Ferðalýsing & verð

Ferðalýsing & verð

 
8. nóvember           Flug til Amsterdam og dagur í borginni

Flug með Icelandair frá Keflavík kl. 07.40. Mæting í PanamaborgLeifsstöð í síðasta lagi 2 klst fyrir brottför. Lending í Amsterdam kl. 11.40 (+1 klst). Gist verður í Amsterdam eina nótt áður en ferðast verður áfram til Panamaborgar.

 
9. nóvember           Amsterdam – Panamaborg

Flogið frá Amsterdam til Panamaborgar, áætluð brottför kl. 11.20. Flugtími er 11 klst. og 15 mínútur og lent verður í Panamaborg kl. 16.35 (-5 klst) að staðartíma. Við ökum í gegnum borgina á hótelið þar sem gist verður næstu 3 nætur.

 
10. nóvember           Panamaborg – skoðunarferð - Panamaskurðurinn      ( M )

Í dag verður farið í skoðunarferð um Panamaborg eða PanamaskurðurCiudad de Panamá eins og hún heitir á spænsku. Hún er höfuðborg Panama og jafnframt stærsta borg landsins. Hér búa um 1,5 milljón manna í blöndu af tilkomumiklum skýjakljúfum og byggingum í nýlendustíl frá 17. öld. Við hefjum daginn samt sem áður á að fara nokkra kílómetra út fyrir borgina þar sem rústir hinnar upprunalegu Panamaborgar er að finna. Velski sjóræninginn Henry Morgan og fylgismenn hans herjuðu á borgina árið 1671, rændu hana og brenndu niður. Í stað þess að endurbyggja borgina á sama stað var ákveðið að byggja hana upp nokkrum kílómetrum vestar, þar sem núverandi Panamaborg er staðsett.
 
Við ökum til baka til núverandi borgar og höldum bæjarferðinni áfram fótgangandi um gamla borgarhlutann þar sem finna má hús byggð í spænskum nýlendustíl, en borgarhlutinn er á heimsminjaskrá UNESCO. Í vesturjaðri Panamaborgar liggur Panamaskurðurinn og ökum við að gestastofunni við Mirafloresflóðgáttina. Þar er skipum sem sigla til eða frá Balboahöfninni á Kyrrahafshliðinni, annað hvort lyft upp eða látin síga niður um átta metra til að komast sína leið. Hér fáum við kynningu á hvernig stórfenglegur skipaskurðurinn virkar og fáum að sjá með eigin augum þegar skipin sigla um hann.

 
11. nóvember           Panama - heimsókn í indíánasamfélag      ( M / H )

Í dag ökum við til norðurs frá Panamaborg, í áttina að Panama - heimsókn í indíánasamfélagChagres þjóðgarðinum þar sem við munum heimsækja eitt indíánasamfélaga svæðisins. Eftir akstur í rútunni munu innfæddir sjá um að flytja okkur síðasta hluta leiðarinnar til þorps þeirra, á bátum eftir ánni. Á meðan á heimsókninni stendur munum við fá góða kynningu á menningu þeirra og lífsháttum. Við fáum innsýn í hvernig þeir ná að fóta sig í nútímasamfélagi samhliða því að halda fast í venjur forfeðra sinna. Áður en við höldum til baka til Panamaborgar, gæðum við okkur á hádegisverði sem heimamenn hafa matreitt fyrir okkur.

 
12. nóvember           Flug til San José – kaffibúgarður      ( M / H )

Við fljúgum frá Panama til San José, höfuðborgar Kosta Ríka. Frá flugvellinum höldum við beint að kaffibúgarði þar sem við snæðum hádegisverð. Kaffi er elsta landbúnaðarafurð landsins og hefur verið flutt út allt frá lokum 18. aldar. Yfirvöld í Kosta Ríka ýttu undir kaffiframleiðslu í landinu á þriðja áratug 19. aldar með því að dreifa kaffiplöntum til þeirra fjölskyldna sem höfðu áhuga á að rækta kaffi og bjóða þeim skattfrelsi. Með þessum aðgerðum urðu til hópar smáframleiðenda sem hafa náð að tryggja tekjur sínar í gegnum árin, þrátt fyrir aukna samkeppni frá stærri framleiðendum. Kaffi frá Kosta Ríka er þekkt fyrir mikil gæði og er mikilvægasta útflutningsvara landsins. Við skoðum okkur um á fjölskyldureknum búgarði þar sem kaffi er ræktað á hefðbundinn máta. Gist eina nótt á hóteli í San José.

 
13. nóvember           San José – Tortuguero      ( M / H / K )

Snemma morguns leggjum við af stað frá hótelinu og Tortuguero bátaferðliggur leið okkar til norðausturs í að karabísku ströndinni. Á leiðinni ökum við í gegnum Braulio Carrillo þjóðgarðinn, en 90% af skóginum í þjóðgarðinum er frumskógur, þ.e. náttúrulegur skógur, allt frá hitabelti láglendisins til skýjaskóga hálendisins. Talið er að hér finnist meira en 6.000 tegundir plantna, meðal annars trjáburknar, pálmar og litrík blóm.
 
Eftir morgunverð í litla bænum Guápiles verður ekið til hafnarinnar La Pavona sem stendur við fljótið, en þaðan höldum við för okkar áfram með bát. Okkar bíður dásamleg sigling í gegnum skóginn þar til við náum náttstað þar sem við munum gista næstu tvær nætur. Síðdegis heimsækjum við fræðslusetur í bænum Tortuguero þar sem við heyrum um starfið sem þar er unnið til að stuðla að verndun grænu skjaldbökurnar.

 
14. nóvember           Sigling í Tortuguero þjóðgarðinum – frjáls tími      ( M / H / K )

Daginn hefjum við á að kynnast betur stórfenglegri Tortuguero þjóðgarðurnáttúrunni sem myndar Tortuguero þjóðgarðinn. Þjóðgarðurinn byrjaði sem staðbundin friðun á ströndinni þar sem grænu skjaldbökurnar verpa eggjum sínum, en nú nær hann yfir 51.870 hektara og er með stærstu hitabeltisregnskógum í Mið-Ameríku.
 
Við byrjum á að stíga um borð í minni bát sem flytur okkur eftir síkjunum sem liggja um skóginn. Þar komumst við í návígi við dýr og fugla sem búa á svæðinu. Hér er að finna fjölskrúðug fuglalíf, meðal annars átta páfagaukategundir og ef við erum heppin sjáum við dýr eins og apa, otra, krókódíla, eðlur og froska leynast í skóginum. Síðdegis gefst frjáls tími þar sem hægt verður að slaka á við sundlaugina eða fara í gönguferð í nágrenninu á eigin vegum.

 
15. nóvember           Tirimbina regnskógamiðstöðin – súkkulaðiferð      ( M / H )

Eftir morgunverð siglum við til baka til La Pavona. Við borðum hádegisverð í Guapiles og höldum þaðan áfram til Tirimbina regnskógamiðstöðvarinnar sem nær yfir stóran hluta af friðuðum regnskógi. Í regnskógamiðstöðinni fer fram fjöldi rannsókna á lífræðilegum fjölbreytileika skógarins. Þema dagsins er súkkulaði. Við heimsækjum fyrrverandi kakóplantekru, fræðumst um sögu kakóplöntunnar og okkur sýnt hvernig kakóbaunin er unnin frá baun að súkkulaði. Að sjálfsögðu fáum við að bragða á mismunandi súkkulaðitegundum sem framleiddar eru á svæðinu.
 
Við yfirgefum Tirimbina og ökum í norður til bæjarins La Fortuna. Svæðið er þekkt fyrir þjóðgarðinn þar sem hið 1.633 metra háa eldfjall, Arenal, er að finna. Til ársins 2010 var Arenal virkasta eldfjall Kosta Ríka. Nú hefur það lagst í dvala en undursamleg náttúran sem umlykur eldfjallið er hins vegar full af lífi. Gist í La Fortuna í 2 nætur.

 
16. nóvember           Sigling á Rio Peñas – ganga í regnskógi      ( M / H )

Við njótum kyrrðarinnar um morguninn á meðan við Rio Peñas - ganga í regnskógisiglum eftir Rio Peñas ánni í gegnum gróðursælt hitabeltis landslagið. Fljótið rennur í gegnum Tilaran fjallgarðinn og er umlukið þéttum regnskógi með ríku dýralífi, þannig að við höfum góða möguleika á að sjá apa, letidýr, skjaldbökur og fugla. Síðar um daginn gefst okkur tækifæri til að sjá regnskóginn ofan frá, þar sem við göngum eftir hengibrúm.
 
Friðlandið sem við förum um í dag nær yfir um 250 hektara af hitabeltisregnskógi nærri Arenal eldfjallinu. Þar hefur verið byggt net brúa og hengibrúa sem ásamt stígunum milli brúnna gera okkur kleift að fara í gönguferð um þéttan regnskóginn og á sama tíma njóta fallegs útsýnis yfir umhverfið. Brýrnar voru byggðar með það í huga að hafa eins lítil áhrif á dýra- og plöntulífið og mögulegt er, en á sama tíma að hafa þær eins öruggar og kostur er á. Eitthvað er um hækkanir á göngunni og undirlag getur verið misjafnt þannig að mikilvægt er að vera í gönguformi til að geta tekið þátt í gönguferðinni. Síðdegis höldum við til baka á hótelið.

 
17. nóvember           La Fortuna – Rincon de la Vieja      ( M )

Við höldum áfram til norðurs í áttina að Rincon de la Vieja þjóðgarðinum. Áfangastaðurinn er Guachipelin búgarðurinn sem hefur ræktað nautgripi og hesta í yfir 100 ár. Árið 1975 keypti hestaræktandinn Tomás Batalla Esquivel búgarðinn en í dag er hann rekinn af börnum hans. Jörðin nær yfir 1600 hektara og þar er að finna þurrt hitabeltisskóglendi sem fjölskyldan leggur áherslu á að vernda. Þess fyrir utan hafa þau nýtt um 300 hektara til að endurheimta skóglendi með plöntum og trjám sem voru í útrýmingarhættu. Fjölskyldan innleiddi vistvæna ferðamennsku á svæðinu og stofnuðu hótel við hliðina á búgarðinum, en þar munum við gista í eina nótt.

 
18. nóvember          Ganga í Rincon de la Vieja þjóðgarðinum – Nígaragúa      ( M )

Bústörfin hefjast kl. 05:30 á búgarðinum, en þá þarf Rincon de la Vieja - eldfjall og þjóðgarðurað mjólka kýrnar og þrífa gripahúsin. Þeir sem eru morgunhanar hafa möguleika á að fara í gripahúsin og fylgjast með starfinu þar. Eftir morgunverðinn ökum við til Rincon de la Vieja þjóðgarðsins sem hýsir eldfjall með sama nafni. Eldfjallið er umlukið þurrum hitabeltisskógi sem einkennist af langvarandi þurrkatímabilum. Hér finnast risavaxin tré og fjölskrúðugt dýralíf. Eldfjallið er eitt af virkustu eldfjöllum Kosta Ríka, en síðasta gaus það árið 2011.
 
Við göngum um þriggja kílómetra leið um þjóðgarðinn þar sem við sjáum bullandi leir- og vatnshveri sem eru milli 78°C og 106°C heitir. Við sjáum einnig gufu og fosfór koma upp í gegnum yfirborð jarðvegsins sem ber vitni um eldvirkni svæðisins. Eftir gönguferðina höldum við til landamæranna við Peñas Blancas og förum yfir til Nígaragúa. Við ökum meðfram Nígaragúavatni sem er stærsta stöðuvatn Mið-Ameríku, 8.264 km2 að flatarmáli. Gist verður í tvær nætur borginni Granada sem stofnuð var af Hernandez de Córdoba árið 1524. Hún var nefnd eftir Granada á Spáni og er spænskur nýlendustíll mjög áberandi í götumynd hennar.

 
19. nóvember          Sigling á Nígaragúavatni – bæjarferð í Granada      ( M / H )

Við hefjum daginn á siglingu á Nígaragúavatni, þar sem við siglum á milli Las Isletas eyjanna. Talið er að í eldgosi fyrir um 20.000 árum síðan hafi toppur hins nærliggjandi Mombacho eldfjalls sprungið og myndað 365 smáeyjar í vatninu. Við borðum hádegisverð á einni eyjunni. Síðdegis förum við í skoðunarferð um Granada og förum meðal annars fram hjá La Merced kirkjunni frá 1534, menningarhúsinu Casa de los tres Mundos og San Francisco kirkjunni. San Francisco kirkjan var jafnframt klaustur sem stofnað var samtímis borginni. Á miðöldum var klaustrið margsinnis brennt niður þegar sjóræningjar herjuðu á borgina, þannig að eini upprunalegi hluti hennar er ytri múrinn og grafhvelfingar sem finnast neðanjarðar. Talið er að um 75.000 manns hafi verði grafnir í grafhvelfingunum í gegnum tíðina. Á safni sem staðsett er við hlið hennar, er hægt að bera augum nokkrar af þeim sögulegu minjum sem fundist hafa á svæðinu.

 
20. nóvember           Granada – „Hvítu bæirnir“ – Managua      ( M )

Leið okkar liggur til höfuðborgar Nígaragúa, Managua. Á „Hvítu bæirnir“ Nicaragua efnamarkaðirleiðinni stoppum við í „Hvítu bæjunum“, litlum bæjum sem veita okkur spennandi innsýn í líf heimamanna og hversu stórt hlutverk hefðirnar spila í daglegu lífi þeirra. Bæirnir eru þekktir fyrir handverk sitt og margar af fjölskyldunum hafa komið sér upp litlum búðum þar sem þær selja vörur sínar. Hér má finna handofin hengirúm, bróderaðar blússur og tréútskurð og ef þú stefnir á að kaupa minjagripi til að taka með heim, þá gefst hér gott tækifæri.
 
Við höldum áfram til Managua, sem var grundvölluð árið 1819 og útnefnd höfuðborg landsins eftir að Granada var brennd til grunna af sjóræningjum. Managua er sjálf mótuð af eyðileggingarmætti jarðskjálftavirkninnar sem borgin verður fyrir áhrifum frá með jöfnu millibili. Stærstu skjálftarnir urðu árin 1931 og 1972 þegar stór hluti borgarinnar eyðilagðist. Við förum meðal annars í Lomo de Tiscapa garðinn þaðan sem við höfum stókostlegt útsýni yfir borgina. Gist eina nótt á hóteli í Managua.

 
21. nóvember           Heimför – Nígaragúa – Amsterdam      ( M )

Snemma dags höldum við á flugvöllinn, kveðjum paradís Mið-Ameríku og hefjum ferðalagið til Íslands. Flogið verður frá Managua til Atlanta í Bandaríkjunum og þaðan yfir til Amsterdam, áður en síðasti flugleggurinn færir okkur heim til Íslands. Áætluð brottför frá Managua er kl. 08:35 að staðartíma (-6 klst) og áætluð lending í Atlanta í Bandaríkjunum kl. 13:28 (-5 klst). Frá Atlanta er áætluð brottför kl. 16:00 að staðartíma.

 
22. nóvember           Amsterdam - Keflavík

Áætluð lending í Amsterdam er kl. 05:55 (+1 klst) að morgni 22. nóvember. Flugið frá Amsterdam til Íslands er með áætlaða brottför kl. 13:20 að staðartíma og áætlað er að lenda í Keflavík kl. 15:30.

 
 



 
 
Verð: 678.600 kr. á mann í tvíbýli.           Mikið innifalið – athugið sérstaklega!

Aukagjald fyrir einbýli er 99.900 kr.

 
 Fólkið í Panama
 
Innifalið:

• Áætlunarflug með Icelandair Keflavík - Amsterdam - Keflavík
• Áætlunarflug Amsterdam – Panamaborg, Managua – Atlanta og Atlanta – Amsterdam
• Innanlandsflug Panamaborg – San José
• Flugvallaskattar fyrir alla ferðina
• Akstur til og frá flugvelli í Panamaborg, San José og Managua
• Allar rútuferðir samkvæmt leiðarlýsingu
• Skoðunarferðir og aðgangseyrir samkvæmt leiðarlýsingu
• Gisting í tveggja manna herbergjum í góðum milliklassa
• Morgun-, hádegis og kvöldverðir á hótelum/veitingastöðum samkvæmt merkingum við hvern dag M/H/K (M = Morgunverður, H = Hádegisverður, K = Kvöldverður)
• Staðarleiðsögn
• Íslensk fararstjórn
• Undirbúningsfundur með fararstjóra fyrir ferð

 Toucan fugl í Tortuguero þjóðgarðinum
 
Ekki innifalið:

• Þjórfé fyrir erlendan staðarleiðsögumann og rútubílstjóra
• Mögulegt komugjald / brottfarargjald vegna afgreiðslu vegabréfa í viðkomandi löndum.
• Forfalla- og ferðatryggingar
• Máltíðir aðrar en þær sem nefndar eru í leiðarlýsingu

 

  
 
 
 

Ferðaskilmálar Bændaferða  

 

Tengdar ferðir




Póstlisti