Svigskíðaferð til Saalbach-Hinterglemm

Saalbach - Hinterglemm hefur stundum verið nefnd skíðaparadís Alpanna og ekki að  ástæðulausu. Púðursnjór, fjölbreyttar brekkur og kristaltært loft gerir skíðaferð til Saalbach - Hinterglemm að ógleymanlegu fríi og lætur engan ósnortinn. Þessir tveir líflegu systrabæir eru í 1000 m hæð og eru skíðabrekkurnar samtals um 270 km á öllum erfiðleikastigum. Gist er á 4* hóteli í Hinterglemm þar sem morgunverðarhlaðborð og kvöldverður er innifalið. Skíðalyftur eru staðsettar rétt hjá hótelinu og mikill kostur að geta farið beint í skíðalyfturnar á morgnana. Hótelið býður upp á heilsulind, stutt er í miðbæinn með fjöldann allan af líflegum aprés-ski börum. Flogið er með Icelandair til Salzburgar og ekið sem leið liggur beint á hótelið í Hinterglemm. Fararstjóri er með hópnum alla ferðina og gistir á sama hóteli.

Verð á mann 398.900 kr.

Aukagjald fyrir einbýli 157.100 kr.


Innifalið

  • 8 daga ferð.
  • Flug með Icelandair til Salzburgar og flugvallarskattar.
  • Rútuferð á milli flugvallarins í Salzburg og beint á hótelið í Hinterglemm.
  • Gisting í tveggja manna herbergi með baði á 4* hóteli í Hinterglemm.
  • Glæsilegt morgunverðarhlaðborð.
  • Síðdegishressing.
  • Fjögurra rétta kvöldverður með valmatseðli, forrétta- og salatbar.
  • Aðgangur að öllu því sem heilsulind hótelsins hefur upp á að bjóða.
  • Íslensk fararstjórn.

Ekki innifalið

  • Skíðapassi (6 daga skíðapassi fyrir fullorðinn u.þ.b. € 410)
  • Aukagjald fyrir skíði í flug.
  • Hádegisverðir.
  • Forfalla- og ferðatrygging
  • Þjórfé.

Kort af ferðinni

FerðalýsingPrenta ferðalýsingu

Skíðasvæðið

Skíðabrekkurnar eru samtals um 270 km og er úr mörgu að velja. Hæsta skíðabrekkan er í 2.096 m hæð yfir sjó, en bærinn Hinterglemm er í 1000 m hæð. Skíðabrekkurnar skiptast í 140 km af bláum brekkum (léttar), 112 km af rauðum brekkum (miðlungs) og 18 km af svörtum brekkum (erfiðar). Brekkur svæðisins eru að sjálfsögðu tengdar saman, hvort sem þær tilheyra Saalbach eða Hinterglemm. Því ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi í þessari skíðaparadís. Í boði eru um 70 skíðalyftur sem flytja fólk á milli fjölbreyttra skíðabrauta. Fyrir þá sem eru á snjóbrettum er svæði sérstaklega gert fyrir snjóbrettaiðkendur. Víðsvegar á skíðasvæðinu eru fjölmargir veitingaskálar og barir þar sem upplagt er að setjast niður og njóta yndislegs útsýnis og hvíldar yfir kakóbolla áður en haldið er áfram. Sjá nánari upplýsingar á vefsíðu Saalbach - Hinterglemm svæðisins.

Hótel

Hotel Almrausch er 4* alpahótel í í Saalbach Hinterglemm. Öll herbergin eru með sturtu, sjónvarpi, öryggishólfi og hárþurrku. Á hótelinu er heilsulind með finnskri saunu, gufubaði og innfrarauðri saunu og svæði þar sem gott er að slappa af eftir góðan dag í fjöllunum. Á hótelinu er hlýlegur sælkera veitingastaður. Hótelið er staðsett í aðeins 5 mínútna göngufjarlægð frá miðbæ Hinterglemm þar sem finna má skíðaleigur, verslanir og fjölmarga líflega aprés-ski bari. Sjá nánar á vefsíðu hótelsins.

Flugið

Flogið verður með Icelandair til Salzburgar þann 24. janúar. Brottför frá Keflavík kl. 8:00 en mæting í Leifsstöð u.þ.b. 2,5 klst fyrir brottför. Lending í Salzburg kl. 12:50 að staðartíma. Frá flugvellinum í Salzburg eru um 90 km til Saalbach-Hinterglemm svo gera má ráð fyrir að rútuferðin taki um 1,5 klst.  Á brottfarardegi er flogið heim kl. 14:00 frá Salzburg. Lending á Íslandi kl. 17:30. 

Myndir úr ferðinni

Fararstjórn

Sævar Skaptason

Sævar Skaptason hefur alla tíð verið mikið fyrir útivist. Hann byrjaði að starfa við ferðaþjónustu árið 1981 og var þá skálavörður í skála Ferðafélagsins í Langadal, Þórsmörk, til ársins 1986. Yfir sumartímann árin 1989 og 1990 starfaði hann einnig sem skálavörður í Landmannalaugum. Sævar var framkvæmdastjóri Ferðaþjónustu bænda frá árinu 1998-2023 og er í dag stjórnarformaður Ferðaþjónustu bænda.

Senda fyrirspurn um ferð


bokun@baendaferdir.is
Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Sími: 570 2790




Póstlisti