Hlynur Hreinsson er fæddur árið 1968 í Reykjavík og ólst þar upp. Hlynur byrjaði að læra trésmiði en söðlaði svo um og fluttist til Þýskalands þar sem hann lærði hagfræði. Eftir nám hefur hann starfað hjá ýmsum stofnunum og fyrirtækjum sem hagfræðingur.
Fyrir utan að hafa áhuga á öllu því stóra og smáa sem gerir lífið skemmtilegt hefur hann af gaman af ferðalögum og útivist og ekki síst vegna þessara áhugamála sem hann hóf nám í ferðaleiðsögn við Endurmenntun Háskóla Íslands. Frá því hann lauk leiðsögunámi hefur hann starfað sem þýsku- og enskumælandi leiðsögumaður í hjáverkum.
Hlynur hefur sterk tengsl við Brasilíu hann er giftur brasilíski konu og á með henni tvö börn. Til Brasilíu hefur hann margsinnis komið og hefur meðal annars búsettur í borginni Fortaleza sem liggur í norðaustur Brasilíu.
Hlynur er fararstjóri í ferðinni Brasilía & Argentína | 3. - 17. október 2015