Á gönguskíðum í Seefeld 8
11. - 18. febrúar 2023 (8 dagar)
Vetrarfrí á gönguskíðum í skemmtilegum félagsskap og fallegu umhverfi er sannkallaður draumur útivistarfólks. Seefeld býður upp á allt það besta til að gera ferðina að ógleymanlegu vetrarævintýri. Svæðið við Seefeld er einstaklega fallegt og fjölbreytt. Skíðabrautir svæðisins eru rúmlega 245 km langar, þær eru í 1.200 – 1.550 m hæð yfir sjávarmáli og henta jafnt byrjendum sem lengra komnum. Gist verður á glæsilegu 4* hóteli í bænum þar sem fullt fæði er innifalið. Á hótelinu er notaleg heilsulind með sundlaug, sauna og eimbaði. Flogið er með Icelandair til München og ekið sem leið liggur til Seefeld en þangað eru um 160 km.
Í ferðinni verða tveir fararstjórar sem munu vera með skipulega dagskrá, boðið verður upp á styttri og lengri ferðir og gjarnan staldrað við í hádegi á notalegum veitingastað. Þeir sem vilja frekar taka því rólega og njóta þess að skíða á sínum eigin forsendum í dásamlegu umhverfi gera það. Markmiðið er að allir njóti sín við bestu mögulegu aðstöðu sem Alparnir hafa upp á að bjóða.