Páskar á Sikiley

Páskaævintýri á undurfögru og sólríku eyjunni Sikiley. Fornar minjar bera vitni um 3000 ára sögu hennar og menningu þeirra þjóða sem hér hafa ríkt í gegnum tíðina. Ferðin hefst með flugi til Palermo, höfuðborgar Sikileyjar, sem stendur við fallegasta flóa eyjunnar en þaðan verður ekið til Campofelice di Roccella. Ásamt því að skoða borgina Palermo verður farið til Monreale, töfrandi bæjar sem státar af stórkostlegri dómkirkju, klaustri og fyrrum konungshöll. Bærinn Cefalú tekur á móti okkur með sínum hrífandi arabíska blæ. Höldum til Agrigento, sem er ein hinna gömlu grísku borga, með viðkomu í Vall di Templi, eða dal hofanna, þar sem sjá má mjög áhugaverðar fornminjar og eitt stærsta fornminjasvæði í heimi. Á föstudaginn langa upplifum við afar áhugaverða skrúðgöngu í Agrigento. Síðasti náttstaður Sikileyjar verður við hina fögru Giardini Naxos strönd en á leið þangað verður áð í fjallabænum Enna sem er í tæplega 1000 m hæð og var hjarta Sikileyjar í fornöld. Taormina bíður okkar, sem er yndislegur bær en þar skrifaði Laxness Vefarann mikla frá Kasmír. Einnig förum við í ævintýralega ferð að Etnu, þekktasta eldfjalli Evrópu, og við rætur Etnu verður hádegissnarl að hætti eyjarskeggja. Við eigum töfrandi dag í forngrísku borginni Sýrakúsa en tímalaus fegurð hennar heillar enn í dag. Þessari glæsilegu ferð lýkur með stuttri skoðunarferð í Catania sem er önnur stærsta borg eyjunnar og stendur við rætur eldfjallsins Etnu áður en flogið verður þaðan heim.

Verð á mann í tvíbýli 464.900 kr.

Aukagjald fyrir einbýli 87.900 kr.


Innifalið

  • 11 daga ferð.
  • Flug með Lufthansa og flugvallarskattar.
  • Gisting í 2ja manna herbergi með baði á 4* hótelum.
  • Morgun- og kvöldverður allan tímann á hótelum.
  • Léttur hádegisverður á hóteli fyrsta daginn.
  • Léttur hádegisverður hjá vínbónda við Etnu.
  • Aðgangur í Monreal kirkjuna. 
  • Aðgangur í Tal der Tempel. 
  • Aðgangur í hringleikahúsið í Taormina.
  • Aðgangur í hringleikahúsið í Syracuse.
  • Allar skoðunarferðir með rútu samkvæmt ferðalýsingu.
  • Íslensk fararstjórn.

Ekki innifalið

  • Aðgangseyrir inn í söfn, hallir og kirkjur annað en talið er upp undir innifalið.
  • Hádegisverðir.
  • Þjórfé.
  • Ferða- og forfallatryggingar.

Valfrjálst

  • Ferð upp á Etnu með kláf og jeppa u.þ.b. € 65.

Nánari upplýsingar

Vert er að hafa í huga að þrátt fyrir að Bændaferðir séu alla jafna þægilegar rútuferðir er alltaf einhver ganga, t.d. í bæjarferðum. Margar evrópskar borgir eru bæði hæðóttar og ójafnar undir fæti og aðgengi að áfangastöðum þannig að leggja þarf rútunni mislangt frá. Ef þú hefur einhverjar vangaveltur varðandi þetta vinsamlegast ekki hika við að hafa samband við skrifstofu Bændaferða.

Kort af ferðinni

FerðalýsingPrenta ferðalýsingu

29. mars | Mæting upp á flugvöll um kl. 22:00

Mæting í Leifsstöð u.þ.b. 2,5 klst. fyrir brottför en flogið verður frá Keflavík með Lufthansa til Frankfurt með næturflugi.

30. mars | Flug til Frankfurt, Palermo á Sikiley & Campofelice di Roccella

Flogið kl. 00:25. Lending í Frankfurt kl. 05:55 að staðartíma. Flogið verður áfram með Lufthansa til Palermo á Sikiley kl. 08:25 og lendum þar kl. 10:40 að staðartíma. Palermo er höfuðborg Sikileyjar og borg heilagrar Rosalíu en hún stendur við einn fallegasta flóa eyjunnar. Þaðan verður ekið með norðurströnd eyjunnar á hótelið okkar í nágrenni við bæinn Campofelice di Roccella þar sem gist verður í þrjár nætur á góðu hóteli með útisundlaug og einkaströnd. Þegar komið er á hótelið bíður okkar léttur hádegisverður en eftir það eru rólegheit og hægt er að leggja sig eða njóta tilverunnar fram að kvöldverði.

31. mars | Konungsperlan Monreale & skoðunarferð um Palermo

Þessi glæsilegi dagur byrjar á að ekið verður til Monreale sem er yndisfagur bær og státar af einni stórkostlegustu dómkirkju eyjunnar. Hér er einnig klaustur heilags Benedikts frá 12. öld sem konungurinn Vilhjálmur II lét byggja. Dómkirkjan er í sérlega fallegum byggingarstíl þar sem blandast saman arabísk, býsönsk og gotnesk menningaráhrif. Kirkjan er skreytt fjölmörgum, töfrandi mósaíkmyndum sem eru svo dæmigerðar fyrir Sikiley. Eftir góðan tíma þar verður ekið um Palermo en sagt er að engin önnur borg hafi jafn oft orðið fyrir innrásum og Palermo og skýrir það fjölbreytta menningu borgarinnar. Þessi borg kemur manni skemmtilega á óvart. Við förum í skoðunarferð og lítum á nokkra þá dýrgripi sem hér er að sjá, m.a. dómkirkju frá 6. öld og höllina Palazzo Normanni. Báðar voru byggðar í arabískum-normanískum stíl og eru á heimsminjaskrá UNESCO. Eftir góðan tíma hér verður ekið til baka á hótelið okkar.

Opna allt

1. apríl | Cefalú & frjáls tími

Nú bíður okkar einn af fallegustu bæjum eyjunnar. Cefalú tekur á móti okkur með sínum arabíska blæ. Arabar voru við völd í Cefalú í rúm 200 ár á eftir Byzantínum sem höfðu þar yfirráð í tæp 500 ár. Farið verður í skemmtilega skoðunarferð m.a um gamla miðaldahluta borgarinnar. Að koma inn í dómkirkjuna er magnað en hún er ein áhugaverðasta miðaldabygging Sikileyjar. Einnig komum við að Porta di Pescara, sögulegu borgarhliði við gömlu höfnina, og virkisbyggingunni Bastione di Capo Marchiafava en þaðan er stórkostlegs útsýni yfir Tyrrenahaf og Eólíueyjar, eða Vindeyjarnar eins og þær eru kallaðar. Eftir það verður frjáls tími til að fá sér hressingu og njóta þess að kanna líf bæjarbúa áður en ekið verður á hótel.

2. apríl | Vall di Templi & Agrigento

Við yfirgefum Campofelice di Roccella og ökum til Agrigento, sem er ein hinna gömlu grísku borga. Í næsta nágrenni er hinn stórmerkilegi dalur hofanna eða Vall di Templi. Hér má sjá mjög áhugaverðar fornminjar, um 20 dórísk hof frá 6.-5. öld f. Kr. Þetta fornminjasvæði nær yfir 1.000 hektara og er stærsta fornminjasvæði í heimi en einnig er hér áhugavert fornleifasafn. Dalurinn umhverfis hofin er þakinn ólífulundum, sítrónutrjám og vínekrum og við tökum okkur góðan tíma til að skoða og njóta þessa merka svæðis. Áfram höldum við svo áleiðis til Agrigento þar sem gist verður í tvær nætur á góðu hóteli við ströndina, sem er með útisundlaug, sólarverönd og heilsulind sem er búin gufubaði, heitum potti og tyrknesku baði.

3. apríl | Agrigento & skrúðganga á föstudaginn langa

Þetta verður áhugaverður dagur í Agrigento sem er ein hinna gömlu grísku borga en hana prýða margar töfrandi byggingar, kirkjur, torg og litlar hallir. Í dag er föstudagurinn langi og á Sikiley eru miklar hefðir á þessum degi. Skrúðganga fer í gegnum bæinn með líkneski og er það mikil upplifun að sjá þessa göngu sem Sikiley er fræg fyrir. Einnig munum við skoða okkur um í bænum á eigin vegum og upplagt er að fá sér hressingu og upplifa líf bæjarbúa í þessari líflegu borg, sér í lagi á þessum degi.

4. apríl | Enna & Giardini Naxos

Við kveðjum nú Agrigento og höldum til fjallabæjarins Enna, sem er í tæplega 1000 m hæð og var hjarta Sikileyjar í fornöld, sem má þakka staðsetningu bæjarins. Þar verður farið í stutta skoðunarferð og svo njótum við þess að skoða okkur um á eigin vegum. Eftir það verður sameiginlegt létt hádegissnarl. Því næst heldur ferð okkar áfram til Giardini Naxos strandarinnar þar sem gist verður í fimm nætur á hóteli með útisundlaug og fallegan garð við einkaströnd.

5. apríl | Eldfjallið Etna & hádegishressing hjá vínbónda

Nú verður farið í ævintýraferð á eldfjallið Etnu sem er eitt þekktasta eldfjall Evrópu. Ekið verður að rótum fjallsins en þaðan gefst áhugasömum tækifæri á að taka kláf upp í 2.918 m hæð. Þegar upp er komið heldur ferðin áfram með jeppum um svæðið. Þetta er mikil upplifun og ferð sem ekki má missa af. Eftir það verður farið í hádegishressingu til vínbónda í nágrenni fjallsins.

6. apríl | Töfrandi bærinn Taormina & frjáls tími

Taormina er undurfallegur bær sem situr hátt uppi á bjargi yfir Jóníska hafinu og er byggður uppi í brattri hlíð. Héðan er stórfenglegt útsýni út á hafið og litlu eyjuna fyrir framan, Isola Bella. Í gegnum aldirnar hafa margir rithöfundar skrifað hér fræg verk og slóst Halldór Laxness í þeirra hóp þegar hann skrifaði hér bókina Vefarann mikla frá Kasmír. Þessi skrif juku mjög á vinsældir bæjarins sem þótti áður ómissandi áfangastaður í Evrópuhringferð heldra fólks. Efst í bænum má sjá gamalt hringleikahús Grikkja og Rómverja sem enn er í notkun. Frjáls tími gefst að skoðunarferð lokinni til að skoða bæinn, fá sér hressingu og feta þessar skemmtilegu götur.

7. apríl | Frjáls dagur í Giardini Naxos

Nú njótum við sælunnar í þessari náttúrufegurð sem umvefur okkur. Dagur í rólegheitum og slökun. Upplagt að nota aðstöðuna við hótelið. Einnig er hægt að fara í gönguferð inn í bæinn sem er u.þ.b. 20 mín ganga eða njóta þess að ganga í flæðarmálinu við gullnu ströndina og baða sig í fegurð eyjunnar.

8. apríl | Skoðunarferð til Sýrakúsa

Tímalaus fegurð fornu borgarinnar Sýrakúsa heillar okkur í dag. Hvergi er eins mikið af forngrískum minjum eins og hér, enda var þetta ein stærsta borg Grikkja til forna, stærri en Aþena. Í mörg hundruð ár var þetta mikilvægasta borg eyjunnar. Hér má sjá stórkostlegar fornminjar, t.d. grískt leikhús sem var höggvið í klett með sætum fyrir 15.000 áhorfendur. Auðvitað skoðum við eyjaperluna Ortygia, sem geymir gamla bæjarhluta Sýrakúsa, og einnig verður frjáls tími til að kanna borgina á eigin vegum og fá sér hressingu að hætti íbúanna.

9. apríl | Heimferðardagur frá Catania við rætur eldfjallsins Etnu

Nú er komið að heimferð eftir yndislega daga. Leið okkar liggur til Catania sem er önnur stærsta borg eyjunnar og stendur við rætur eldfjallsins Etnu. Í þessari yndislegu borg upplifum við skemmtilega blöndu af gamla og nýja tímanum. Eftir stutta skoðunarferð verður gefinn tími til að fá sér hressingu og kanna umhverfið á eigin vegum. Tilvalið er að smakka réttinn Spaghetti alla Norma en hann er nefndur í höfuðið á tónskáldinu Bellini sem fæddist hér í Catania. Því næst verður ekið út á flugvöll. Flugið er með Lufthansa og brottför frá Catanía kl. 15:20 og lending í München kl. 17:30. Brottför þaðan til Keflavík með Lufthansa kl. 22:10. Lending á Íslandi kl. 00:10 að staðartíma.

Fararstjóri getur fært dagskrárliði á milli daga eftir þörfum þegar komið er á staðinn.

Hótel

  • Campofelice di Roccella - Hotel Mangai's Himera Resort
  • Agrigent - Hotel Baia di Ulisse
  • Gardini Naxos - Hotel Hellenia

Myndir úr ferðinni

Fararstjórn

Hólmfríður Bjarnadóttir

Hólmfríður Bjarnadóttir (Hófý) heiti ég og er fædd árið 1960 á Patreksfirði. Ég er móðir þriggja drengja og er búsett í Bæjaraskógi í Þýskalandi um þessar mundir með yngsta drenginn, Gabríel Daða. Eiginmaður minn er Norbert Birnböck sem var einn af bílstjórum Bændaferða.

Senda fyrirspurn um ferð


bokun@baendaferdir.is
Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Sími: 570 2790




Póstlisti