17. – 24. janúar 2026 (8 dagar)
Sölden skíðasvæðið í Tíról er eitt það besta í austurrísku Ölpunum og er staðsett í dalnum Ötztal um 85 km suðvestur af Innsbruck. Ötztal er einn fallegasti dalurinn þar um slóðir og þetta yndislega svæði er umkringt háum tignarlegum fjallstindum, jöklum, skógum, ám og ísilögðum vötnum. Hér er hægt að skíða í mikilli hæð eða allt að 3300 metra hæð, enda liggur hluti svæðisins á jökli og snjóframleiðslan því mjög góð. Helstu skíðasvæðin eru Giggijoch, Gaislachkogl og jöklarnir tveir Rettenbach og Tiefenbach, en þeir eru stærstu jöklar Austurríkis sem hægt er að skíða á. Hér er því hægt að stóla á skíðafæri frá haustmánuðum og fram á vor. Það eru yfir 30 lyftur í Sölden og yfir 140 kílmetrar af brekkum fyrir öll getustig. Fjölmargir skíðaskálar eru í brekkunum sem taka á móti gestum og bera fram mat og drykk. Það er gjarnan mikil stemmning eftir skíðadaginn enda er Sölden þekkt fyrir ríka Après-Ski menningu. Þess má einnig geta að hluti James Bond myndarinnar, Spectre, með Daniel Craig var tekin upp á svæðinu og á fjallinu Gaislachkogl, er þar er skemmtilegt safn um myndina. Flogið er með Icelandair til Innsbruck og ekið sem leið liggur á hótelið í Sölden. Fararstjóri er með hópnum alla ferðina og gistir á sama hóteli. Í þessum fallegu fjallasölum Austurríkis má svo sannarlega upplifa ógleymanleg ævintýri, skemmtun og slökun.