
Steinunn H. Hannesdóttir er M.Sc. íþróttafræðingur að mennt. Hún hefur kennt íþróttir á grunnskóla- og framhaldsskólastigi en þó hefur áherslan verið fyrst og fremst á íþróttir fyrir almenning. Hefur starfað á líkamsræktarstöðvum, bæði með hóptíma og einkaþjálfun og einnig stýrt leikfimi og hreyfingu fyrir aldraða.
Steinunn starfar við heilsuþjálfun fólks í endurhæfingu á Reykjalundi og hefur auk þess verið þjálfari Trimmklúbbs Seltjarnarness síðastliðin 12 ár.
Áhugi á útivist og hreyfingu hefur verið sameinaður í skíða- og gönguferðum um landið, jafnt að sumri sem vetri.
Steinunn hefur verið fararstjóri í gönguskíðaferðum Bændaferða síðan 2006.
Árið 2012 fer Steinunn í ferðirnae:
- Á gönguskíðum í Ramsau við Dachstein 28. janúar - 4. febrúar.
- Sumar 5 - Útivist við Achensee 21. - 28. júní
Umsagnir farþega um Steinunni:
„Frábær í mannlegum samskiptum, hefur ánægju af því sem hún er að gera, alltaf tilbúin til að aðstoða.“
„Hún er áhugasöm og glöð og hefur áhuga á fólki og að því líði vel. Leggur sig fram um að skipuleggja svo allt gangi upp. Maður er öruggur og slappar af í návist hennar og kemur hvíldur heim.“
„Hún var vel upplýst, lagði sig fram um að allt gengi vel og að allir hefðu
viðfangsefni við hæfi.“
„Ákveðinn og ljúfur stjórnandi sem lætur vel að skapa vellíðan og notalegt
andrúmsloft.“
„Það er ekki hægt að fá betri fararstjóra!“