Bretagne skaginn & París

24. september - 2. október 2024 (9 dagar)

Þessi glæsilega ferð hefst í friðsældinni í Normandí héraði sem einkennist af eplaökrum og aldagömlum borgum. Þaðan verður farið yfir á Bretagne skagann, á slóðir frönsku sjómannanna sem sóttu á Íslandsmið fyrr á öldum. Frá borginni Caen verður ekið meðfram ströndinni sem var sögusvið merkilegra atburða í seinni heimsstyrjöldinni. Minjar um innrás Bandamanna sjást hvarvetna og fortíðin vitjar okkar. Á leiðinni verður stoppað í Bayeux sem er lítill hrífandi bær þar sem hinn stórmerkilegi Bayeux refill er varðveittur, myndrefill sem segir sögu Vilhjálms sigursæla á 11. öld. Því næst er haldið til hafnar- og virkisbæjarins St. Malo þaðan sem farið verður í skemmtilegar ferðir s.s. að klettaeyjunni Mont St. Michel. Bærinn Paimpol á Bretagne skaganum, sem er vinabær Grundarfjarðar, verður einnig sóttur heim. Á leiðinni til Parísar, einnar mestu menningar- og listaborgar Frakklands, verður komið við í bænum Giverny þar sem hinn frægi garður listmálarans Claude Monet verður skoðaður. Hin dásamlega Parísarborg er heillandi og við fáum innsýn í þessa töfrandi borg. Stöldrum m.a. við hjá Eiffelturninum, Louvre safninu, Champs-Elysées, Notre Dame, og Sacre Cæur.

Verð á mann 339.500 kr.

Aukagjald fyrir einbýli 111.000 kr.

Ath. Við gistum á einföldu hóteli í París og eru herbergin í smærri kantinum eins og tíðkast svo víða í París. Hótelið er aftur á móti vel staðsett. 


Innifalið

  • 9 daga ferð.
  • Flug með Icelandair og flugvallarskattar.
  • Gisting í 2ja manna herbergi með baði.
  • Morgunverður allan tímann á hótelum.
  • Fjórir kvöldverðir.
  • Allar skoðunarferðir með rútu samkvæmt ferðalýsingu.
  • Íslensk fararstjórn.

Ekki innifalið

  • Aðgangseyrir inn í söfn, hallir og kirkjur.
  • Kláfar eða stólalyftur upp á fjöll.
  • Fjórir kvöldverðir.
  • Vínsmökkun.
  • Hádegisverðir.
  • Þjórfé.
  • Ferða- og forfallatryggingar.

Valfrjálst

  • Aðgangseyrir inn á safnið í Bayeux u.þ.b. € 12.
  • Aðgangseyrir í Mont Saint-Michel klaustrið u.þ.b. € 11.
  • Safnið Musée de la Mer de Paimpol u.þ.b. € 45.
  • Claude Monet garðurinn u.þ.b. € 13. 
  • Louvre listasafnið u.þ.b. € 15. 
  • Eiffelturninn u.þ.b. € 17. 

Kort af ferðinni

FerðalýsingPrenta ferðalýsingu

24. september | Flug til Parísar

Brottför frá Keflavík kl. 7:40. Mæting í Leifsstöð u.þ.b. 2,5 klst. fyrir brottför. Lending í París kl. 13:05 að staðartíma. Þaðan verður ekið til fornu háskólaborgarinnar Caen sem stendur á bökkum árinnar Orne. Hér gistum við eina nótt.

25. september | Bayeux, Omaha ströndin & St. Malo

Að loknum morgunverði kveðjum við borgina Caen og tökum stefnuna á St. Malo á Bretagne skaganum. Á leiðinni verður áð í Bayeux þar sem við skoðum m.a. hinn fræga Bayeux refil. Refillinn er um 70 m á lengd og segir sögu Vilhjálms sigursæla, hertoga af Normandí þegar hann lagði undir sig England árið 1066 í orustunni við Hastings. Því næst ökum við á slóðir seinni heimsstyrjaldarinnar, meðfram ströndinni þar sem her Bandamanna gekk á land og skoðum minjar þessa tíma sem finna má um allt svæðið. Þekktust er Omaha ströndin en þar gekk hluti bandaríska hersins á land þann 6. júní 1944. Eftir það verður ekið til St. Malo þar sem gist verður næstu fjórar nætur.  

26. september | Mont Saint Michel eyjan

Dagsferð til eins glæsilegasta og fjölsóttasta ferðamannastaðar Frakklands, Mont Saint Michel. Við eyðum deginum á þessari fámennu klettaeyju, skoðum kirkjuna, klaustrið og göngum um La Grande Rue, aðalgötuna þar sem eru skemmtilegar verslanir og veitingastaðir. Þjóðsagan segir að upphafið að klaustri á eyjunni hafi verið árið 708 þegar erkiengillinn Mikael birtist Aubert biskupi í Avranches í draumi með beiðni um að byggja bænahús sér til dýrðar á klettinum en án árangurs. Erkiengillinn lét ekki þar við sitja, þrýstri fingri á enni biskups sem vaknaði morguninn eftir með gat eftir fingurinn. Götótt höfuðkúpa hans er varðveitt í kirkju St. Gervais í Avranches. Á árunum 708-709 hófst svo uppbyggingin á klettaeyjunni þegar Aubert biskup lét loks reisa helgistað til heiðurs St. Michael. Árið 933 er vitað að norrænir menn hafi notað eyjuna sem landamæri að Bretagne skaganum. Fyrsta munkaklaustrið var stofnað hér 966.

Opna allt

27. september | Gönguferð & frjáls dagur í St. Malo

Í dag njótum við þess að skoða okkur um í bænum St. Malo á Bretagne skaganum. Þessi töfrandi, gamli virkisbær geymir margar merkar byggingar og fræg söfn. Bærinn fór mjög illa í seinni heimsstyrjöldinni en helstu byggingar hafa verið reistar á ný. Þarna er m.a. stórkostlegur fiskagarður með rúmlega 1000 tegundum sjávar- og vatnafiska. Eftir göngu um elsta hluta bæjarins, þar sem við kynnumst sögu og menningu bæjarbúa, gefst tími til að njóta lífsins og fá sér hressingu á notalegu kaffi- eða veitingahúsi, þau eru fjölmörg í þessum líflega og skemmtilega bæ.

28. september | Dagur í Paimpol

Þessi dagsferð er til Paimpol á Bretagne skaganum. Með tilkomu þorskveiða í upphafi 15. aldar var mikil áhersla lögð á útgerð í bænum. Veiðar voru að mestu leyti í Norður-Atlantshafi við strendur Kanada en frá 19. öld í íslenskri landhelgi. Um það ritaði skáldið Pierre Loti árið 1886 í bók sinni Pêcheur d'Islande sem fjallar um franska sjómenn við Íslandsstrendur. Einnig gaf Tonton Yves út ævisögu árið 1980 en hann var með þeim síðustu frá Paimpol sem fiskuðu við Ísland. Skip hans strandaði við Íslandsstrendur og hann var alltaf þakklátur Íslendingum fyrir björgunina og hvernig hugsað var um hann á eftir. Það er áhrifarík upplifun að koma á þessar slóðir, fara í kirkjugarðinn og sjá hversu margir franskir sjómenn fórust í hafinu við Ísland.

29. september | Giverny & Claude Monet garðurinn

Nú kveðjum við St. Malo og ökum til Parísar þar sem við gistum í þrjár nætur.
Við tökum okkur hádegishlé á leiðinni og einnig verður stoppað í bænum Giverny, sem er frægastur fyrir Claude Monet garðinn. Næstu þrjár nætur gistum við í París. Við gistum á einföldu hóteli og eru herbergin í smærri kantinum eins og tíðkast svo víða í París. Hótelið er aftur á móti vel staðsett. Sameiginlegur kvöldverður.

30. september | Skoðunarferð um París

Farið verður í spennandi skoðunarferð um París og er af mörgu að taka. Staldrað verður við Eiffelturninn, Louvre safnið, Sigurbogann, Champs-Elysées og Notre Dame kirkjuna frægu svo eitthvað sé nefnt. Að loknum hádegisverði verður ekið að skjannahvítu Basilíkunni Sacré-Cœur en þaðan er frábært útsýni yfir borgina. Montmartre hverfið var aðal listamannahverfi Parísar á 19. öld og þar bjuggu listamenn á borð við Van Gogh, Toulouse-Lautrec og Picasso svo einhverjir séu nefndir. Við upplifum andrúmsloft hverfisins og förum á Place du Tertre torgið, þar sem portrett listamenn eru enn að störfum. Síðdegis gefst tími til að fá sér hressingu og jafnvel fá götumálara til að rissa af sér mynd.

1. október | Frjáls dagur í París

Nú getur hver og einn kannað borgina á eigin vegum. Um að gera að njóta dagsins út í ystu æsar í þessari glæsilegu borg. Upplagt að kanna listasöfnin nánar, ganga eftir Signubökkum eða setjast á götukaffihús og virða fyrir sér mannlífið.

2. október | Heimferð

Að loknum morgunverði höldum við út á flugvöll og er brottför frá Parísarflugvelli kl. 14:05. Lending í Keflavík kl. 15:40 að staðartíma

Fararstjóri getur fært dagskrárliði á milli daga eftir þörfum þegar komið er á staðinn.

Myndir úr ferðinni

Fararstjórn

Kristín Jónsdóttir

Kristín Jónsdóttir er fædd og uppalin á Íslandi og skilgreinir sig sem Breiðhylting. Eftir stúdentspróf lét hún æskudrauminn rætast og flutti til Parísar. Þar hefur Kristín búið nánast alla tíð síðan, er gift frönskum manni og á tvö uppkomin börn. Hún er með meistarapróf í þýðingafræðum og menningarmiðlun og er með leiðsögumannaréttindi í Frakklandi.

Hún hefur tekið á móti Íslendingum sem Parísardaman um árabil, bæði í París og í ferðum víðsvegar um Frakkland. Meðfram leiðsögninni þýðir hún franskar bókmenntir á íslensku, sem hafa komið út hjá Bjarti og Forlaginu.

Senda fyrirspurn um ferð

bokun@baendaferdir.is
Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Sími: 570 2790




Póstlisti