Ferðalýsing & verð

Ferðalýsing & verð

 
21. september           Flug til Parísar og CaenOmaha ströndin

Brottför frá Keflavík kl. 07.40. Mæting í Leifsstöð í síðasta lagi 2 klst. fyrir brottför. Lending í París kl. 12.55 að staðartíma. Þaðan verður ekið rakleiðis til Caen, sem er höfuðborg Basse-Normandí stjórnsýsluhéraðsins og stærsta borgin í Calvados sýslunni. Hér gistum við eina nótt.

 
 
22. september           Bayeux, Omaha ströndin & St. Malo

Að loknum morgunverði kveðjum við borgina Caen og tökum stefnuna á St. Malo á Bretagne skaganum. Á leiðinni verður áð í Bayeux, þar sem við skoðum m.a. hinn fræga Bayeux refil. Refillinn er um 70m á lengd og segir sögu Vilhjálms sigursæla hertoga af Normandí þegar hann lagði undir sig England árið 1066 í orustunni við Hastings. Því næst ökum við á slóðir Seinni heimsstyrjaldarinnar meðfram ströndinni þar sem her Bandamanna gekk á land og skoðum minjar þessa tíma sem finna má um allt svæðið. Þekktust er Omaha ströndin, en þar gekk hluti bandaríska hersins á land þann 6. júní 1944. Á leiðinni verður komið við á nokkrum stöðum við ströndina og einnig í ameríska herkirkjugarðinum í Colleville-sur-Mer. Eftir það verður ekið til St. Malo þar sem gist verður næstu 4 nætur.

 
 
23. september           Mont Saint - Michel eyjanMont Saint - Michel eyjan

Eftir morgunverð verður lagt af stað til eins glæsilegasta og fjölsóttasta ferðamannastaðar Frakklands, Mont Saint Michel. Við eyðum deginum á þessari fámennu klettaeyju, skoðum kirkjuna, klaustrið og göngum um La Grande Rue, aðalgötuna, þar sem eru skemmtilegar verslanir og veitingastaðir. Þjóðsagan segir að upphafið að klaustri á eyjunni hafi verið árið 708 þegar erkiengillinn Michael birtist Aubert biskupi í Avranches í draumi með beiðni um að byggja bænahús sér til dýrðar á klettinum, en án árangurs. Erkiengillinn lét ekki þar við sitja, ýtti puttanum á ennið á biskupnum sem vaknaði morguninn eftir með gat eftir fingurinn. Götótt höfuðkúpa hans er varðveitt í kirkju St. Gervais í Avranches. Á árunum 708-709 hófst svo uppbyggingin á klettaeyjunni þegar Aubert biskup lét loks reisa helgistað til heiðurs St. Michael. Árið 933 er vitað að norrænir menn hafi notað eyjuna sem landamæri að Bretagne skaganum. Fyrsta munkaklaustrið var stofnað hér 966.

 
 
24. september           Dagur í St. MaloSt. Malo

Í dag njótum við þess að skoða okkur um í bænum St. Malo á Bretagne skaganum. Þessi töfrandi, gamli virkisbær geymir margar fagrar byggingar og fræg söfn. Bærinn fór mjög illa í Seinni heimsstyrjöldinni, en helstu byggingar hafa verið reistar á ný. Þarna er m.a. stórkostlegt fiskasafn með rúmlega 1000 tegundir sjávar- og vatnafiska. Eftir göngu um elsta hluta bæjarins, þar sem við kynnumst sögu og menningu bæjarbúa, gefst tími til að njóta lífsins og fá sér hressingu á sjarmerandi kaffi- og veitingahúsum, sem eru fjölmörg í þessum líflega og skemmtilega bæ.

 
 
25. september           Dagur í Paimpol

Þessi dagsferð byrjar í Paimpol á Bretagne skaganum. Með tilkomu þorskveiðanna í upphafi 15. aldar var mikil áhersla lögð á útgerð í bænum. Veiðar voru að mestu leyti í Norður-Atlantshafi við strendur Kanada, en frá 19. öld í íslenskri landhelgi. Um það ritaði skáldið Pierre Loti árið 1886 í bók sinni Pêcheur d ' Islande sem fjallar um franska sjómenn við Íslandsstrendur. Einnig gaf Tonton Yves út ævisögu árið 1980, en hann var með þeim síðustu frá Paimpol sem fiskuðu við Ísland. Skip hans strandaði við Íslandsstrendur og hann var alltaf þakklátur Íslendingum fyrir björgunina og hvernig hugsað var um hann á eftir. Það er áhrifarík upplifun að koma á þessar slóðir, fara í kirkjugarðinn og sjá hversu margir franskir sjómenn fórust í hafinu við Ísland.

 Claude Monet garðurinn 

 
26. september           Dinan - Giverny - París

Nú kveðjum við St. Malo og ökum til Parísar þar sem við gistum í þrjár nætur. Á leiðinni verður stoppað í litla bænum Dinan, sem sumir nefna eitt best geymda leyndarmál Frakklands. Gamli bærinn, með þröngum götum, bindiverkshúsum, brúm og gömlum borgarmúr er helsta aðdráttarafl bæjarins og við fáum jafnvel á tilfinninguna að vera komin aftur í miðaldir. Við tökum okkur hádegishlé á leiðinni til Parísar og ef tími vinnst til verður einnig stoppað í Giverny, sem er frægastur fyrir Claude Monet garðinn. Næstu 3 nætur gistum við í París á sérlega vel staðsettu hóteli í miðbænum, rétt við Eiffel turninn. Eins og tíðkast í París eru herbergin af hóflegri stærð.
 
 
27. september           París & MontmartreNotredame

Í dag höldum við í spennandi skoðunarferð um París og er af mörgu að taka. Staldrað verður við Eiffelturninn, Louvre safnið, Sigurbogann, Champs-Elysées og Notre Dame kirkjuna frægu svo eitthvað sé nefnt. Að loknum hádegisverði verður ekið að skjannahvítu Basilíkunni Sacré-Cœur, en þaðan er frábært útsýni yfir borgina. Hverfið var aðal listamannahverfi Parísar á 19.öld og þar bjuggu listamenn á borð við Van Gogh, Toulouse Lautrec og Picasso svo einhverjir séu nefndir. Við upplifum andrúmsloft hverfisins og förum á Place du Tertre togið, þar sem portrett listamenn eru enn að störfum. Síðdegis gefst tími til að fá sér hressingu og jafnvel fá götumálara til að mála mynd af sér.

 
 
28. september           Frjáls dagur í París

Í dag getur hver og einn kannað borgina á eigin vegum eins og honum hentar. Um að gera að njóta dagsins út í ystu æsar í þessari glæsilegu borg. Upplagt er að kanna listasöfnin nánar, ganga meðfram árbakkanum á Signu eða setjast á götukaffihús og virða fyrir sér mannlífið.

 
 
29. september           Heimferð

Að loknum morgunverði höldum við út á flugvöll og er brottför frá Parísarflugvelli kl. 14.10. Lending í Keflavík kl. 15.40 að staðartíma

 
 
Fararstjóri getur fært dagskrárliði á milli daga eftir þörfum þegar komið er á staðinn.

 
 
Við viljum benda farþegum sérstaklega á tvær bækur, sem báðar fjalla um líf franskra sjómanna við Íslandsstrendur og tengjast bænum Paimpol á Bretagne skaganum.

 
     • Fransí Biskví. Franskir fiskimenn við Íslandsstrendur. Þriggja alda baráttusaga eftir Elínu Pálmadóttur

     • Bókin um „Yves frænda“. Í íslenskri þýðingu Jóns Óskars hlaut bókin nafnið: Yves frændi, Íslandssjómaður.

 
 
 


 

 
Verð: 219.900 kr. á mann í tvíbýli.           Mikið innifalið – athugið sérstaklega!

Aukagjald fyrir einbýli er 54.900 kr.

 
 Eiffel turninn í París
 
Innifalið: 

• Flug með Icelandair og flugvallaskattar.
• Gisting í 2ja manna herbergi með baði.
• Morgunverðir allan tímann.
• Kvöldverðir utan Parísar, alls fimm.
• Allar skoðunarferðir með rútu samkvæmt ferðalýsingu.
• Íslensk fararstjórn.

 
 
Ekki innifalið:

Aðgangseyrir inn á söfn, í hallir og kirkjur. Hádegisverðir. Kvöldverðir í París. Þjórfé.

 
 
Valfrjálst:

Aðgangseyrir inn á safnið í Bayeux ca. € 10. Aðgangseyrir í Mont Saint-Michel klaustrið ca. € 9. Safnið Musée de la Mer de Paimpol ca. € 4. Claude Monet garðurinn ca. € 10. Louvre listasafnið ca. € 15. Eiffelturninn ca. € 17. Versalahöll ca. € 15.

 

  

 

 Ferðaskilmálar Bændaferða

 
 
  
 
 

 

Tengdar ferðir




Póstlisti