Sérferðir

Framandi menning og sögulegar minjar á slóðum utan við Evrópu eru yfirleitt í fyrirrúmi í sérferðunum okkar.

Við höfum sérhæft okkur sérstaklega í ferðum til Kína, Egyptalands og Rússlands, en einnig bjóðum við upp á glæsilegar ferðir til framandi landa eins og Mexíkó, Tíbet, Íran, Túnis, Ástralíu, Nýja-Sjálands og svo mætti lengi telja.

Með íslenskum fararstjóra og innlendum leiðsögumanni á hverjum áfangastað er ferðast um ógleymanlegar slóðir ólíkar okkar.

 

Bæklingur

 
  

Dulúð Indlands & Nepal 


23. mars - 6. apríl 2012     UPPSELT!
Fararstjóri: Inga Ragnarsdóttir

Frá tignarlegum höllum stærsta lýðræðisríkis heims til hæstu tinda Himalayafjalla sameinar þessi ævintýraferð undur Indlands og töfrandi náttúru Nepals. Báðar þjóðir eiga sér langa og merka sögu með dulda og framandi menningararfleifð, sérstaka siði og trúarvenjur. Fjölskrúðugar frásagnir hindúatrúarinnar og búddismans heilla ekki síður en konungshallir og glæsibyggingar hinna fyrrum voldugu mógúla. Ferð okkar hefst í Delí þar sem við skoðum m.a. forsetahöllina og upplifum ævintýralegan markað í Gömlu Delí. Í Jaipur heimsækjum við Amber Fort kastalann og Hawa Mahal, eða „höll vindanna“, förum á fílsbak og njótum andstæðna gamla og nýja tímans. Komum til Agra og skoðum Taj Mahal, eitt þekktasta grafhýsi í heimi og heimsækjum Fatehpur Sikri, forna, yfirgefna sandsteinaborg. Síðast en ekki síst förum við til elstu borgar heims, Varanasi, sem er pílagrímaborg og helgasti staður Hindúa, eða hin svokallaða „borgin eilífa“. Höldum til Nepal, lands stórbrotinnar náttúru og sérstakrar menningar sem ákveðin dulúð hvílir yfir. Við fáum notið óviðjafnalegs landslags, þar sem skiptast á fagrir frjósamir dalir, skógi vaxnar hæðir og tignarlegir tindar hæstu fjalla heims. Við kynnumst hinni sérstöku menningu sem er samofin einlægu trúarlífi og upplifum m.a. hof hinnar „lifandi gyðju“ í Katmandú.

 


 

Draumaheimur Kaliforníu 


4. - 16. apríl 2012    UPPSELT!
Fararstjóri: Guðrún Bergmann

Kalifornía er líklega í hugum margra þekkt fyrir Hollywood og kvikmyndir. Við fljúgum til Seattle þar sem við gistum í eina nótt og fljúgum þaðan til San Francisco, þar sem bíður okkar sannkölluð draumaferð. Skoðum allt það helsta í hinni fallegu San Francisco en þar má helst nefna Golden Gate brúna, Fischerman‘s Wharf ásamt Chinatown. Haldið þaðan meðfram ströndinni til Los Angeles, farið á staði eins og Hollywood, Rodeo Drive í Beverly Hills og Olvera Street. Áfram er haldið til San Diego og Phoenix. Við skoðum eitt stærsta sandöldusvæði í Norður-Ameríku ásamt því að stoppa í Sedona, þar sem glæsilegir, risastórir rauðir klettar einkenna umhverfið. Síðan er komið að hápunkti ferðarinnar sem er hið stórfenglega Grand Canyon, sem margir segja eitt af náttúruundrum veraldar. Þá borgar sig að fara snemma á fætur og sjá sólarupprásina í þessu stórbrotna landslagi. Því næst er ekið til Las Vegas, sem er ein þekktasta spilaborg í Ameríku, gist þar í tvær nætur og gefst þá færi á að kíkja aðeins í spilavítin og jafnvel freista gæfunnar.

 

 
 

Íran - hjarta Persíu 


6. - 20. maí 2012
Fararstjóri: Jóhanna Kristjónsdóttir

Íran á sér langa og merka sögu og þar er að finna margt sögulegra minja en ekki er nútíðin síður spennandi. Í þessari ferð er flogið til Teheran í Íran. Við skoðum borgina, m.a. heimili síðustu keisarafjölskyldunnar. Þá er farið til Kashan en þar eru margar eftirminnilegar byggingar og hefðarhús. Höldum því næst til Yazd, borgar eyðimerkurarkítektúrs og mikillar sögu. Þar er aðalaðsetur Zorostriana sem sumir kalla elddýrkendur. Við skoðum Turn þagnarinnar og Eldhofið, sem og ævaforna tækni Vindturnanna  fjögurra og neðanjarðarhús vatnsins. Sjáum Föstudagsmoskuna sem er undurfögur og er upplýst á kvöldin. Næsti áfangastaður er hin fagra listaborg Shiraz, oft nefnd „Borg skálda, næturgala og rósa“ Við vitjum grafhýsis tveggja helstu skálda Írana, Hafez og Saadi. Auk þess verður Fjólubláa moskan sótt heim. Næst liggur leiðin til Persepolis þar sem við skoðum eina best varðveittu rústaborg heims, borg Akkamenida. Dvalarstaður okkar næstu 4 daga verður Esfahan, hin fagra og töfrandi borg Bláu mosknanna. Þar ber óþrjótandi fegurð fyrir augu, fallegustu moskur heims, hið stóra Imamtorg og sjálft Lífsgjafarfljótið. Yfir það eru margar brýr sem eru einstakar að gerð og tign. Göngum um armenska hverfið og heimsækjum dómkirkjuna og hina sérstöku Skjálfandi mínarettu. Góður tími gefst svo til að skoða stóran markað Esfahan borgar sem á sér fáa líka. Í lok ferðar verður dvalið síðasta daginn í Teheran, þar sem tími gefst til að rannsaka þjóðminjasafnið og nýlistasafnið áður en flogið verður frá Teheran og heim.

 


 

Sigling frá Moskvu til Pétursborgar 


20. ágúst - 1. september 2012     4 SÆTI LAUS!
Fararstjóri: Pétur Óli Pétursson

Spennandi ferð til Rússlands þar sem okkur gefst einstakt tækifæri til að skoða það helsta sem þetta stórbrotna land hefur upp á að bjóða. Við fljúgum til Helsinki og höldum þaðan til Moskvu. Í upphafi ferðar tökum við næturlest frá Helsinki til Moskvu, höfuðborgar Rússlands. Moskvuborg með öllum sínum sjarma mun bjóða okkur velkomin en þar bíður okkar m.a. skoðunarferð um Kreml, Rauða torgið og margt fleira. Síðan tekur við glæsileg sigling þar sem við höldum áleiðis til Pétursborgar, sem er án efa miðstöð menningar og lista og hafa bókmenntir, tónlist og leiklist hennar mikla þýðingu um heim allan. Margir telja borgina eina þá fallegustu í heimi, en miðbær hennar er t.a.m. á heimsminjaskrá UNESCO. Á leið okkar þangað skoðum við ýmsa fallega og sögufræga staði, s.s. Kizhi eyjuna, Yaroslavl, Goritsy, Uglich og Mandrogi. Við skoðum það markverðasta í Pétursborg, s.s. Vetrarhöllina, dómkirkju heilags Ísaks, gosbrunnagarðinn í Peterhoff o.fl. Saga Rússlands er heill heimur ævintýra og um leið og við skoðum landið fáum við að skyggnast inn í þá veröld.

 


 
Ævintýraheimur Kína 


14. - 28. september 2012     ÖRFÁ SÆTI LAUS!
Fararstjóri: Inga Ragnarsdóttir

Í þessari draumaferð okkar um Kína munum við skoða allt það sem landið er þekktast fyrir á tveimur vikum. Við skoðum einn merkasta fornleifafund veraldar, Terrakotta herinn sem fannst fyrir tilviljun árið 1974, en engar af hinum 7.000 styttum eru eins. Siglt verður með skemmtiferðaskipi um Yangtze fljótið sem er þekkt fyrir gljúfrin þrjú og í gegnum stærsta skipastiga heims hjá Þriggjagljúfravirkjuninni miklu. Shanghai og Peking verða sóttar heim, gengið um Torg hins himneska friðar og Forboðna borgin skoðuð. Berjum hinn 64 m háa Da Yan Pagodau eða „hinn stóra villigæsaturn“ augum og förum í Moskuna merku sem var byggð á 8. öld. Í lok ferðar er að sjálfsögðu gengið á hinum fræga Kínamúr og síðan farið í Sumarhöllina. Hér gefst tækifæri til að kynnast bæði hinu þjóðlega Kína en einnig þeim ótrúlega miklu breytingum sem orðið hafa á síðustu áratugum. Sagan er heillandi og menningin ólík okkar, við kynnumst kínverskum hefðum og smökkum á þjóðlegum réttum.

 


 
Októberfest í München 


2. - 6. október 2012
Fararstjóri: Marianne Eiríksson

Á hverju ári frá lok september og fram í október klæðist München hátíðarbúningi og býður til stærstu bjórhátíðar í heimi. Hátíðin á sér langa hefð og hefur verið haldin frá árinu 1810, þó með nokkrum hléum. Fyrsta hátíðin var í tilefni brúðkaups þeirra Ludwigs krónprins og Therese prinsessu, 17. október 1810. Þá var efnt til kappreiða á stóru túni rétt fyrir utan München og eftir þetta var túnið nefnt Theresienwiese. Til að gleðja almenning ákvað bæverska konungshirðin að endurtaka kappreiðarnar á Theresienwiese á sama stað og sama tíma ári síðar. Þar með skapaðist hefðin fyrir Októberfest. Ferð okkar hefst á flugi til höfuðborgar Bæjaralands, München, þar sem ætlunin er að kynnast töfrum borgarinnar, skemmta sér á Októberfest og kynnast bjórgerð. Gist verður á vel staðsettu hóteli í München og gist þar í 4 nætur. Boðið verður uppá skoðunarferð um München og farið verður í heimsókn til Benediktklaustursins Andechs þar sem löng hefð er fyrir bjórgerð. Þar verður farið í skoðunarferð um brugghús klaustursins og bjórgerð eldri og nýrri tíma kynnt. Nægur tími verður líka til að versla og gleðjast á Októberfest í góðra vina hópi.

 

 

 
Eþíópía - forn og framandi 


12. - 26. október 2012
Fararstjóri: Jóhanna Kristjónsdóttir

Eþíópía er svo sannarlega einstök heim að sækja og frábrugðin nágrannalöndum sínum. Þjóðin hefur frá örófi alda þróað sína eigin trú, tímatal og tungumál. Á þessu ferðalagi gefur að líta stórbrotna náttúru og minjar sem eru margar á heimsminjaskrá UNESCO. Þær ber strax fyrir augu er við ferðumst til Bahir Dar, Tanavatns hins fagra og fossa Bláu Nílar. Á ferðalagi okkar fljúgum við einnig yfir Simien fjallgarðinn sem er án efa sá tignarlegasti í Afríku. Því næst heimsækjum við Lalibela aðra helgustu borg Eþíópíu þar sem er að finna steinkirkjur frá 12. öld höggnar í kletta á einstakan máta. Í Aksum, hinni fornu gefur að líta minjar um uppruna kristinnar trúar í Eþíópíu auk merkra fornminja og leifa af hinni helgu Maríukirkju við klaustrið þar sem boðorðin tíu eru sögð vera geymd. Næst liggur leiðin suður á bóginn til Arba Minch með dagsstoppi í Addis Ababa þar sem við skoðum Þrenningarkirkjuna og lítum síðan á varning á Merkato, stærsta markaði álfunnar. Ökum á jeppum og upplifum mjög fjölbreytta náttúru og einstakt fuglalíf, m.a.við Zwayvatnið á leið okkar til ættbálkanna í Omo dalnum. Ættbálkar landins eru taldir 85 talsins og þekkjast þeir af margbreytilegum líkamsskreytingum. Dvöl í Omo-dalnum er einstök og svo sannarlega eins og að hverfa inn í annan heim menningar og ekki spillir fyrir fjölbreytt náttúra þar sem fjöll eru gróin upp að tindum. Dvalið í Turmi og heimkynni Erbore, Hammer og Karo ættbálkanna skoðuð og að lokum er hátíðarkvöldverður og danssýning.

 

 

 
Perú og Bólívía - á Inkaslóðum 


13. - 29. október 2012     ÖRFÁ SÆTI LAUS!
Fararstjóri: Guðrún Bergmann

Ferðalag til Perú og Bólivíu er mikið ævintýri, en við bjóðum nú í þriðja sinn upp á ferð þangað. Í þessum framandi löndum blandast saman á ótrúlegan hátt hin forna Inkamenning landsins, litskrúðugir frumbyggjar og menjar frá nýlendutíma Spánverja. Glæsileiki nýlenduborganna endurspeglar ríkidæmi þess tíma og sýnir hversu stóran þátt það tímabil á í hinni miklu sögu landsins. Ferðin hefst í Lima, höfuðborg landsins. Þaðan er flogið til Arequipa sem er í um 2000 m hæð og hefur stundum verið nefnd borgin hvíta. Frá Arequipa er ekið um stórbrotið landslag Andesfjallanna til Puno við Titicaca-vatn, þar sem farið er í siglingu og saga og menning mismunandi hópa á svæðinu kynnt. Sigling út til fljótandi Uros-eyjanna sem eru úr vatnareyr er mögnuð upplifun. Frá Puno er siglt út til Sólareyjarinnar þar sem skoðaðar eru frekari minjar frá tímum Inkanna og síðan siglt áfram til Chua þaðan sem ekið verður yfir landamærin til Bólivíu og stefnan sett á La Paz, hæstu höfuðborgar í heimi. Í La Paz og nágrenni fáum við innsýn í sögu svæðis og lands, sem býr við það að eiga ekki land að sjó. Eftir áhugaverða daga í Bólivíu er flogið frá La Paz aftur til Perú, til Inkaborgarinnar Cuzco. Cuzco var miðpunkturinn í ríki Inkanna sem náði yfir stóran hluta Suður-Ameríku en Cuzco og getgáturnar um borgina yfirgefnu Machu Picchu, í stórbrotnu landslagi Andesfjallanna, láta engan mann ósnortinn. Eftir heimsókn til Machu Picchu er flogið frá Cuzco aftur til Lima og þaðan haldið heim á leið með viðkomu í New York. 

 

 
Leyndarmál Egyptalands


14. - 28. október 2012
Fararstjóri: Jónína Guðmundsdóttir

Egyptaland hefur að geyma marga leyndardóma úr fortíðinni. Í þessari ferð er flogið til Kaíró í Egyptalandi og eftir að hafa skoðað borgina og heimsótt Egypska safnið er flogið áfram til Lúxor. Þar er farið um borð í fljótaskip og siglt næstu daga eftir fljótinu Níl. Á hverjum degi er farið í skoðunarferðir út frá skipinu og eru þær ekki af verri endanum, þar má nefna Konungadalinn með öllum þeim fornminjum sem þar hafa fundist, Hórusarhofið, hof Hatsepsutar, Abu Simbel hofin, Kom Ombo, Kitchener eyju, Philae hofið og margt fleira. Siglt er aftur til Lúxor og eftir að hafa skoðað það markverðasta þar s.s. Lúxor og Karnak hofin, gefst tími til að slappa aðeins af og kynnast lífinu í borginni, fara á ljósasýningu við Karnak hofin áður en flogið er aftur til Kaíró og haldið með rútu til hafnarborgarinnar Alexandríu sem dregur nafn sitt af Alexander mikla. Eftir skoðunarferð, m.a. í Bókasafnið, katakomburnar,rómverska hringleikahúsið, Pompey súluna og Quait virkið er haldið aftur til Kaíró þar sem pýramídarnir við Giza verða að sjálfsögðu skoðaðir ásamt Sfinxinum. Farið á Khan El Khalili basarinn áður en haldið er heim á leið.

 

  

 
Ekvador - milli fjalls og fjöru 


17. október - 7. nóvember 2012
Fararstjóri: Ari Trausti Guðmundsson

Ekvador er eitt allra litríkasta og forvitnilegasta land Suður-Ameríku, um 230 þúsund ferkílómetrar að stærð og með um 14 milljón íbúa. Meirihluti þeirra er af frumbyggjaættum. Landsvæðið nær yfir þurrlendi við Kyrrahafið, upp í hásléttur og jökulþakin eldfjöll og niður í hlýjan og rakan frumskóg Amazon-svæðisins. Í þessari 22 daga löngu ferð er farið um fyrrgreinda landshluta til þess að kynnast mannlífi, náttúru, menningu og sögu sem nær mörg þúsund ár aftur fyrir okkar tímatal. Ferðin hefst í Quito, en gamli borgarhlutinn er á heimsminjaskrá UNESCO. Síðan er ferðast norður í land á eldfjallaslóðir en þar á eftir allt suður til borgarinnar Cuenca, sem er talin með fegurri borgum álfunnar, skoðaðar inkarústir og þjóðgarðar, og bærinn Banos undir virka eldfjallinu Tungurahua heimsóttur í leiðinni. Stærsta borg landsins, Guyaquil er einn viðkomustaðurinn, ásamt fiskimannaþorpum norðar á ströndinni. Þar er farið í ýmsar skoðunarferðir, á sjó og landi. Að lokum er farið austur um í frumskóginn við Rio Napo þar sem Quechua-frumbyggjar kynna sitt land fyrir ferðahópnum. Ferðast er í rútum og með innanlandsflugi og í ferðinni er nokkrum sinnum gengið um byggð eða mishæðótt land í 1-3 klst., stundum í svala og allt að 4.000 m hæð en stundum í raka og 30 stiga hita. Auk leiðsagnar Ara Trausta Guðmundssonar njóta þátttakendur leiðsagnar heimamanna með sérþekkingu allan tímann. 
 
Kynningarfundur verður haldinn 15. febrúar kl 20:00 á Hótel Natura (fyrrverandi Hótel Loftleiðir).

 


 
Jólaferðir til Wiesbaden

29. nóvember - 2. desember 2012
6. - 9. desember 2012 
Fararstjóri: Marianne Eiríksson

Aðventan er tími ljóss og friðar. Ilmurinn af jólaglöggi og brenndum möndlum liggur í loftinu. Í þessari jólaferð höldum við til Wiesbaden sem stendur á bökkum Rínar, rétt vestur af Frankfurt, þar sem við gistum í 3 nætur á hóteli við göngugötuna. Í Wiesbaden er aðventustemning og í miðbænum er fallegur jólamarkaður þar sem upplýstar stjörnur svífa yfir litríku jólahúsunum. Boðið verður upp á bæjarrölt með fararstjóra, en eins gefst tækifæri til að kanna bæinn á eigin vegum, líta inn til kaupmanna eða fylgjast með mannlífinu frá einu af fjölmörgum kaffi- og veitingahúsum sem eru í miðbænum. Við förum einnig í dagsferð til Rüdesheim sem er vinsæll ferðamannabær við ána Rín. Í hjarta bæjarins er hinn skemmtilegi „Jólamarkaður þjóðanna”, þar sem hægt er að kaupa fallegar gjafavörur og fylgjast með hvernig handverk frá hinum ýmsu þjóðum er unnið. Þá er upplagt að ylja sér við jóladrykkinn „Glühwein” á meðan gengið er á milli jólabásanna. Allur miðbærinn er skreyttur jólaljósum og gaman er að rölta um og njóta jólastemningarinnar til fulls.

 

 

Jólaferðir til Mainz

29. nóvember - 2. desember 2012
6. - 9. desember 2012 
Fararstjóri: Íris Sveinsdóttir

Jólaferðir Bændaferða til Þýskalands hafa öðlast fastan sess í hjörtum margra og hafa verið geysivinsælar í gegnum árin. Ferðinni er að þessu sinni heitið til borgarinnar Mainz sem stendur við ána Rín. Mainz sem oft er kölluð Gutenbergerborgin hefur upp á margt að bjóða og skartar miðbærinn fallegum jólamarkaði sem á sér 200 ára gamla sögu. Þar má einnig sjá einstaklega fallegan 11 metra háan jólapíramída sem prýddur er englum, jólasveinum og þekktum hetjum úr sögu Mainz. Við markaðstorgið stendur hin fallega St. Stephans dómkirkja með sínum einstaklega fallegu, bláu glergluggum eftir listamanninn Chagall. Boðið verður upp á stutta bæjarferð um Mainz og eftir það er upplagt að njóta aðventustemningarinnar, kíkja í verslanir eða ylja sér við jólaglögg. Einnig verður farið í dagsferð til háskólaborgarinnar Heidelberg, þar sem kastali frá 13. öld gnæfir tignarlega yfir borginni en í miðbænum er einnig þekktur jólamarkaður þar sem kaupa má allskyns fallegar jólavörur.

 

  

Jólaferð til Rosenheim & Salzburg

1. - 4. desember 2012

Í þessari nýju jólaferð til Rosenheim í Bæjaralandi fáum við að upplifa jólastemningu, jólamarkaði og fallegar jólaskreytingar í borg sem á eftir að koma flestum á óvart. Rosenheim er viðskipta- og menningarmiðstöð suðaustur Bæjaralands með aldagamalli verslunar- og handverkshefð. Saga borgarinnar er frá tímum Rómverja, en blómatími borgarinnar var á miðöldum með saltverslun og flutningum á ánni Inn. Rosenheim prýða fagrar byggingar og torg, Stadtpfarr-kirkjan St. Nikolaus er einstaklega falleg og þess virði að líta þar inn. Boðið verður upp á stutta bæjarferð um Rosenheim og eftir það er upplagt að dreypa á jólaglöggi á jólamarkaði borgarinnar og finna hjartslátt bæjarbúa. Einnig er farið í dagsferð til fæðingarborgar Mozarts, Salzburgar í Austurríki, sem er ein af fallegustu borgum landsins og með sérlega fallega jólamarkaði. Borgin er þekkt fyrir byggingar í barokkstíl og var hún skráð á heimsminjaskrá UNESCO árið 1996, en Salzburg er í hugum margra sannkölluð perla Austurríkis. Kastalinn Hohensalzburg færir borginni ævintýraljóma og frá honum er glæsilegt útsýni yfir Salzburgerland.

 



Flýtileiðir




Skipta um leturstærð