 |
28. júlí – 4. ágúst 2012 Fararstjóri: Sverrir Gíslason
Við kynnum hér glæsilega 8 daga hjólaferð og siglingu þar sem árnar Neckar og Rín munu leika aðalhlutverk. Flogið verður til Frankfurt en þaðan ökum við sem leið liggur til Bad Wimpfen, þar sem fljótaskipið„MS Patria“ tekur á móti okkur. Skipið býður uppá fjölmörg þægindi, má þar nefna veitingahús sem býður gestum uppá góðan og vel útilátinn kvöldverð ásamt gestastofu með litlum bar. Sóldekk er yfirbyggt, að hluta með sætum og reiðhjólastöndum. Allar káetur eru með loftkælingu og sérbaðherbergi. Þegar við höfum notið morgunverðar dag hvern, þá hjólum við um undurfagurt landslag tveggja hrífandi fljótasvæða, þar sem við skoðum menningarperlur, kirkjur, hallir og vínekrur. Heidelberg, Mainz og Koblenz eru borgir sem þetta fallega svæði hefur m.a. uppá að bjóða. Hjólað verður á vel byggðum hjólastígum þar sem farið verður í skoðunarferðir sem tryggja ógleymanlegt frí. Fyrir þá sem ekki hafa áhuga á að hjóla daglega er yndislegt að dvelja um borð og njóta landslagsins sem líður hjá. Það má með sanni segja að hér er um að ræða spennandi nýjung sem vert er að skoða! |