Hótel í ferðinni Sri Lanka - perla Indlandshafs

Hótel í ferðinni Sri Lanka - perla Indlandshafs

Cinnamon Lakeside Colombo - 5* hótel í Colombo 

Þar er sundlaug, líkamsræktaraðstaða og heilsulind. Hótelið er staðsett í miðborginni við Beira vatnið, sem er vin í ys og þys borgarinnar. Við vatnið er fjölbreyttur gróður og mikið fuglalíf og þar er hægt að sigla á litlum bátum. Í miðju vatnsins er lítil eyja þar sem finna má eitt þekktasta búddahof Colombo búa, Seema Malaka.

Cinnamon Lodge -  5* hótel í Habarana 

Hótelið stendur á fallega grónu svæði við Habarana vatnið skammt utan við þorpið, þar er sundlaug og heilsulind.

Kandy Myst by Cinnamon - 5* hótel í Kandy

Hótelið er borginni Kandy en er hannað þannig að fólk upplifi frí frá ys og þys borgarinnar. Það er þaksundlaug á hótelinu og gróskumikill fallegur garður.

Araliya Green Hills - 4* stjörnu hótel í Nuwara Eliya

Hótelið stendur í fallegu grænu umhverfi í hálöndum Sri Lanka. Á hótelinu er upphituð sundlaug, líkamsrækt og þar er frábært útsýni yfir gróskumikla dali og heillandi fjöll í fjarska.

Cinnamon Wild - 4* hótel í Yala þjóðgarðinum

Náttúrufegurð og dýralíf eru í aðalhlutverki á þessu skemmtilega hóteli sem stendur í jaðri þjóðgarðsins.

Heritance Ahungalla - 5* hótel í Ahungalla

Hótelið stendur við Ahungalla ströndina, þar er sundlaug, líkamsrækt og heilsulind.




Póstlisti