Hotel Laurin

Hotel Laurin

Í þessari ferð verður gist á 4* hótelinu Hotel Laurin í bænum Toblach. Hótelið er staðsett á rólegum stað nálægt gönguskíðasvæðinu og býður upp á fallegt útsýni yfir Dólómíta fjallgarðinn. Skíðagöngumiðstöðin er í aðeins 50 metra fjarlægð og rétt fyrir utan hótelið stoppar strætó sem gengur í miðbæ Toblach en þangað er líka stutt að ganga. Herbergin á hótelinu eru öll með sturtu/baði, sjónvarpi, öryggishólfi og hárblásara. Á hótelinu er einnig að finna heilsulind með sundlaug, finnskri saunu, bio saunu, gufubaði og afslöppunarherbergjum þar sem hægt er að slaka á eftir góðan skíðadag. Hægt er að panta nudd og aðrar heilsumeðferðir gegn gjaldi. Á hótelinu er skíðageymsla með aðstöðu til að bera á skíðin. 

Vefsíða hótelsins.




Póstlisti