Ferðalýsing & verð

Ferðalýsing & verð

 
4. október           Flug til Frankfurt & WiesbadenSigling á Rín

Brottför frá Keflavík kl. 7.25 og lending í Frankfurt kl. 12.50 að staðartíma. Rúta flytur okkur til fallegu borgarinnar Wiesbaden. Seinnipartinn er frjáls tími og upplagt að rölta um glæsilegan miðbæinn og kanna umhverfið. Gist verður í 4 nætur á hóteli í miðbænum.

 
 
5. október           Rüdesheim, sigling á Rín & Koblenz

Í dag verður ekið til bæjarins Rüdesheim. Hann er þekktur fyrir gömul og falleg bindiverkshús og skemmtilegar, þröngar götur svo sem Drosselgasse sem iðar af mannlífi. Farið verður í stutta ferð með kláfi upp vínhæðirnar sem liggja fyrir ofan bæinn, að Niederwald minnisvarðanum, en þaðan er einstaklega fallegt útsýni yfir Rínardalinn. Eftir góðan tíma þar verður farið í skemmtilega siglingu á Rín til borgarinnar Koblenz. Í siglingunni sjáum við ógleymanlegt landslag, kastala frá miðöldum, vínbæinn St. Goarshausen rétt hjá hinum 132 metra háa Loreley kletti ásamt öðrum undurfallegum vínþorpum. Þessi hluti Rínardalsins var settur á heimsminjaskrá UNESCO vegna fjölda miðaldakastala sem er að finna á leiðinni. Koblenz stendur við hið svokallaða Deutsches Eck og er oft nefnt eitt fallegasta horn Þýskalands, en þar mætast árnar Mósel og Rín.

 
 
6. október           Skoðunarferð um Wiesbaden & frjáls tími

Höll í Wiesbaden

Í dag verður farið í skemmtilega skoðunarferð um borgina Wiesbaden sem er höfuðborg Hessen. Borgina einkenna glæsilegar byggingar frá nýliðnum öldum, hallir og herragarðar, en hún er jafnframt kunn fyrir heilsuböð og hið glæsilega Casino sem staðsett er í miðbænum. Að skoðuninni lokinni verður frjáls tími til að rölta um miðbæinn, kíkja í verslanir eða setjast á kaffihús og fylgjast með mannlífinu. Um kvöldið er sameiginlegur kvöldverður á veitingastað í miðbænum.

 
 
7. október          Dagur í Heidelberg

Eftir morgunverð ökum við til Heidelberg sem er ein elsta háskólaborg Þýskalands. Borgin stendur á bökkum árinnar Neckar sem setur svip á þennan glæsilega gamla bæ. Miðbærinn er einstaklega fallegur með gömlum byggingum og fallegri dómkirkju og ekki skemmir rómantík Heidelberg hallarinnar sem trónir yfir borginni. Eftir skoðunarferð gefst tími til að njóta borgarinnar á eigin vegum áður en haldið verður aftur til Wiesbaden.

 
 
8. október           Frjáls dagur í Wiesbaden

Heidelberg

Í dag er upplagt að njóta þess að skoða Wiesbaden á eigin vegum, líta inn til hinna fjölmörgu kaupmanna borgarinnar og á skemmtileg kaffi- og veitingahús. Um kvöldið njótum við sameiginlegs kvöldverðar á einum veitingastað borgarinnar.

 
 
9. október           Heimferð frá Frankfurt

Að loknum morgunverði verður ekið til Frankfurt. Brottför þaðan er kl. 14.00 og lent verður í Keflavík kl. 15.35 að staðartíma.

 
 
 
Fararstjóri getur fært skoðunarferðir milli daga eftir því sem þörf þykir, þegar komið er á staðinn.


 



 
 
Verð: 123.500 kr. á mann í tvíbýli.           Mikið innifalið – athugið sérstaklega!

Aukagjald fyrir einbýli er 18.800 kr.

 
Haustfegurð við Rín - Rüdesheim


 
Innfalið:

• Flug með Icelandair og flugvallaskattar.
• Gisting í 2ja manna herbergi með baði.
• Morgunverður allan tímann á hótelinu.
• Tveir kvöldverðir á veitingahúsum í Wiesbaden.
• Allar skoðunarferðir með rútu samkvæmt ferðalýsingu.
• Sigling frá Rüdesheim til Koblenz.
• Íslensk fararstjórn.

 
 
Ekki innifalið:

Aðgangseyrir á söfn, í kláf, hallir og kirkjur. Hádegisverðir. Þrír kvöldverðir. Þjórfé.

 
 
Valfrjálst:

Kláfur í Rüdesheim ca. € 8. Heidelberg höllin € 6.

 

 
 

 Ferðaskilmálar Bændaferða

 
 

 

Tengdar ferðir




Póstlisti