22. september Flug til München - Linz í Austurríki
Brottför frá Keflavík kl. 07.20. Mæting í Leifsstöð í síðasta lagi 2 klst. fyrir brottför. Lending í München kl. 13.05 að staðartíma. Þaðan ekið til Linz, töfrandi borgar í Austurríki þar sem gist verður fyrstu nóttina.
23. september Linz - Maribor í Slóveníu
Eftir góðan morgunverð kveðjum við Linz og ökum fagra leið til borgarinnar Maribor sem stendur við ána Drau í Slóveníu. Allt umhverfis borgina vex ein elsta vínviðartegund í heimi sem setur svo sannarlega svip á annars stórfallegt umhverfi borgarinnar. Borgin var tilnefnd sem menningarborg Evrópu árið 2012 og er ein af eftirsóttustu ferðmannaborgum landsins. Þegar komið er til Maribor verður byrjað á því að fá sér hressingu og síðar verður farið í skemmtilega skoðunarferð um áhugaverðustu staði borgarinnar. Að henni lokinni verður ekið á hótel þar sem gist verður í eina nótt í miðbæ Maribor.
24. september Biograd í Króatíu
Að loknum morgunverði heldur för okkar áfram suður til Króatíu og verður ekið eftir Dalmatíuströndinni til Biograd. Þar verður gist í fimm nætur á hóteli við sjóinn. Stuttur gangur er í miðbæ Biograd, en bærinn er sjálfur ekki af verri endanum, enda umlukinn mikilli náttúrufegurð. Komið verður um miðjan dag til Biograd svo tími verður til að kanna nánasta umhverfið í þessum töfrandi strandbæ fyrir kvöldverð. Hótelið býður upp á einkaströnd (malarströnd), sundlaug, nuddpott, heilsulind, fallegan garð, og líkamsræktaraðstöðu svo auðvelt verður að láta líða úr sér og njóta dvalarinnar út í ystu æsar.
25. september Krka þjóðgarðurinn og Krka fossarnir
Í dag ferðumst við um gimstein Dalmatíu, sjálfan Krka þjóðgarðinn og skoðum hina frægu Krka fossa. Þarna blasir við ólýsanleg fegurð þar sem hin 73 km langa á Krka, sem þjóðgarðurinn fær nafn sitt af, rennur tignarleg um. Fossar, stallar og árhylir mynda saman stórkostlegt náttúrusjónarspil sem hrífur alla sem staðinn heimsækja. Hér er um að gera að klæðast góðum skóm, því eina leiðin til að virða fyrir sér dýrðina er fótgangandi.
26. september Frjáls dagur í Biograd
Í dag gefst hverjum og einum tækifæri til að skoða Biograd betur á eigin vegum, kanna umhverfið eða notfæra sér aðstöðuna við hótelið. Upplagt að fara í göngutúr eftir ströndinni og njóta fegurðar þessa dásamlega staðar.
27. september Split og Trogir
Að loknum morgunverði höldum við í skoðunarferð til sögufrægu borgarinnar Split, sem telst með fegurstu borgum landsins. Virðulegar byggingar og minjar frá tímum Rómverja prýða borgina og hefur elsti hluti hennar verið á heimsminjaskrá UNESCO síðan árið 1979. Borgin er eins og lifandi safn. Við heimsækjum Diokletian-höllina, sem telst til eins merkilegasta minnisvarða byggingarlistar frá tímum Rómverja, en hún var byggð á mettíma á árunum frá 295 – 305 e.Kr. Höllin er líflegur staður og er oft nefnd hjarta borgarinnar. Eftir góðan tíma í borginni verður ekið til Trogir, snoturs bæjar úti á smáeyju, sem tengd er meginlandinu. Elsti hluti Trogir er einnig varðveittur á heimsminjaskrá UNESCO.
28. september Dagur í Zadar
Á dagskránni í dag er dagsferð til aldagömlu lista- og menningarborgarinnar Zadar, en þaðan er einstakt útsýni yfir hinar fjölmörgu króatísku eyjar. Við hefjum heimsóknina á stuttri skoðunarferð um borgina og að henni lokinni gefst hverjum og einum tími til að skoða borgina á eigin vegum. Upplagt er að fá sér hressingu, kanna líf bæjarbúa og líta inn til kaupmanna. Komið verður snemma heim á hótel og getur fólk tekið því rólega það sem eftir er dagsins.
29. september Biograd - Salzburg í Austurríki
Nú er komið að því að kveðja þetta yndislega land. Eftir morgunmat verður ekin falleg leið til fæðingarborgar Mozarts, Salzburg. Borgin er þekkt fyrir byggingar í barokkstíl og er í hugum margra hin sannkallaða perla Austurríkis.
30. september Dagur í Salzburg
Við hefjum daginn á stuttri skoðunarferð um borgina, skoðum Mirabellgarðinn og göngum eftir Getreidegasse, en hún er með elstu og þekktustu götum borgarinnar. Þar er að finna mjög áhugavert Mozartsafn. Í góðu veðri er gaman að koma upp í kastalann Hohensalzburg, en þar var hluti kvikmyndarinnar Söngvaseiðs eða Sound of Music tekin upp. Falleg sýn er þaðan yfir borgina, Salzburgerland og stórfenglegt umhverfi Alpanna í kring sem eru aðdráttarafl fjölda ferðamanna ár hvert. Síðdegis gefst hverjum og einum tími til að kanna mannlíf borgarinnar á eigin vegum.
1. október Heimferð frá München
Eftir frábæra ferð verður ekið frá Salzburg til München. Brottför er kl. 14.05 og lending í Keflavík kl.16.00 að staðartíma.
Fararstjóri getur fært dagskrárliði á milli daga eftir þörfum þegar komið er á staðinn.
Verð: 193.700 á mann í tvíbýli. Mikið innifalið – athugið sérstaklega!
Aukagjald fyrir einbýli er 37.700 kr.
Innifalið:
• Flug með Icelandair og flugvallaskattar.
• Gisting í 2ja manna herbergi með baði.
• Morgun- og kvöldverður allan tímann á hótelum.
• Allar skoðunarferðir með rútu samkvæmt ferðalýsingu.
• Íslensk fararstjórn.
Ekki innifalið:
Aðgangseyrir inn á söfn, í hallir og kirkjur. Kláfar eða stólalyftur upp á fjöll. Siglingar og vínsmökkun. Hádegisverðir. Þjórfé.
Valfrjálst:
Krka þjóðgarðurinn / fossar ca. Kn 110. Hohensalzburg ca. € 8.
Ferðaskilmálar Bændaferða