Um Bændaferðir

Um Bændaferðir

Bændaferðir bjóða innihaldsríkar pakkaferðir með íslenskri fararstjórn um allan heim, þar sem fólk nýtur góðs félagsskapar og kynnist menningu og náttúru merkra áfangastaða.

Ferðaskrifstofan Bændaferðir á rætur sínar að rekja til ársins 1965, en þá hófust hinar hefðbundnu rútuferðir fyrir bændur. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan þá og í dag bjóða Bændaferðir upp á fjölbreyttar ferðir um víða veröld sem einskorðast ekki lengur bara við bændur eins og fyrrum daga. Allir sem hafa áhuga á að ferðast áhyggjulaust og kynnast menningu og öðlast fræðslu með íslenskri fararstjórn geta bókað sig í ferð með Bændaferðum.
 
Við leggjum áherslu á áhugaverðar rútuferðir um Evrópu og Kanada en bjóðum einnig upp á spennandi sérferðir til framandi landa. Hjá okkur er einnig fjölbreytt úrval hreyfiferða þar sem útivist skipar stóran sess. Þess má geta að Bændaferðir eru umboðsaðili World Marathon Majors maraþonanna, þeirra stærstu í heimi. Loks bjóðum við upp á ferðir með fararstjóra til Evrópu fyrir sérhópa af öllu tagi.
 
Nánari upplýsingar um allar ferðir eru að finna hér á vefsíðunni sem er auðvitað alltaf opin fyrir móttöku bókana, borgunar staðfestingargjalds og innágreiðslna.
Það er líka hægt að hringja í okkur eða líta til okkar að Síðumúla 2 til að bóka, fá upplýsingar um ferðir og hvaðeina. Athugið, að það er ekkert aukagjald tekið fyrir að bóka símleiðis né á vefsíðu okkar hjá Bændaferðum.  

Einnig bendum við á bæklinginn okkar sem kemur út í nóvember ár hvert. Hann má finna hér og einnig er alltaf hægt að nálgast hjá okkur á skrifstofunni eða með því hringja í okkur þangað í síma 570 2790 og fá hann heimsendan.

Upplifðu draumaferðina þína með Bændaferðum. Við tökum vel á móti þér!

 


Þjónustustefna Bændaferða

  • Við tökum hlýlega á móti viðskiptavinum okkar og veitum þeim persónulega þjónustu.
  • Við komum fram af virðingu við viðskiptavini okkar og setjum þá í öndvegi.
  • Þjónusta okkar einkennist af góðu viðmóti, heiðarleika, góðu siðferði og áherslu á að upplýsa viðskiptavininn.
  • Öllum fyrirspurnum er svarað eins fljótt og kostur er.
  • Við sendum skoðanakannanir eftir hverja ferð sem hluta af gæðaeftirliti ferðanna.
  • Við höldum góðu sambandi við viðskiptavini okkar í gegnum fréttapósta, samfélagsmiðla og okkar árlega jólahlaðborð.
  • Gildi okkar eru: Virðing - Gleði - Framsækni. 


Ferðaþjónusta bænda hf.
Síðumúla 2. 2. hæð.
108 Reykjavík
Kt. 530891-1359
Vsk. nr. 31471
Nánari upplýsingar í fyrirtækjaskrá.

Hafa samband við Bændaferðir: bokun@baendaferdir.is 

Vefsíður Ferðaþjónustu bænda hf. eru www.baendaferdir.is, www.heyiceland.is, www.hey.is.  

Ferðaþjónusta bænda hf. er með fullt ferðaskrifstofuleyfi frá Menningar- og viðskiptaráðuneytinu, sem ennfremur hefur eftirlit með rekstrinum.

Ferðaþjónusta bænda hf. er meðlimur í Samtökum ferðaþjónustunnar (SAF)

  • Hólmfríður Bjarnadóttir (Hófý)

  • Fararstjóri og ferðaráðgjafi
  • 0049 151 54750043
  • hofy@baendaferdir.is

Ferðaþjónusta bænda hf.

  • Bændaferðir er vörumerki Ferðaþjónustu bænda hf.

  • Nánari upplýsingar um fyrirtækið www.hey.is
  • 570 2700
  • info@heyiceland.is

Fjármáladeild

Framkvæmdastjóri

Upplýsingatækni & Viðskiptaþróun




Póstlisti