19. - 27. ágúst 2024 (9 dagar)
Það er ævintýri líkast að ferðast um Alpafjöllin í Sviss og Ítalíu og ekki skemmir að dvelja við annað stærsta vatn Ítalíu, Lago Maggiore, sem er umvafið fjallafegurð. Hér kynnumst við sögu og litskrúðugu menningarlífi þessara landa á hrífandi hátt. Við hefjum ferðina á Ítalíu í ljúfa bænum Stresa sem stendur við vatnið Lago Maggiore. Farið verður í skemmtilega siglingu á Comovatni til bæjarins Bellagio sem er sannkölluð perla við vatnið. Einnig siglum við til fallegu eyjunnar Isola Bella, sem er ein Borromeo-eyjanna en þar sjáum við tilkomumikla höll í stórglæsilegum lystigarði sem er einstakur í Evrópu. Við dveljum seinni hluta ferðarinnar í fallega bænum Saint-Léonard sem er örstutt frá töfrandi fjallabænum Sion í Wallis kantónu í Sviss. Á leiðinni þangað verður áð í hinum fræga fjallabæ Zermatt sem liggur við rætur Matterhorn fjalls á milli hæstu fjalla Evrópu. Við förum einnig til Chamonix sem stendur við rætur hæsta fjalls Vestur-Evrópu, Mont Blanc. Frá miðbæ Chamonix gengur útsýniskláfur upp í 3.842 m hæð á Aiguille du Midi en þaðan er stórkostlegt útsýni yfir á Mont Blanc og dalinn fyrir neðan.