Fararstjóri Jón

Fararstjóri Jón

 
Ég heiti Jón Guðmundsson og kem upphaflega að vestan úr dölum, en ólst að mestu leyti upp á höfuðborgarsvæðinu. Ég er grafískur hönnuður og starfa í dag sem markaðsfulltrúi og vefstjóri hjá Líflandi.
 
Alla tíð hafa útivist og ferðalög átt hug minn og hjarta. Frá því að ég man fyrst eftir mér hafa ferðalög verið eitt af mínum aðal áhugamálum, en ég hef líka mikinn áhuga á myndlist og hef haldið sýningar bæði í Frankfurt og Mainz. Þar má nefna sýningarnar „coffee with angels“ þar sem megin þema sýninganna voru englamyndir þar sem aðallega var notast við kaffi og blýant eða kaffi og krít við verkin. Tónlist er einnig eitt af áhugamálum og undanfarin 2 ár hef ég verið starfandi formaður Breiðfirðingakórsins. Oftar en ekki tek ég gítarinn fram við skemmtileg tilefni.
 
Ég hef starfað sem leiðsögumaður í sérferðum hérlendis með erlenda ferðamenn og fyrir nokkrum árum stofnaði ég fyrirtækið Geysirtravel í því sambandi. Hér á árum áður var ég búsettur bæði í Svíþjóð og í Þýskalandi.
 
Eiginkona mín er Íris Sveinsdóttir, fararstjóri hjá Bændaferðum, og saman eigum við þrjú börn sem nálgast unglingsaldurinn. Við erum svo heppin að útivist og ferðalög eru sameiginlegt áhugamál og höfum við ferðast mikið saman á erlendri grund. Við höfum einnig dvalið mikið í Mainz þar sem Íris rekur m.a. hárgreiðslustofu, svo það má segja að borgin sé okkar annað heimili. 
 


 
Árið 2012 fer Jón í ferðina: Jólaferð til  Mainz 30. nóvember - 3. desember 2012
    


 
Umsganir farþega um Jón frá jólferð til Mainz 2011
 
"Ekki spurning, hress og skemmtilegur, var fræðandi og var duglegur að blanda geði við gestina. Frábær farastjóri!"
 
"Hann er svæðinu vel kunnugur, miðlar vel fróðleik og er samviskusamur sem fararstjóri.
 
"Hann skilar sínu starfi vel og er alúðlegur og nokkuð klár drengur"

 

 

Tengdar ferðir




Póstlisti