7. - 12. september 2024 (6 dagar)
Glæsileiki, rómantík og ölduniður Lago Maggiore vatnsins undirstrika fegurð Ítalíu og töfra Alpafјallanna í þessari skemmtilegu ferð þar sem dekrað verður við okkur í bænum Stresa. Við njótum þess að slaka á í vatnaparadísinni, sem rómuð er fyrir fegurð, og láta dásamlegan suðrænan blæ leika um okkur. Margar töfrandi skoðunarferðir standa til boða, svo sem hrífandi sigling á Lago Maggiore vatni til eyjunnar Isola Bella sem er ein Borromeo eyjanna. Þar sjáum við glæsilega höll í miðjum lystigarði, einum þeim fegursta sunnan Alpafјalla.Við munum einnig fara í siglingu á Comovatni frá Como til yndislega bæjarins Bellagio sem liggur út á fögrum tanga og er sannkölluð perla við vatnið. Heimsborgin Mílanó ætlar að taka á móti okkur með öllum sínum töfrum og glæstu byggingum. Borgin er yndisleg og alltaf gaman að sækja heim.