Parc Hotel Florian

Parc Hotel Florian

Gist verður allar næturnar á Parc Hotel Florian í Alpaþorpinu Seis am Schlern sem stendur við rætur Schlern fjallsins. Hótelið er í 1000 metra hæð og þar er víðáttumikið útsýni. Innifalið er vel útilátið morgunverðarhlaðborð, síðdegissnarl og margrétta kvöldverður með litríku salat- og forréttahlaðborði. Á hótelinu er heilsulind með sauna, gufubaði, heitum potti og innrauðum hitaklefa. Herbergin eru notaleg með baði/sturtu, hárþurrku, sjónvarpi, öryggishólfi, baðslopp og snyrtivörum. Ókeypis þráðlaust net er á hótelinu. Sjá nánar á https://www.hotelflorian.it/en.html.




Póstlisti