Ferðalýsing & verð

Ferðalýsing & verð

 
11. september           Flug til Genf & akstur til ValenceBrúin, Pont du Gard

Brottför frá Keflavík kl. 7.20. Mæting í Leifsstöð í síðasta lagi 2 klst. fyrir brottför. Lending í Genf kl. 13.00 að staðartíma. Nú verður ekin fögur leið inn í Frakkland til borgarinnar Valence í miðjum Rhone dalnum. Hún er ein af gömlu rómversku borgunum. Ávaxta- og grænmetisrækt einkenna landbúnaðaðarframleiðslu héraðsins og er nágrenni borgarinnar þakið slíkum ökrum. Hér verður gist fyrstu nóttina.

 
 
12. september           Pont du Gard, Les Baux & St. Maxime

Ekið verður suður að hæstu vatnsleiðslubrú sem Rómverjar byggðu. Brúin, Pont du Gard, sem er 49 m há, var notuð í 400-500 ár og liggja vatnsleiðslurnar til nágrannaborgarinnar Nîmes. Skammt undan er ævintýrabærinn Les Baux sem var áður fyrr miðstöð trúbadora og mótmælenda. Dásamleg fegurð umvefur staðinn og er útsýnið frá bænum stórkostlegt. Að lokinni heimsókn í Les Baux verður ekið að frönsku Rivíerunni eða Côte d'Azur ströndinni til yndislega bæjarins St.Maxime við St.Tropez flóann. Þar verður gist í 7 nætur á huggulegu hóteli nálægt ströndinni. Hótelið er með sundlaugargarði með sólbaðsaðstöðu, líkamsræktaraðstöðu, innisundlaug og heilsulind með tyrknesku gufubaði. Einungis tekur um 15 mínútur að ganga meðfram ströndinni inn í miðbæ St. Maxime.

 
 
13. september           Corniche de l'Estérel „Gullströndin“ & CannesCannes Film Festival

Nú verður ekin falleg leið með Corniche de l'Estérel ströndinni sem kölluð er „Gullströndin“. Stórbrotið landslag ber fyrir augu á leiðinni til Cannes, heillandi borgar á fallegum stað. Gengið er að kvikmyndahöllinni og að sjálfsögðu á rauða dreglinum, en Cannes er einmitt frægust fyrir alþjóðlegu kvikmyndahátíðina sem haldin er þar ár hvert. Síðdegis gefst frjáls tími til þess að kanna borgina á eigin vegum, ásamt því að sýna sig og sjá aðra.

 
 
14. september           Stutt gönguferð í St. Maxime & frjáls tími

Eftir góðan morgunverð verður farið í stutta gönguferð um St. Maxime, sem færir okkur nær lífinu við ströndina. Þetta er einn af vinsælustu ferðamannabæjum Côte d'Azur strandarinnar og búa þar um 12.000 manns. Það má segja að bærinn hafi notið frægðar St. Tropez bæjarins sem er hinum megin við flóann og er St. Maxime nú með fínni bæjum strandarinnar. Í St. Maxime er jafnframt ein best útbúna lystisnekkjuhöfn strandarinnar.

 
 
15. september           Dagur í Aix-en-ProvenceDagur í Aix-en-Provence

Aix-en-Provence er með stærri háskólaborgum landsins og nema þar um 30.000 háskólanemar. Hægt er að segja að borgin sé með dýrustu en einnig glæsilegustu borgum landsins, umkringd fjöllum og sléttum. Á listasöfnum og í kirkjum borgarinnar má líta glæsta fortíð, en einnig bera fjölmargar einkahallir sem byggðar voru í barokkstíl á 17. og 18. öld þess merki. Í dag eru þessar einkahallir reknar sem lúxushótel. Aix, eins og hún er jafnan kölluð, er einnig þekkt fyrir gómsæta möndlukonfektið sitt, Calissons. Farið verður í skemmtilega skoðunarferð um borgina með heimamanni, en eftir það verður frjáls tími til að kanna borgina á eigin vegum.

 
 
16. september           Furstadæmið Mónakó & spilavítin í Monte Carlo

Þennan skemmtilega dag heimsækjum við Furstadæmið Mónakó, sundum kallað dvergríkið. Byrjað verður á að skoða kaktusgarðinn, en þaðan er glæsilegt útsýni yfir borgina og klettinn, sem gamli bærinn var reistur á. Við höldum í skoðunarferð um klettaborgina, en þar er að finna höll furstafjölskyldunnar og dómkirkjuna þar sem Grace Kelly var borin til grafar. Glæsileg bygging Grand Casino spilavítisins er einnig á þessu svæði.

 St. Maxime 
 
17. september           Frjáls dagur í St. Maxime

Í dag njótum við þess að eiga frjálsan dag í St. Maxime. Hægt verður að nýta sér aðstöðuna við hótelið og kanna betur fallega miðbæjarkjarnann, líta inn í skemmtilegar verslanir eða fá sér hressingu á einhverju af fjölmörgum veitingahúsum bæjarins. Einnig er upplagt að fá sér göngu meðfram ströndinni.

 
 
18. september           Bátsferð til St.Tropez & smálest

Við höldum í glæsilega siglingu í dag yfir til listamannabæjarins St. Tropez. Smálest ferjar okkur niður að höfn þar sem báturinn bíður okkar. Bærinn er einn aðaláfangastaður hinna ríku og frægu við frönsku Rívíeruna, en þar býr Brigitte Bardot og þar halda einnig fleiri Hollywood stjörnur til yfir sumar- og / eða vetrartímann. Við förum í skoðunarferð um bæinn með heimamann í fararbroddi og síðar gefst góður tími til að kanna þennan líflega bæ á eigin vegum. Mikil upplifun er að skoða lystisnekkjur fræga fólksins í höfninni. Að lokinni siglingu aftur til St. Maxime mun smálestin ferja okkur til baka á hótel.

 
 
19. september           St. Maxime & GalliardAvignon

Í dag kveðjum við þennan draumfagra stað og ökum í átt að Genf til Galliard þar sem gist verður síðustu nóttina. Á leiðinni verður stoppað í hinni sögufrægu borg Avignon, m.a. við höllina sem var íverustaður páfans á 14. öld. Þar er hægt að fá sér hressingu og upplifa þessa glæsilegu borg.

 
 
20. september            Heimferð frá Genf

Eftir glæsilega og skemmtilega ferð verður ekið til Genf. Brottför þaðan kl. 14.00 og lending í Keflavík kl. 15.50 að staðartíma.

 
 
 
Fararstjóri getur fært dagskrárliði á milli daga eftir þörfum þegar komið er á staðinn.

 
 



 
 
Verð: 238.900 kr. á mann í tvíbýli.           Mikið innifalið – athugið sérstaklega!

Aukagjald fyrir einbýli er 58.800 kr.

 
 Suðræn sveifla við Saint-Tropez
 
Innifalið: 

• Flug með Icelandair og flugvallaskattar.
• Gisting í 2ja manna herbergi með baði.
• Morgun- og kvöldverður allan tímann á hótelum.
• Allar skoðunarferðir með rútu samkvæmt ferðalýsingu.
• Íslensk fararstjórn.

 
 
Ekki innifalið:

Aðgangseyrir inn í söfn, hallir og kirkjur. Siglingar og vínsmökkun. Hádegisverðir. Þjórfé.

 
 
Valfrjálst:

Pont du Gard ca. € 3. Sigling til St. Tropez ca. € 25. Kaktusgarðurinn í Mónakó ca. € 6. Höll furstafjölskyldunnar í Mónakó ca. € 8. Smálest ca € 10.

 
 
 
 
 

Ferðaskilmálar Bændaferða
 
 

 

Tengdar ferðir




Póstlisti