerkiskóga á fjallið Sellesköpfen. Frá toppi fjallsins er útsýni í djúpar gjár Finstermünz og Hochfinstermünz. Við gerum hádegishlé hjá rústum Zettler sels, en þar í nágrenninu má finna stríðsminjar frá fyrri heimstyrjöldinni. Á leið okkar til baka njótum við útsýnis frá Schöpfwarte og Innblick.
 
          Göngutími: ca 4,5 klst
          Erfiðleikastig leiðar: Létt

 
 
2. Gengið til Weisskugelhütte í Suður Tíról á Ítalíu

Við tökum bíl yfir til Ítalíu og hefjum gönguna í hliðardal Etschtal dalsins. Þar göngum við yfir háslettuna að Melager seli. Leiðin liggur meðfram jökulröndinni að fjallastöðinni Weisskugelhütte, en þaðan er stórkostleg sýn yfir jökulinn. Eftir hádegishlé göngum við aftur til baka og tökum bíl aftur á hótelið. Leigubílakostnaður er ca. € 18 á mann þennan dag.
 
          Ferðalengd með akstri ca: 8 klst.
          Erfiðleikastig leiðar: Miðlungserfitt

 Uina gilið 
 
3. Gengið í Uina gili (Sviss og yfir til Ítalíu)

Við förum með bíl til Suren í Sviss og þar hefst ævintýraleg ganga í Uina gili í einstöku landslagi. Eftir að komið er að selinu Uina Dadaint liggur stígurinn meðal annars um einstígi hoggið í klettavegginn. Við njótum kyrrðarinnar í Sesvennaseli og göngum svo að Schlinig, en þaðan tökum við bíl aftur til Nauders. Leigubílakostnaður er ca. € 18 á mann þennan dag.
 
          Ferðalengd með akstri ca: 9 klst.
          Erfiðleikastig leiðar: Miðlungserfitt

 
 
4. Rosskopf

Förum með bíl til Labaunalm, en þaðan er gengið eftir slóða til Jochtal. Á leið okkar verða grösug engi með fallegum blómum við Rosskopf og við komum að litlu fallegu fjallavatni. Snarbrattir klettaveggir Finstermünz klettagjárinnar skreyta sig með alparósum og við njótum hér einstakrar náttúrufegurðar áfram til Bazahler Kopf. Á leið okkar til baka förum við yfir fjallaengi, yfir Parditschhof og komum loks til Nauders.
 
          Ferðalengd með akstri ca: 7,5 klst.
          Erfiðleikastig leiðar: Miðlungserfitt

 
Fjallganga á Mataunkopf í Nauders og Suður Tíról 
5. Fjallganga á Mataunkopf í Nauders og Suður Tíról

Við förum upp á fjall með kláfinum Bergkastelseilbahn, sem kostar um € 11 á mann. Við hefjum gönguna yfir grýtta slóð upp að fjallavötnunum Goldseen sem eru vatnsforðabúr Nauders. Eftir nokkuð bratta göngu komum við á tindinn Mataunkopf. Hér hvílum við um stund en höldum svo áfram eftir Saleztal dalnum að fjallastöðinni Bergkastel, þaðan sem við förum aftur niður með kláf.
 
          Ferðalengd með kláfferð: ca 8 klst.
          Erfiðleikastig leiðar: Erfitt

 
 
6. Hjólaferð Nauders – Suður-Tíról

Við hjólum nokkurn veginn á jafnsléttu framhjá Naudersberghöll í suðurátt á hliðargötum Reschensee vatns, þar sem kirkjuturninn einn stendur upp úr af þorpinu sem sökkt var í vatninu. Við komum að fyrrum landamærastöð Austurríkis og Ítalíu og hjólum svo eftir Vinschgauer hjólastígnum að ítölsku vötnunum Reschensee og Haidersee.
 
          Tímalengd hjólaferðar: ca. 4,5 klst.
          Erfiðleikastig leiðar: Létt til meðalerfitt

 
 
Hótelið í NaudersHotel Tirolerhof

Gist verður á hinu glæsilega 4* heilsuhóteli, Hotel Tirolerhof, sem staðsett er í miðbæ Nauders. Á hótelinu eru 62 hlýlega innréttuð herbergi í alpastíl, með sturtu/baði, hárþurrku, síma, gervihnattasjónvarpi, peningaskáp og nettengingu gegn gjaldi. Á hótelinu er huggulegt að slaka á í heilsulind hótelsins eftir góðan dag á fjöllum. Þessi glæsilega heilsulind er búin sundlaug, margskonar gufuböðum, sturtum og slökunarherbergi. Boðið er upp á ýmsar snyrtimeðferðir og nudd gegn gjaldi. Ráðgjöf um húðumhirðu og förðun fylgir dvöl okkar. Innifalið í gistingunni er ríkulegur morgunmatur með lífrænum fæðutegundum, kaffi og kökur síðdegis og fjögurra rétta kvöldverður.
 
Vefsíða hótelsins 

 
 
Flugið

Flogið verður með Icelandair til München þann 27.ágúst. Brottför frá Keflavík kl. 7.20, en mæting í Leifsstöð í síðasta lagi 2 klst fyrir brottför. Lending í München kl. 13.05 að staðartíma. Frá flugvellinum í München eru um 240 km til Nauders svo gera má ráð fyrir að rútuferðin taki rúmlega 3 klst. Á heimleið 3. september leggjum við snemma af stað út á flugvöll og flogið verður heim kl. 14.05 frá München. Lending á Íslandi kl. 16.00 að staðartíma

 
 



 
 
Verð: 177.200 kr. á mann í tvíbýli.           Mikið innifalið – athugið sérstaklega!

Aukagjald fyrir einbýli 12.200 kr.

 
 Þriggja landa útivist
 
Innifalið í þátttökugjaldinu: 

• Flug með Icelandair og flugvallarskattar.
• Ferðir milli flugvallarins í München og hótelsins í Nauders.
• Gisting 7 nætur í tveggja manna herbergi með baði á 4* hóteli.
• Glæsilegt morgunverðarhlaðborð með lífrænum fæðutegundum í boði.
• Kaffi / te og kökur síðdegis.
• Fjögurra rétta kvöldverður með valmatseðli og salatbar.
• Aðgangur að sundlaug og heilsulind hótelsins.
• Leiga á hjóli og hjálmi í einn dag.
• Göngudagskrá.
• Leiðsögn staðarleiðsögumanns í göngu- og hjólaferðum.
• Íslensk fararstjórn.

 
 
Ekki innifalið:

Aðgangseyrir inn á söfn, í hallir og kirkjur. Kláfar eða stólalyftur upp á fjöll, leigubílaakstur, hádegisverður og þjórfé, internet á hóteli. Gold Aktiv kort í kláfa og strætó svæðisins ca. € 48. Klifurgarður í 2,5 tíma ca. € 25. Segway hjólaferð í 2 tíma ca. € 40.
 
 

 

Tengdar ferðir




Póstlisti