1. - 11. maí 2024 (10 dagar)
Gardavatn hefur verið einn vinsælasti áfangastaður Íslendinga til margra ára, enda meðal allra fegurstu staða á Ítalíu. Sjálfur Goethe líkti staðnum við himnaríki og skal engan undra. Við hefjum þessa ljúfu ferð á því að aka upp í stórbrotin Alpafjöllin, suður til Brixen í Trentino á Ítalíu en árnar Eisack og Rienz, ásamt umlykjandi vínekrum og aldingörðum, gera Brixen að einstaklega heillandi og fallegum stað. Við upplifum mikla náttúrufegurð uppi á Plose, heimafjalli Brixen bæjar, áður en ekið verður til Riva del Garda sem tekur á móti okkur við hið sægræna Gardavatn. Bærinn stendur á fallegum stað við vatnið og er einn vinsælasti ferðamannastaður svæðisins. Við munum fara í áhugaverðar skoðunarferðir, m.a. til Feneyja sem hefur löngum verið kölluð drottning Adríahafsins. Förum í yndislega siglingu á Gardavatni til bæjanna Limone og Malcesine, heimsækjum Veróna, eina elstu og fallegustu borg Norður-Ítalíu, og skoðum hina dulúðlegu pílagrímskirkju Madonna della Corona. Í þessari ljúfu ferð ætlum við að njóta samverunnar í undurfögru umhverfi á Ítalíu.